19.12.1981
Sameinað þing: 39. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1892 í B-deild Alþingistíðinda. (1607)
1. mál, fjárlög 1982
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Hér er fyrst og fremst á dagskrá að flytja ákveðna stofnun. Vestfirðingum var tjáð að það væri ákveðið að leggja hana niður og einkaframtakið ætti að taka við. Nú er búið samkv. þessu að ákveða að ríkisvaldið taki við aftur. Ég hef ekki haft nokkra aðstöðu til þess að kynna mér, hvort það, sem hér er verið að leggja til, er í samræmi við óskir eða vilja heimamanna á nokkurn hátt, og greiði ekki atkv.