20.01.1982
Neðri deild: 32. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1910 í B-deild Alþingistíðinda. (1647)
167. mál, almannatryggingar
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Frv. það, sem hér er til umr., er að innihaldi, eins og hæstv. ráðh. gat um, óhjákvæmileg breyting á lögum um almannatryggingar vegna barnalaga, nr. 9 frá 1981. Þar sem mál þetta kemur til heilbr.- og trn., þar sem ég á sæti, sé ég ekki ástæðu til þess að bera fram formlega brtt. hér í hv. deild, en ég mun bera fram brtt. í nefndinni. Sú breyting, sem ég hef í huga, er að setningin í 1. mgr. 1. gr. frv.: „enda eigi barnið lögheimili hér á landi“ falli brott. Skal ég nú skýra ástæðuna fyrir þessari breytingu örlítið nánar.
Við langflesta skilnaði er annað foreldri gert meðlagsskylt. Nú getur svo farið að sama foreldri verði 75% öryrki og meðlag það, sem því bar að greiða, verður þá að barnalífeyri. Í nokkrum slíkum tilvikum hefur það foreldri, sem forræði barnanna fékk, flust úr landi, en það breytir í engu meðlagsskyldi hins foreldrisins. Væri barnið búsett hér á landi væri forráðamanni þess greiddur barnalífeyrir, en á meðan ofangreind setning er í lögunum er ekki unnt að greiða barnalífeyri með barni sem ekki á lögheimili hér á landi. Hið sama gildir um barnalífeyri vegna látins foreldris. Séu börn ekkjunnar, ekkilsins eða öryrkjans búsett erlendis er enginn barnalífeyrir greiddur. Þetta á einkum við og veldur mestum vandræðum í löndum utan Skandinavíu, þar sem ekki er gagnkvæmur tryggingasamningur enn þá, en þó eru kröfur um ákveðinn búsetutíma þar einnig skilyrði fyrir greiðslu, svo að einnig þar geta komið skörð í greiðslurnar. Öryrkinn er eftir sem áður meðlagsskyldur og verður því — eins og lögin eru nú og frv. þetta gerir einnig ráð fyrir— að greiða meðlag af örorkubótum sínum. Þetta tel ég engan veginn réttmætt og mun því gera till. um breytingu í hv. nefnd.
Að öðru leyti fæ ég ekki séð að svo stöddu að annað sé athugavert við þetta frv. Það er að vísu ljóst, að skarð kemur í greiðslu vegna þeirra barna sem urðu 17 ára á árinu 1981, en barnalögin tóku ekki gildi, sem kunnugt er, fyrr en 1. jan. s. l. Við þessu verður ekki gert. Þetta frv. hlýtur að sjálfsögðu að fylgja dagsetningu á gildistöku hinna fyrri laga, svo að ég kem ekki auga á að við því verði gert. En ég vil taka undir orð hæstv. trmrh., að það er ákaflega brýnt að frv. fái skjóta afgreiðslu í þinginu. Ég vil skora á bæði hv. nm., sem sitja í nefndinni í Nd. og jafnframt beina þeirri ósk til þeirra Ed.-manna, að þetta frv. fái nokkru hraðari afgreiðslu en almennt gerist, þar sem barnalögin tóku gildi 1. jan. og Tryggingastofnun ríkisins hefur þegar orðið fyrir verulegum óþægindi um vegna þess að þessar greiðslur hafa ekki hafist.