19.12.1981
Sameinað þing: 39. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1889 í B-deild Alþingistíðinda. (1598)
1. mál, fjárlög 1982
Fjmrh. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Hv. þm. Matthías Á. Mathiesen gerir að umtalsefni mál sem auðvitað er ekki hægt að gera nein skil á svipstundu. En ég vil leyfa mér að fullyrða að fordæmi séu fyrir því, að erlendar lántökur séu ákveðnar í 6. gr. fjárlaga. Ég vek á því athygli, að í 1. gr. fjárlagafrv. er beinlínis gert ráð fyrir erlendu láni, t. d. í fjárl. fyrir árið 1981, þar sem er sérstaklega tekið fram að ákveðin upphæð skuli fengin með erlendum lántökum. Ég held að það sé ekki rétt hjá hv. þm. að engin fordæmi séu fyrir þessu.