20.01.1982
Efri deild: 33. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1903 í B-deild Alþingistíðinda. (1639)

134. mál, Flutningsráð ríkisstofnana

Eyjólfur Konráð Jónsson:

Herra forseti. Ég skal ekki tefja tímann lengi og þarf ekki að ítreka það sem ég sagði við umr. þegar hún hófst fyrir áramótin, að auðvitað erum við meira og minna og kannske algerlega sammala um að það þurfi að flytja fleiri ríkisstofnanir út á land eða a. m. k. að sporna við því að ríkisfyrirtæki, sem þar eru, séu flutt hingað suður.

Það kom fram hjá frsm. og flm. í ræðu hans áðan, að við ræddum það talsvert fyrir áramótin að verið væri að flytja aðalstöðvar Síldarverksmiðja ríkisins frá Siglufirði til Reykjavíkur. Þá tók hæstv. utanrrh. m. a. til máls og sagði orðrétt.:

„Ég hef alltaf verið andvígur öllum flutningi þaðan og ég er tilbúinn að styðja að því, að haldið verði fast við lög ef slíkt kemur til kasta ríkisstj. Ég hef ekki orðið var við að þetta mál væri þar til umfjöllunar, en einfaldast væri sjálfsagt, þar sem hér er um skýr lagaákvæði að tefla, að þm. kjördæmisins skrifuðu viðkomandi ráðh. og bentu honum á þetta lagaákvæði, og þá ætti ekki að vera nein fyrirstaða á því að það verði farið eftir lögum.“

Þetta var drengilega mælt af hæstv. utanrrh., eins og hans er von og vísa. Að sjálfsögðu skrifuðum við þm. úr þessu kjördæmi hæstv. sjútvrh. og kröfðumst þess, að staðið yrði við lög í þessu efni og skrifstofa Síldarverksmiðjanna ekki flutt til Reykjavíkur. Engu að síður hefur það nú gerst, að a. m. k. einn starfsmaður verksmiðjanna hefur verið fluttur hingað suður og Siglfirðingar telja að leggja eigi skrifstofu verksmiðjanna á Siglufirði niður. Einmitt nú í dag eru staddir í höfuðborginni fulltrúar bæjarstjórnar Siglufjarðar, efstu menn allra lista þar í síðustu kosningum, forustumenn allra stjórnmálaflokka í bæjarstjórn Siglufjarðar, og eiga fund núna á eftir einmitt með sínum þm. og munu knýja á um að lögum verði framfylgt í þessu efni. Ég taldi rétt af því tilefni, af því að frsm. gat líka um þetta sérstaka dæmi, að vekja á þessu athygli. Í hópi þm. Norðurlands vestra eru tveir ráðh. og sá þriðji hefur lýst stuðningi við það, sem er auðvitað sjálfgefið, að lögum landsins skuli hlíta og hindra þessa aðgerð. Þess vegna á ég von á að ríkisstj. muni á næsta fundi sínum, sem var talið að verði á morgun eða föstudaginn, — ég geri ráð fyrir að það séu alltíðir fundir í ríkisstj. nú og ekkert úrræðaleysi a. m. k. á þeim vettvangi, — hún muni þar taka fyrir þennan flutning suður.

Menn segja kannske að þetta sé lítið dæmi og menn eigi ekki að vera að eyða löngum tíma í að ræða þetta hér á hinu háa Alþingi. En þetta er ekkert lítið dæmi. Ef það líðst að aðalstöðvar ríkisfyrirtækis, sem hefur sína meginstarfrækslu á öðrum stað úti á landi, verði fluttar til Reykjavíkur af því að menn vilja heldur búa þar og stunda sín skrifstofustörf þar, þá kemur auðvitað annað í kjölfarið. Við skulum gá að því að framleiðsla Síldarverksmiðja ríkisins er líklega að 2/3 á Siglufirði. Þar er langstærsta verksmiðjan sem hefur langmestu vinnsluna. Ef það er ekki hægt að hugsa sér að þessi skrifstofa, sem þar hefur alla tíð verið, megi vera þar áfram hlýtur eitthvað annað á eftir að koma. Það er miklu þýðingarmeira að hindra það gerræði að flytja skrifstofu Síldarverksmiðja ríkisins til Reykjavíkur en að samþykkja einhverja till. eða eitthvert frv. Það er að sýna í verki að við ætlum ekki að líða að slík stofnun sé flutt frá þeim stað sem hún lögum samkvæmt og eðli málsins samkvæmt á að vera á. Þess vegna treysti ég því, að þegar hæstv. ríkisstj. tekur þetta mál fyrir á næsta fundi sínum væntanlega, því að ég veit að þá ósk og jafnvel kröfu munu forustumenn í bæjarmálum Siglfirðinga bera fram nú á eftir, þá verði hendur látnar standa fram úr ermum og þetta verði stöðvað.