20.01.1982
Neðri deild: 32. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1913 í B-deild Alþingistíðinda. (1650)
94. mál, þingsköp Alþingis
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Mér finnst fara vel á því á fyrsta starfsdegi þingsins á nýju ári að rætt sé um þingsköp Alþingis og vinnubrögð á hv. Alþingi. Ég hef áður úr þessum ræðustól, á s. l. vetri, lýst skoðunum mínum á þeim hugmyndum sem fram koma í frv. hv. þm. Benedikts Gröndals. Ég er sammála þeim sjónarmiðum, sem koma fram í frv. hans, í öllum meginatriðum. Án þess að þar sé kannske endilega fundin sú lausn sem er 100% rétt í öllum tilvikum, þá held ég að þetta frv. hreyfi við málinu, ýti við mönnum að hugleiða stöðu Alþingis og hversu þar er að málum unnið.
Ég vil nota þetta tækifæri til þess að segja það, að ég held að ástæðulaust sé að láta þetta frv. — eins og það er hér flutt — daga uppi einu sinni enn. Ég held að það séu svo einfaldar breytingar, sem hér er verið að gera till. um, að það ætti að vera þarflaust fyrir þm. að velkjast með þetta miklu lengur, og ætti að vera unnt að ná um það samkomulagi að breyta nokkuð þingsköpum Alþingis í þá átt sem hér eru gerðar tillögur um. Ég hef ekki orðið var við það í viðtölum mínum við þm. á undanförnum mánuðum, eða þann tíma sem ég hef setið hér á Alþingi, að það sé andstaða við hugmyndir af því tagi sem hér er hreyft — ekki alvarleg andstaða. Ég sé ekki í rauninni hvers vegna ekki ætti að vera unnt að afgreiða málið eða ná samkomulagi um einhverjar lagfæringar, því að það er að sjálfsögðu mjög margt sem má betur fara í störfum þingsins.
Ég er hins vegar sammála hv. þm. Benedikt Gröndal um að það er ástæðulaust að rasa um ráð fram í þessum efnum og vera að stokka þetta upp svo að segja ár frá ári. En ég hygg að þetta mál sé þannig vaxið að hér sé stigið lítið og skynsamlegt skref til þess að störf þingsins fari betur fram og séu skilvirkari en verið hefur.
Að lokum vil ég þakka hv. þm. Benedikt Gröndal fyrir að hann skuli flytja þetta mál inn á þingið. Ég vona að það fái svo góða afgreiðslu að því verði lokið á yfirstandandi þingi og verði látið reyna á það, hver er vilji löggjafans í þessu máli.