26.10.1981
Efri deild: 6. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 233 í B-deild Alþingistíðinda. (162)

42. mál, ráðstafanir vegna breytingar á gengi íslenskrar krónu

Lárus Jónsson:

Herra forseti. Ég vil vekja athygli hv. deildar og hv. síðasta ræðumanns á því, að það frv., sem hér er til umr., fjallar um ofureinfalt mál, gengisfellingu sem ríkisstj. stendur að. Hvort sem þetta er gengisfelling samkvæmt áætlun, eins og hann sagði, sem er miklu betri gengisfelling en aðrar gengisfellingar, að mér skildist, sbr. kvæði Steins Steinars um undanhald samkvæmt áætlun, þá er þarna um gengisfellingu að ræða, tæknilegt afbrigði sem er nánast staðfesting á því, að ríkisstj. felldi íslensku krónuna. Að þessu leyti er þetta frv. gamalkunnugt hér í sölum hv. Alþingis, því miður allt of gamalkunnugt og það hvort sem Alþb. er í ríkisstj. eða utan. Gengisfellingarásökun hv. þm. Ólafs Ragnars Grímssonar á stjórnarandstöðuna er því alger markleysa. Hann var að tala hér fyrir eigin gengisfellingarfrv.

Ég ætlaði mér ekki að taka til máls við þessa umr., en hún hefur farið vítt og breitt og hæstv. viðskrh. gaf mér tilefni til að segja hér örfá orð. Það rifjaðist nefnilega upp fyrir mér að hæstv. ráðh. fer með flesta þá málaþætti sem nú eru þess eðlis, þeim er stjórnað þannig, verðlagsmálum, gengismálum og lánamálum atvinnuveganna, að jafnvel Samband ísl. samvinnufélaga kvartar hástöfum. Ég er alveg viss um það, að forráðamenn þess fyrirtækis, sem er nú stærst atvinnufyrirtækja í landinu, — ég held að hæstv. ráðh. geti orðið sammála um það, — hafa áreiðanlega gengið á hans fund og spurt: Hvert í ósköpunum eruð þið að stefna? Þið segið við okkur: Innlendur kostnaður á að hækka sjálfkrafa og fjármagnskostnaður á að hækka með lagaboði. En á sama tíma megum við ekki selja okkar vörur á sannanlegu verði, hvorki á innlendum né erlendum markaði. Og það er hæstv. ráðh. sem er ábyrgur fyrir þessari stefnu.

Ég skal nefna hæstv. ráðh. ákveðið dæmi. Það er ekki af Sambandi ísl. samvinnufélaga. Það er af öðru iðnfyrirtæki þar sem margir tugir manns hafa atvinnu. Aðföng þessa fyrirtækis og innlendur kostnaður hefur hækkað í tíð núv. ríkisstj. frá því í janúar um rúm 100%, 101% til þess að vera nákvæmur, en tekjur þessa fyrirtækis, sem er útflutningsfyrirtæki, hafa hækkað um 64.4% á sama tíma. Því segi ég það, hæstv. ráðh., að hagur þessa fyrirtækis hefði þurft að vera góður fyrir ef það fer ekki beina leið á hausinn með þessu áframhaldi.

Ég er alveg viss um að hæstv. ráðh. gerir sér í rauninni grein fyrir þessu. En það er alveg hárrétt hjá formanni þingflokks Alþb., Ólafi Ragnari Grímssyni, að Alþb. hefur náð sinni stefnu fram í þessari ríkisstj. Hann sagði það í þinglok að Alþb. hefði náð fram stefnu í þessari ríkisstj. sem væri miklu líkari eigin afstöðu heldur en í vinstri stjórn, sem sagt, hæstv. núv. ríkisstj. framfylgi í efnahags- og atvinnumálum stefnu sem við skulum vona að sé til vinstri við vinstri stjórn Ólafs Jóhannessonar. Má ég ekki álykta sem svo, hv. formaður þingflokks Alþb., að þið teljið ykkur lengst til vinstri af öllum flokkum á Íslandi og ef ykkar stefna hefur náð fram að ganga betur í þessari ríkisstj. en hinni síðustu vinstri stjórn, þá sé þessi ríkisstj. að framkvæma stefnu til vinstri við vinstri stjórnina? (ÓRG: En ef vinstri stjórnin var ekki vinstri stjórn?) Ja, þá er þessi stjórn vinstri stjórn alla vega. Hún er að framkvæma stefnu til vinstri við þá stjórn sem kannske gat ekki kallað sig vinstri stjórn. En þessi getur það vafalaust. (Gripið fram í.) Þarna er nefnilega hundurinn grafinn. Hæstv. viðskrh., sem hefur þessa þætti í hendi sér, á að stjórna samkvæmt stjórnskipun íslenska lýðveldisins lánamálum, gengismálum og verðlagsmálum, hann stjórnar þeim eftir forskrift Alþb.

Ég vil svo aðeins fara nokkrum orðum um það sem hæstv. ráðh. sagði hér. Hann sagði: Við verðum að lita á björtu hliðarnar. Það er alveg rétt hjá honum. Ég skal koma strax að einni bjartari hlið sem hann minntist á. Það er aukning innlána, aukning sparifjáreignar landsmanna. Ég er alveg sammála hæstv. ríkisstj. í þeim efnum og ég hef lýst því yfir áður, að ég tel að þetta sé rétt stefna út af fyrir sig. En hún verður að vera í samhengi við annað. Þeir, sem eiga að taka á sig meiri fjármagnskostnað, þ. e. atvinnuvegirnir, verða að geta borið hann. Það er ekki hægt að segja: Þið verðið að bera meiri fjármagnskostnað — og á sama tíma: Þið fáið ekki að selja vöruna nema á lægra verði en hún sannanlega kostar, hvorki á innanlandsmarkaði né erlendis. — En ég er að því leyti alveg sammála hæstv. ráðh., að þarna hefur birt til, það er meiri sparnaður í hagkerfinu en áður.

Vonandi er þarna ekki um að ræða tilflutning á sparnaði heldur raunverulega aukningu. Ég fagna því að Alþb. er farið að aðhyllast þessa skoðun, að það beri að hafa raunvexti í hagkerfinu, vegna þess að við vitum að það var eitt mesta baráttumál Alþb., þegar Lúðvík Jósepsson var formaður þess, að menn gengju ekki lengra í því að hafa háa vexti en svo, að atvinnuvegirnir gætu staðið undir þeim. Að þessu leyti lagði hann áherslu á það sem ég held að verði að segja við hæstv. ríkisstj. nú: Þarna eruð þið enn á rangri braut. Þið verðið að gera ykkur grein fyrir því, að atvinnuvegirnir verða að hafa tekjur til þess að geta borið meiri fjármagnskostnað.

Hæstv. ráðh. talaði um að þjóðartekjur hefðu ekki minnkað á Íslandi. Þakka skyldi hæstv. ríkisstj. þótt þjóðartekjur minnki ekki á sama tíma sem við tökum núna t. d. í ár sennilega 150 þús. tonnum meira af þorski á miðunum hérna í kringum landið heldur en 1978. Þá var þorskafli Íslendinga 318 þús. tonn, ef ég man rétt, en núna verður hann sennilega 460 þús. tonn. Á þessum tíma höfum við raunar hjakkað í sama farinu í þjóðarframleiðslu að magni til á mann, og það er meiri spurning í mínum huga hvernig það stjórnarfar sé sem ekki skilar meiri árangri en þetta af slíkri aflaaukningu, af slíkum búhnykk sem hækkun Bandaríkjadollars er núna og hv. formaður þingflokks Alþb. minntist líka á að hefði orðið til þess að bjarga ríkisstj. með sína efnahagsáætlun í ár. Hvernig er það stjórnarfar sem ekki skilar betri árangri þegar ausið er svo mjög af gnægtabrunni hafsins og hina og þessa búhnykki rekur á okkar fjörur?

Gjaldeyrisstaðan hefur batnað, segir hæstv. ráðh. Það er alveg rétt. Gjaldeyrisstaðan hefur batnað af tvennum orsökum: Vegna þess að dregið hefur úr framkvæmdum í landinu í orkumálum og stóriðjumálum. Samt sem áður aukast erlendar lántökur. En það er alveg rétt hjá hæstv. ráðh., þarna er ljós punktur, gjaldeyrisstaðan er betri en hún var og viðskiptajöfnuðurinn heldur að batna. Ég samfagna hæstv. ráðh. með þetta og hæstv. ríkisstj. En skýringin er ósköp einföld, þessi: Það er dregið úr fjárfestingum á þessum mikilvægu sviðum og það er ausið, eins og ég sagði áðan, slíkum afla upp úr hafinu að við náum betri jöfnuði á viðskiptareikningi okkar við útlönd en áður.

Um verðbólguna vil ég segja það, að mér finnst satt að segja heldur fátt sem hæstv. ríkisstj. hefur að hæla sér af á því sviði. Verðbólgan var á þriggja mánaða fresti milli 9 og 10% þegar ríkisstj. tók við og hún er það núna á þriggja mánaða fresti. Hún hefur að vísu farið upp og niður eins og jó-jó í tíð núv. ríkisstj. Ríkisstj. hefur tekist að halda verðbólgunni núna á svipuðu róli og hún var í fyrra um sama leyti, áður en kom til kjarasamninga. Kjarasamningar tókust í fyrra eftir lengra þóf en dæmi eru til um og ekki var fyrr þornað blekið á undirskrift þeirra kjarasamninga en ríkisstj. var búin að kippa þeim til baka með 7% skerðingunni 1. mars. Að þessu leyti hefur ríkisstj. náttúrlega náð árangri, það er alveg rétt. Hún náði árangri, en með aðferðum sem hún dæmdi svo hart hjá annarri ríkisstj. að hún samþykkti kjörorðið: „Samningana í gildi“, þ. e. þeir flokkar sem þá voru í stjórnarandstöðu. En þeir gera núna kröfu um að ná þeim samningum sem ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar átti að láta menn hafa 1978. Nú eiga þeir að nást eftir tvö ár héðan í frá. Það er náttúrlega ágætt að menn skuli gera svona miklu minni kröfu til sjálfs sín en hv. þm. Geirs Hallgrímssonar sem bar hér nokkuð á góma í ræðu hv. formanns þingflokks Alþb.

Ég veit ekki hvort ég á að fara hér nánar út í þetta með verðbólguna. Við vitum það allir, að sú tala, sem við erum að tala um í dag, er pappírstala. Fiskverð er óleyst bæði núna og um áramót. Það dæmi er óleyst, hvernig á að ná endum saman hjá atvinnuvegunum. Það verður að gera með einhverjum hætti. Það dæmi er óleyst, hvernig á að semja á almennum vinnumarkaði. Og mér þætti líklegt að ekki stæði lengi sá draumur að verðbólgan sé í svipuðu fari og hún var þegar ríkisstj. tók við, eins og hún er núna á þriggja mánaða fresti, þ. e. á milli 9 og 10% á pappírnum, fyrir utan allt vísitölukarpið sem hæstv. ríkisstj. hefur gert sig seka um, en ég hirti ekki um að tíunda hér.

Ég tek undir það með hv. þm. Eyjólfi Konráði Jónssyni, þegar svo er ástatt, að tekjur útflutningsfyrirtækja hafa hækkað um 65% eða tæplega það á sama tíma sem inniendur kostnaður hækkar um 100%, er gengi íslensku krónunnar auðvitað fallið. Það eru alveg hreinar línur. Hvort það er einhver lækning að fella gengið núna, það er allt önnur saga. Ég er reiðubúinn að tala sérstaklega um það mál. En ef það kostar 100% meira núna að afla gjaldeyris sem fyrirtæki fá ekki nema 65% í íslenskum krónum fyrir í hækkunum, þá er gengið fallið miðað við það sem það var þegar ríkisstj. tók við. Það er svo allt önnur saga, til hvaða ráðstafana á að grípa eins og sakir standa.

Hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson vildi líkja okkur við Margréti Thatcher. Það er kannske ekki leiðum að líkjast, en mér datt í hug að það væri ekkert ólíkt því ef ég segði að hv. þm. bæri ábyrgð á þeirri stefnu sem keyrt hefur Pólverja fram á heljarþröm. (Gripið fram í.) Hv. þm. segist vera sósíalisti og Pólverjar segjast vera sósíalistar. Þeir segjast aðhyllast kenningar sósíalismans til þess að stjórna sínum efnahagsmálum. Það er svipuð alhæfing ef ég segði þetta. Ég ætla ekki að gera það. En mér fannst það dálítið merkilegt þegar forseti Alþýðusambands Íslands kemur hingað heim og segir við Íslendinga: Það er tvennt sem Pólverjar eru hræddir við og þó sýnu hræddari við annað: herafla Sovétríkjanna og hungurvofuna — eftir áratuga tilraunastarfsemi með sósíalisma.

Ef Ólafur Ragnar Grímsson vill ræða við mig um íslensk efnahagsmál á sama hátt og hann gerði hérna áðan, þá er mér ekkert að vanbúnaði að draga jafnaðarmerki á milli stefnu Alþb. og stefnu sósíalista í Póllandi eins og hann gerði við stefnu okkar sjálfstæðismanna og Margrétar Thatcher. Það er allt önnur þjóðfélagsgerð í Bretlandi. Og þó að við höfum ákveðin grundvallaratriði sem við miðum við í okkar efnahagspólitík, þá er þar um allt annað að ræða en það sem við höfum verið að tala um að þurfi að gera hér á Íslandi. Það held ég að við getum orðið sæmilega sáttir um, við hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson.

Ég á sæti í þeirri hv. nefnd sem fær þetta tæknilega gengisfellingarfrv. hæstv. ríkisstj. til umfjöllunar, svo að ég held ég láti staðar numið.