19.12.1981
Sameinað þing: 39. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1896 í B-deild Alþingistíðinda. (1623)
165. mál, frestun á fundum Alþingis
Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Það er örstutt sem mig langar til að koma hér að.
Ég heyrði að hæstv. forsrh. sagðist ætta að kalla saman Alþingi á, milli jóla og nýárs í nafni hæstv. ríkisstj. ef hún felur það greiða fyrir málum. Ég á ekki langa þingsögu að baki, en mér finnst í þessum ummælum felast hugmyndir sem ég kann lítt að meta. — Það segir að vísu í stjórnarskránni að þing eigi að kalla saman 15. dag febrúarmánaðar. Ugglaust er hægt að haga málum þannig, að þing komi aðeins saman örfáa daga á ári. Ég var í heimsókn í landi nokkru fyrir skömmu, í haust. Þar kemur þing saman tvisvar á ári tvo daga í senn til að hrópa húrra fyrir sjálfum alvaldi þeirrar þjóðar. Það er Kúba þar sem ríkir lögfræðingurinn Fidel Castro. Ég bið menn um að athuga það. (Gripið fram í.) Hann var það reyndar ekki og ekki dúx heldur. — En án gamans held ég að menn ættu að íhuga rækilega hvort það er ekki kominn tími til vegna síendurtekinna brbl. um áramót að breyta venju, sem vissulega er fyrir hendi eins og réttilega kom fram í umr. áðan, þannig að þm., sem eru á fullum launum alveg eins og aðrir landsmenn á þessum tíma, komi fyrr til þings og taki þátt í því starfi sem þeim ber að sinna, en það er löggjafarstarfið.
Þetta var það eina sem mig langaði til að koma á framfæri, og ég harma að yfirlýsingar skuli vera unnt að gefa eins og fólust í þessum ummælum hæstv. forsrh.