19.12.1981
Sameinað þing: 39. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1885 í B-deild Alþingistíðinda. (1586)
1. mál, fjárlög 1982
Þorv. Garðar Kristjánsson:
Herra forseti. Ég fagna yfirlýsingu hæstv. viðskrh. um hækkun olíustyrkja og að orðið hefur verið við óskum sem ég hef sett fram hér á þingi áður og endurskoðunarnefnd þessara mála hefur lagt til. Um leið og þessi ákvörðun hefur verið tekin þarf að ráðstafa öllu því fé, sem nú er á fjárlögum ársins 1981, í þessu skyni, þ. e. 50 millj. Það hefur verið athugað, að það þarf að ráðstafa 50 millj. á næsta ári miðað við að styrkurinn verði sá sami og nú hefur verið ákveðinn. M. ö. o.: það hefur verið ákveðið að hækka olíustyrkinn, en ekki framlag til að greiða hann á næsta ári. Þess vegna verður að lækka olíustyrkinn á næsta ári ef brtt. mín og félaga minna verður ekki samþykkt. Á þetta vil ég leggja áherslu um leið og ég segi já.