20.01.1982
Efri deild: 33. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1905 í B-deild Alþingistíðinda. (1641)
163. mál, tollskrá
Flm. (Helgi Seljan):
Herra forseti. Á þskj. 217 hef ég leyft mér að flytja frv. til l. um breyt. á lögum nr. 120/1976, um tollskrá, með síðari breytingum, ásamt þeim hv. þm. Davíð Aðalsteinssyni, Salome Þorkelsdóttur og Karli Steinari Guðnasyni. Hér er um að ræða einfalda viðbót við 37. tölul. 3. gr. í tollskrárlögum, þar sem ný málsgr. komi er orðist svo:
„Að fella niður gjöld af öryggis- og hjálpartækjum fyrir sjón- og heyrnarskerta. Fjmrn. skal hafa samráð um framkvæmdina við augndeild Landakostsspítala og Tryggingastofnun ríkisins, sé um tæki fyrir sjónskerta að ræða, og Heyrnar- og talmeinastöð Íslands, sé um heyrnarskerta að ræða.“
Grg. fyrir þessu frv. okkar flm. er frá þeim manni sem gerst þekkir nú, held ég, til þeirra mála sem snúa að heyrnarskertum, þ. e. frá 1ngimar Sigurðssyni deildarstjóra í heilbrmrn., en hann er jafnframt formaður stjórnar Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands. Ég vil leyfa mér — með leyfi forseta — að lesa þessa grg. yfir því hún gefur í raun og veru nokkuð glöggt til kynna hvað við er átt með þessari breytingu, en þar segir Ingimar Sigurðsson:
„Þeir, sem búa við sjón- og heyrnarskerðingu, þurfa á ýmiss konar sérbúnaði að halda. Mjög er misjafnt á hvern hátt hið opinbera tekur þátt í kostnaði vegna slíkra tækja, allt frá fullum til engra greiðslna. Sé um að ræða hjálpartæki fyrir sjónskerta fer um slíkar greiðslur samkvæmt almannatryggingalögum, nr. 67/1971, með síðari breytingum, þ. e. tryggingaráð tekur ákvörðun um þátttöku hins opinbera í kostnaði vegna slíkra tækja. Sé hins vegar um að ræða hjálpartæki fyrir heyrnarskerta fer um greiðslur hins opinbera samkv. lögum nr. 35/1980, um Heyrnar- og talmeinastöð Íslands, en samkvæmt þeim skal ráðh. setja reglur um þátttöku ríkisins í kostnaði við útvegun þeirra. Í reynd hefur eingöngu verið tekin afstaða til þátttöku ríkisins varðandi heyrnartæki. Önnur hjálpartæki fyrir heyrnarskerta eru greidd af Tryggingastofnun ríkisins að höfðu samráði við Heyrnar- og talmeinastöðina á sama hátt og greinir frá um hjálpartæki fyrir sjónskerta, séu þau á annað borð greidd á einhvern hátt.
Þrátt fyrir það að hið opinbera standi undir verulegum kostnaði vegna nefndra hjálpartækja er kostnaður notenda í mörgum tilvikum talsverður. Má hér sem dæmi nefna að sérhönnuð vekjaraklukka með vibrator fyrir heyrnarskerta, sem kostar 440 danskar kr., kostar hér með öllum álagningum 1464 kr. Engum blandast þó hugur um að slík tæki eru heyrnarskertum nauðsynlegri en venjuleg vekjaraklukka velheyrandi. Fyrir því verður að teljast óeðlilegt að hið opinbera hafi tekjur af slíkri fötlun sem sjón- og heyrnarskerðing er.
Verulegur fjöldi þarf á slíkum öryggis- og hjálpartækjum að halda og má sem dæmi nefna að um 3000 menn voru skoðaðir á vegum Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands fyrra misseri yfirstandandi árs og úthlutað var tæpum 1000 tækjum. Er hér um verulega aukningu að ræða frá fyrra ári, en eigi að síður er langur biðlisti við stofnunina.
Lagt er til að fjmrn. setji nánari reglur um framkvæmdina að höfðu samráði við augndeild Landakotsspítala, Tryggingastofnun ríkisins og Heyrnar- og talmeinastöð Íslands, eftir því hvort um er að ræða tæki fyrir sjónskerta eða heyrnarskerta. Fyrst og fremst þarf að setja reglur um þau tæki, sem falla eiga hér undir, og verður að tryggja samráð við þá aðila, er annast þessi mál, til þess að tryggja að um misnotkun verði ekki að ræða. Í reynd þyrfti að leita samþykkis þessara aðila í hverju tilviki. Enn fremur þyrfti að setja reglur um það, í hvaða tilvikum beita ætti þessari niðurfellingarheimild, en það yrði í þeim tilvikum þar sem menn verða að standa sjálfir straum af kostnaði við útvegun slíkra tækja, ýmist að öllu leyti eða að hluta til. Þar sem ríkið sjálft tekur þegar verulegan þátt í kostnaði við útvegun slíkra tækja og greiðir þar með í eigin vasa bæði aðflutningsgjöld og söluskatt yrði hér ekki um verulega tekjuskerðingu að ræða fyrir ríkið, nema í þeim tilvikum þar sem ákveðið yrði að fella niður aðflutningsgjöld og söluskatt af gleraugum og efni til þeirra, en í fyllsta máta er ósanngjarnt að þeir, sem þurfa á slíkum tækjum að halda, greiði aðflutningsgjöld og söluskatt eins og um munaðarvarning sé að ræða, sérstaklega þegar haft er í huga að hið opinbera tekur engan þátt í kostnaði við útvegun þeirra nema í undantekningartilvikum.
Væri við hæfi,“ segir í lokin, af því að þetta var gert fyrir áramót, „að koma nefndri niðurfellingarheimild í lög áður en ár fatlaðra líður í aldanna skaut.“
Það er í raun og veru litlu við þetta að bæta. Það er sagt hér, að nánari grein verði gerð fyrir málinu í framsögu. Ég vil þá greina frá því, að tilefni þessa er fyrst og fremst að fulltrúar frá þessum samtökum voru á ágætum fundi með ýmsum þm. á sínum tíma, á nokkuð fjölmennri ráðstefnu úti á Loftleiðum, þar sem þeir ræddu einmitt mörg þau vandamál sem þeirra fötlun varða. Sérstaklega komu þeir inn á ýmis bein atriði sem væri hægt að leiðrétta með einföldum lagabreytingum. Í framhaldi af þessum fundi komu svo fulltrúar frá félagi heyrnarlausra að máli við okkur nokkra alþm. og óskuðu eftir því, að við flyttum þetta mál hér inn í sali þingsins og reyndum að ná fram einhverri breytingu á tollskrá og einnig varðandi söluskatt á síðara stigi, ef okkur tækist að ná því fyrra fram. Við tókum þessu erindi að sjálfsögðu vel. Niðurstaðan varð sú, að ég leitaði til Ingimars Sigurðssonar um frv.-texta og grg. einnig þannig að við gætum búið þetta sem best úr garði. Að sjálfsögðu reiknum við með því, að öll tæknileg útfærsla á þessum lið, eins og tekið er fram í grg., komi svo síðar í ákveðinni reglugerð eða ákveðnum reglum sem fjmrn. setur ásamt deild Landakotsspítala og Heyrnar- og talmeinastöð Íslands.
Ég taldi það öruggara, áður en við fluttum þetta mál hér, að hafa það samráð við hæstv. fjmrh. og vita hvað hann segði um slíka breytingu. Ég benti þar á það, sem ég geri hér einnig, að þegar eru fyrir nokkur ákvæði um heimildir af þessu tagi, m. a. alveg sérstaklega sem snerta sjónskerta. Við flm. vorum á tímabili að hugsa um að fella jafnvel þá mgr. niður og setja þessa víðtæku heimild hér í staðinn, en félagsskapur blindra og sjónskertra, Blindrafélagið, taldi að í því ákvæði væri fleira tekið sem þá snerti þannig að við bættum aðeins við 2. mgr. þar sem bæði falla undir heyrnarskertir og sjónskertir. Fjmrh. tók þessu máli vel og taldi það sjálfsagt. Ég get þessa hér vegna þess að mér þykir það nokkuð gott veganesti fyrir þá hv. nefnd sem fær þetta mál til meðferðar, því að samkvæmt því, sem venja er um mál af þessu tagi, mun þetta mál fara til umsagnar hjá fjmrn. Er þá ekki lakara að þeir ráðuneytismenn, sem um þetta verða spurðir, m. a. um tæknilega útfærslu á þessu, viti að hæstv. fjmrh. hefur lýst þarna yfir samþykki sínu, enda um mikið sanngirnismál að ræða.
Frá því að þetta frv. var flutt hafa okkur borist ályktanir frá félagi heyrnarlausra sem telja þetta rétt skref í áttina, en benda jafnframt á það, að enn sé söluskatturinn eftir af þessum tækjum. Við munum að sjálfsögðu taka það til athugunar síðar, ef þetta mál nær fram að ganga. Ég held að þetta sé samt sem áður fyrsta sporið og við eigum að stíga það núna.
Ég held að ég orðlengi þetta ekki frekar, en vil leyfa mér að óska þess, að málinu að lokinni þessari umr. veði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.