19.12.1981
Sameinað þing: 39. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1887 í B-deild Alþingistíðinda. (1593)

1. mál, fjárlög 1982

Eyjólfur Konráð Jónsson:

Herra forseti. Það er ljóst að þeir flokksbræður, hæstv. fjmrh. og hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson, formaður þingflokks Alþb., eru komnir í hár saman. Ég hygg að formaður fjh.- og viðskn., hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson, hafi eins og við hinir ætlað það, að þegar tilmæli komu frá ríkisstj. um að taka ekki þessar heimildir inn í lánsfjárlög hafi það þýtt að það ætti ekki að heimila þær með neinum öðrum hætti. Það kemur flatt upp á mig hvernig hér er að staðið og ég held að það hljóti að koma alveg flatt upp á hv. þm. Ólaf Ragnar Grímsson, eins og kom raunár óbeint fram í ummælum hans áðan þar sem hann sagðist treysta því, að í heild færu lántökur ekki umfram það sem talað var um í hv. nefnd.

Ég skal játa að mér var ekki ljóst að það ætti að fara á bak við okkur í fleiri efnum en því eina sem mér var sýnt í gær, en komið er á daginn að það er gert í fleiri atriðum. Í þessu tilfelli á að taka erlent lán til að byggja skip fyrir ríkið á meðan íslenskar skipasmíðastöðvar vantar verkefni. Þetta var önnur vitlausasta tillagan. Það eru sem sagt tvær þær vitlausustu teknar upp á bak við fjh.- og viðskn., á bak við Ed. sem fjallaði um þetta mál, eins og menn vita, á löngum fundum. Það er líka til enn fyllri sönnunar um hve óráðsían er alger, að taka tvær vitlausustu tillögurnar út úr bunkanum. Þar voru mörg þjóðþrifamál sem varð að fresta vegna þess að lántökur voru of miklar. Ég segi nei.