19.12.1981
Sameinað þing: 39. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1896 í B-deild Alþingistíðinda. (1622)

165. mál, frestun á fundum Alþingis

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Ég vil ítreka það, að ég gagnrýndi almennt það virðingarleysi sem hæstv. ríkisstj. hefur sýnt þm., m. a. með því að hafa ekki samráð við stjórnarandstöðuna, ekki eingöngu varðandi flutning þessarar þáltill. um frestun á fundum Alþingis, heldur almennt um tilhögun þinghalds nú fyrir jólaleyfi. Ég fullyrði að það sé einsdæmi, að ríkisstj. hafi ekki haft samráð við stjórnarandstöðu undir slíkum kringumstæðum. Ég bendi á að afleiðingin af þessari vanrækslu ríkisstj. er að þinghald hefur verið með afbrigðum laust í reipunum síðustu daga og mál, sem ríkisstj. ætlaði að koma fram, hafa ekki náðst fram vegna lélegs undirbúnings af hálfu ríkisstj.

Það má segja að við höfum undir venjulegum kringumstæðum gengið út frá því, að þingi væri frestað frá og með jólum og fram í janúarmánuð. Á þeim tíma, sem ég var forsrh., það er rétt tilgreint, flutti ég tillögu — öll þau ár — um frestun á fundum Alþingis. Þá var efnahagsvandi, það er einnig rétt. En þrátt fyrir að fundum Alþingis var þessi fjögur ár frestað og þrátt fyrir að þá hafi verið við efnahagsvanda að glíma braut ríkisstj. aldrei það boðorð að sýna Alþingi virðingu, þá misnotaði ríkisstj. aldrei útgáfu brbl. og hafði alltaf fullt samráð við Alþingi og alþm., gagnstætt þeirri reynslu sem við höfum nú af hæstv. núv. ríkisstj.

Það er þess vegna ekki að ófyrirsynju að við mótmælum frestun funda Alþingis þegar svo stendur á sem nú og þegar ríkisstj. lætur í veðri vaka að til löggjafar komi, án þess þó að um það sé samstaða. Þegar slíkt ástand ríkir með þjóðinni er það ábyrgðarleysi að fresta fundum Alþingis og það er virðingarleysi gagnvart þingræði og lýðræði í landinu.