25.01.1982
Neðri deild: 33. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1953 í B-deild Alþingistíðinda. (1683)
155. mál, námslán og námsstyrkir
Vilmundur Gylfason:
Herra forseti. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að undanfarin mörg ár hefur verið mikil óvissa um fjárþörf og fjárútvegun fyrir Lánasjóð ísl. námsmanna nánast á hverju hausti, og kemur þar til að ekki hefur verið fastmótuð stefna um það, hver skyldu í raun og veru vera markmið þessa sjóðs. Fyrir vikið hefur nánast á hverju sumri og hverju hausti upphafist annars vegar þrýstingur af hendi þeirra, sem hagsmuna hafa átt að gæta og óttast hafa — og það með réttu — að á hagsmuni sína kynni að verða gengið, og hins vegar hefur staðið ríkisvald sem eðli málsins samkv. hefur þurft að gæta þess fjár sem því hefur verið trúað fyrir. Þessi óvissa hefur auðvitað sett margan manninn í mikinn vanda. Og hvað sem að öðru leyti verður um þetta frv. sagt og með hverjum hætti sem menn vilja um það deila efnislega, þá er hér þó gerð alvarleg tilraun til að marka stefnu í þessum efnum fyrir næstu árin a. m. k. Og sú pólitík, sem í þessu frv. felst, er áreiðanlega af hinu góða.
Eins og hæstv. menntmrh. hefur rakið í sinni framsöguræðu var á árinu 1980 skipuð fjölmenn nefnd sem um þessi mál fjallaði. Menn voru skipaðir víða að í þá nefnd, og eins og raunar skýrt kemur fram í grg. með frv. teygðu menn sig til samkomulags, því að þrátt fyrir að ýmsu leyti skiptar skoðanir þeirra, sem í nefndinni voru, var þar algjört samkomulag um að heildstæð stefna í þessum efnum mundi bæði verða Lánasjóðnum sem stofnun til góðs, en auðvitað miklu fremur því einstaka námsfólki sem hefur notið og kemur til með að njóta þjónustu hans á allra næstu árum.
Nú er kannske rétt að staldra örlítið við. Til skamms tíma var svo, að fólk gat fengið framfærslulán sem nam 85% úr Lánasjóðnum. Það var síðan hækkað fyrir nokkru í 90%. Hér erum við auðvitað engu að síður að tala um lágar tölur. Á núgildandi verðlagi mun það vera svo, að þegar þessi 10% hafa verið dregin frá stendur eftir lán sem nemur 4 300 kr. á mánuði. Hér erum við að tala um tölur sem eru allverulega miklu lægri en hin lægstu skráðu laun í landinu. Auk þess má bæta því við það ágæta sögulega yfirlit sem hæstv. menntmrh. gaf hér áðan, að allan þennan tíma sem hann nefnir hafa þjóðfélagsaðstæður auðvitað verið að breytast að mjög verulegu leyti og þá fyrst og fremst þannig, að á þessum tíma hefur það gerst, að fólk verður æ yngra þegar það stofnar heimili, og svo hitt, að æ algengara er að báðir makar séu í námi og það gerir auðvitað þetta efnahagslega dæmi erfiðara fyrir það fólk sem hlut á að máli. Þessa samfélagslegu þróun ber auðvitað að hafa í huga þegar verið er að gera sér grein fyrir því, hvernig þörfin fyrir þá námsaðstoð, sem hér er verið að ræða, hefur sífellt verið að aukast og hvernig segja má raunar að tilgangur Lánasjóðsins hafi verið að breytast allan þennan tíma.
Eins og hæstv. ráðh. gat um hafa orðið tafir á framlagningu frv. og það er lagt fram óbreytt nema að því leyti að gert er ráð fyrir að gildistaka þess verði tveimur árum seinna en nefndin lagði til á sínum tíma. Gerði hæstv. ráðh. grein fyrir ástæðum þess.
Ég vil taka undir sérhvert atriði sem hæstv. ráðh. sagði almennum orðum um félagslegan tilgang og þjóðfélagslega nauðsyn þeirrar stofnunar, sem hér er verið að ræða um, og þann tilgang námslána almennt og yfirleitt talað að eyða þjóðfélagslegu misrétti og koma málum svo fyrir af þjóðfélagsins hálfu að sérhver einstaklingur, óháð búsetu og efnahagslegum skilyrðum hvers konar, eigi jafnan rétt á við sérhvern annan til þess að komast til náms. Í því skyni hefur verið komið upp félagslegu kerfi og það kerfi hefur raunar verið að aukast með hverju árinu. Hins vegar væri vitaskuld æskilegast að félagslegt kerfi af þessu tagi væri svo úr garði gert að eftir einhvern ákveðinn tíma væri hægt að koma málunum svo fyrir að ekki þyrfti greiðslur úr ríkissjóði nema til þess að kosta eðlilega fjölgun og til þess að kosta þau afföll sem auðvitað hljóta ævinlega að eiga sér stað. Má þar nefna dauðsföll og ýmsar aðrar ástæður sem ekki stendur í mannlegu valdi að ráða við. Hér er átt við það, að hið æskilega markmið er auðvitað að lánin séu verðtryggð til fulls og að kerfið vinni í raun þannig að fyrrv. námsmenn, fyrrv. notendur og njótendur þessa kerfis, greiði inn í það lánin til hinna sem nota það eða njóta vilja í nútímanum. Hæstv. ráðh. drap einmitt á þetta atriði og nefndi það sem æskilegt markmið. Undir það vil ég taka.
Það er raunar frá því greint í grg. með frv., að innan nefndarinnar hafi verið nokkur ágreiningur einmitt um þetta efni, þ. e. með hverjum reikningslegum hætti skyldi svo frá gengið að þetta markmið næðist. Þetta getur verið bæði erfitt og flókið og þetta markmið getur rekist á við önnur markmið. Engu að síður var eftir miklar umræður látið staðar numið og sæst á þá málamiðlun sem hér hefur verið lýst. Hún hefur þann kost, að á nokkrum árum mun endurgreiðsluhlutfallið vaxa úr 66%, sem það mun núna vera í, í 88%. Þetta mun gerast á 20 árum eða svo. Og það er augljóst að eins og frv. er úr garði gert verður enn að koma til allnokkur brúun ríkisvaldsins. En um þetta atriði eru skiptar skoðanir og frekari ágreiningur þar um var látinn víkja fyrir mikilvægi þess, að hægt væri að leggja frv. fram í þeirri mynd sem hér er gert.
Höfuðkostur frv., eins og það er kynnt og hér hefur verið mælt fyrir, er kannske fyrst og fremst sá, að hér er um að ræða stefnu af hálfu ríkisvaldsins fyrir næstu árin a. m. k. Þetta er mjög mikilvægt atriði, ekki síst með tilliti til þeirrar ólgu sem gætt hefur á hverju hausti undanfarin ár af þeim ofureðlilegu ástæðum, að þúsundir manna — í þessu tilfelli námsmanna — hafa verið í mikilli óvissu um framtíð sína vegna þess með hverjum hætti sjóðurinn hefur verið rekinn.
Í öðru lagi er það mjög mikilvægur kostur við þetta frv., að gert er ráð fyrir að hin svokallaða reiknaða fjárþörf sé færð úr 90% upp í 100%. Ég nefndi í upphafi máls míns að viðmiðunartölurnar væru auðvitað mjög lágar. Maður skyldi því ætla að í framhaldi af samþykkt frv. yrði hafist handa um að kanna mjög rækilega þann grundvöll sem þessir reikningar hvíla á. En eins og þessi mál öll eru í pottin búin og eins og þjóðfélagsleg staða námsmanna er, þá er auðvitað bæði sjálfsagt og réttlátt að miðað sé við 100% í þessum efnum.
Í þriðja lagi er endurgreiðslum í sjóðinn hraðað allnokkuð, þó þannig að ekki komi illa við þá sem eiga að greiða.
Í fjórða lagi er lagt til að árleg endurgreiðsla af námsláni miðist við tiltekið hlutfall af útsvarsstofni næsta árs á undan endurgreiðsluárinu.
Og í fimmta lagi, sem ég hygg að námsmenn sjálfir leggi mikla áherslu á, er gert ráð fyrir lífeyrisréttindum þeim til handa, að vísu ekki fyrr en á árinu 1985, en það er þó alla vega byrjunin á þessum efnum.
Allt þetta tel ég vera mikla kosti við frv.
Gallarnir eru hins vegar tveir. Það er ekki farið hraðar í verðtryggingarátt en svo að stefnt er að því að innstreymið í sjóðinn verði 88%. Og það er ljóst, að það er ríkisvaldið sem þarf að brúa þetta bil. Af hverju er tekið svo djúpt í árinni að kalla þetta galla á frv.? Í fyrsta lagi koma til augljósar ríkissjóðsástæður, en einnig hitt, að það er mikið í húfi líka fyrir framtíð menntunar í landinu og fyrir framtíðarheill þessarar stofnunar að um hana sé friður og um hana sé ekki teljandi ágreiningur. Það, sem kannske mætti óttast, er að hjá þeim, sem fyrir utan þennan sjóð standa, í hann greiða en nota ekki fjármagn úr honum eða njóta aðstoðar, njóta ekki þess sem hann hefur að bjóða, veki það, að verðtryggingarstefnan skuli ekki vera keyrð til meiri hlítar en hér er gert ráð fyrir, tortryggni og beinlínis illvilja í garð þessa fyrirtækis. Og þetta síðasta sem ég nefndi þykir mér raunar skipta miklu máli um alla framtíð þessa fyrirtækis. Um leið og ég undirstrika skoðun mína á því hversu samfélagslega mikilvægu hlutverki þessi sjóður gegnir, finnst mér það raunar slæmt að ekki skuli hafa verið fært að láta þessa enda ná betur saman vegna þeirrar sannfæringar minnar, að ef það hefði tekist væru allar líkur á því, að um sjóðinn myndaðist meiri friður en kannske á eftir að verða á allra næstu árum.
Lánasjóður íslenskra námsmanna gegnir auðvitað feikilega mikilvægu hlutverki. Í nágrannalöndum okkar gætir í vaxandi mæli þjóðfélagslegra vandamála sem stafa af því, að menntað fólk fær ekki vinnu við sitt hæfi og eins og það hefur hlotið menntun til. Þessi vandamál hafa enn ekki knúið dyra h já okkur. Hins vegar má búast við að það sé ekki langt undan að við stöndum andspænis þeim. Og þau vandamál eru vitaskuld mun meiri og alvarlegri en þau sem við erum hér að ræða, þ. e. með hverjum hætti sjóður eins og sá, sem hér er til umræðu, skuli vera fjármagnaður. En því nefni ég þetta síðast talda atriði, að ég geri ráð fyrir að í allri umræðu um þróun þessa sjóðs á næstu árum eigum við eftir að standa frammi fyrir enn meiri vandamálum, þ. e. samhenginu á milli þeirra greina, sem fólk kýs að læra, og atvinnumöguleikanna, sem við blasa að námi loknu. Kjarni málsins er sá, að það eru mannréttindi að fá að læra það sem hugur fólks stendur til, og það eru einnig mannréttindi að svo sé sinnt fjárhagslegum þörfum fólks að það geti gengið að þessu námi án þess að hafa fjárhagslegar áhyggjur. Það er auðvitað algert aðalatriði þessa máls og annað þar með aukaatriði.
Eins og öll þessi mál eru í pottin búin stefnir þetta frv. til þeirrar áttar að bæta hag þessa námsfólks. Ég hef gert hér ákveðna fyrirvara við einstök atriði, en þegar allt er saman dregið hygg ég að þetta frv. sé mjög til bóta.
Ég vil svo aðeins að lokum, herra forseti, benda á eitt efnisatriði. Í 7. gr. frv. er talað um ábyrgð ábyrgðarmanns og sagt að hún falli niður þegar fyrsta greiðsla hefur að fullu verið greidd. Síðan segir með leyfi hæstv. forseta: „Eftir það er lánþegi einn ábyrgur fyrir greiðslu heildarskuldar.“ Mér hefur verið bent á að þetta atriði geti vafist fyrir í framkvæmd, einkum þegar um er að ræða lánþega sem sestur er að erlendis. Það getur verið mjög erfitt í slíkum tilvikum að nálgast hann. Ég veit að þetta er svolítið erfitt mál og getur verið tilfinningalegt atriði fyrir lántakann sjálfan, en þetta atriði mætti þó kannske líta á í nefnd.
Ég vil svo enn að lokum, herra forseti, minna á það, að sú nefnd, sem að þessu frv. vann, skilaði störfum haustið 1980. Hæstv. ráðh. minnti á fyrirvara nefndarmanna, í fyrsta lagi að þeir binda ekki hendur neinna annarra um þetta frv. og í öðru lagi hefðu óbundnar hendur um þær brtt. sem fram kynnu að koma við frv. En þegar allt er skoðað, forsaga þessa máls, hagsmunir námsfólksins sjálfs og barátta þess á undanförnum árum, þá stendur sannfæring mín til þess, að samþykkt frv., eins og það hér stendur, mundi vera mikið framfaraspor.