26.10.1981
Neðri deild: 6. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 244 í B-deild Alþingistíðinda. (167)
43. mál, brunavarnir og brunamál
Magnús H. Magnússon:
Herra forseti. Ég tel að það frv., sem hér er til umr., stefni að allt of miklu bákni, að allt of miklum tvíverknaði í þjóðfélaginu og þar af leiðandi allt of miklum tilkostnaði. Ég tel að brunavarnirnar eigi að vera deild í nýstofnuðu vinnustaðaeftirliti ríkisins.
Mér finnst ótækt að láta marga eftirlitsmenn vera að skoða sömu hlutina á sama stað. Það er oft hægt að leysa ákveðin vandamál á mismunandi hátt þó að báðar lausnirnar séu góðar.
Við getum hugsað okkur að eftirlitsmenn frá vinnustaðaeftirlitinu komi og segi að það eigi að leysa málið svona, svo komi eftirlitsmenn frá Brunamálastofnun og segi að það eigi að leysa málið hinsegin. Hvor tveggja lausnin er í sjálfu sér fullnægjandi, en þær geta stangast á, og hvorri á þá yfirmaður vinnustaðarins að fara eftir? Lögum samkv. verður hann að fara eftir báðum þó að þær stangist algjörlega á og þó að þær eigi hvor um sig að leysa sama vandamálið.
Við megum ekki gleyma því, að eftirlit með öryggi á vinnustöðum og brunavarnaeftirlit er mjög samtvinnað, því að eldvarnir eru vitaskuld mjög ríkur þáttur í öryggi á vinnustöðum. Ég tel að eftirlitsmenn vinnustaðaeftirlitsins eigi jafnframt að vera eftirlitsmenn með brunavörnum og að brunavarnaeftirlitsmenn eigi jafnframt að vera eftirlitsmenn með öryggi á vinnustöðum. Ef eftirlitsmennirnir, hvorir fyrir sig, þurfa viðbótarmenntun, þá ætti að vera auðvelt að leysa það.
Í frv. stendur í 3. gr. e að Brunamálastofnun eigi að yfirfara alla uppdrætti að nýbyggingum, viðbótum og meiri háttar breytingum á öllum — eða svo til öllum mannvirkjum öðrum en íbúðarhúsnæði. Hér er verið að stofna til feiknalegs skriffinnskubákns. Slökkviliðsstjórar eiga í dag sæti í byggingarnefndum, þar sem teikningarnar eru skoðaðar og staðfestar, og þeir geta gert sínar athugasemdir við teikningarnar með tilliti til eldvarna og gera það. Að láta aðra stofnun fara yfir þetta allt saman aftur er allt of mikill tvíverknaður og verður allt of dýrt. Slökkviliðsstjórar eiga aðvitað að geta vísað ákveðnum teikningum til frekari skoðunar, ef þeir telja þörf á, en að senda allar teikningar til skoðunar aftur, það finnst mér leiða til þess, að allt of mikið bákn muni upp af þessu rísa.
Í frv. er gert ráð fyrir verulegri hækkun brunavarnagjaldsins, eins og hæstv. ráðh. kom inn á í sinni framsögu, og er það út af fyrir sig skiljanlegt vegna þess að brunatryggingariðgjöld, en brunavarnagjaldið er ákveðinn hluti af þeim, hafa á síðustu 10–12 árum lækkað að raungildi um 50% eða nálægt því. Auk þess hafa þau lækkað vegna þess að hús eru í vaxandi mæli tengd við hitaveitur. Lækkunin er því mjög veruleg og þess vegna skil ég óskir um hækkun.
Mér finnst alltaf hvimleitt þegar verið er að skylda sveitarfélögin til að gera þetta og gera hitt og skylda þau til þess að taka að sér þennan og hinn kostnaðinn og þegar svo jafnframt, eins og í þessu tilviki, er verið að taka af þeim alla möguleika á að hafa áhrif á þetta með því að gera brunavarnanefndir sveitarfélaganna áhrifalausar. Mér finnst alveg furðulegt að gera þetta allt saman án samráðs við samtök sveitarfélaga.
Herra forseti. Ég er auðvitað samþykkur frv. að því leytinu til, að ég tel mikla nauðsyn aukinna brunavarna og stóraukinnar fræðslu. Ég er sammála því, að stóraukin fræðsla verði á þessu sviði. En ég tel að þetta allt saman sé hægt að gera á mun ódýrari hátt en frv. gerir ráð fyrir. Og ég tel, eins og ég sagði áðan, að brunavarnirnar eigi að vera deild í vinnustaðaeftirliti ríkisins. Það verður mun hagkvæmara og við losnum þá við óþarfa tvíverknað.