25.01.1982
Neðri deild: 33. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1956 í B-deild Alþingistíðinda. (1684)
155. mál, námslán og námsstyrkir
Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Ég er einn þeirra sem tóku þátt í starfi nefndar sem undirbjó það lagafrv. sem nú er til umr. hér í hv. deild, að vísu breytt af hendi ríkisstj. sem ekki hefur séð sér fært að leggja fram frv. í eitt og hálft ár. Það var reynt í starfi nefndarinnar að ná samkomulagi um ólík sjónarmið, og ég tel ástæðu til að láta koma fram að formaður nefndarinnar, fulltrúi hæstv. menntmrh., Eiríkur Tómasson, lagði sig fram um að slíkt gæti tekist. Sé ég ástæðu til að þakka honum fyrir samstarfið í nefndinni.
Hæstv. ráðh. hefur rakið sögu Lánasjóðs ísl. námsmanna og gert grein fyrir langflestum helstu efnisatriðum frv. Jafnframt fór hv. síðasti ræðumaður, Vilmundur Gylfason, fyrrv. menntmrh., orðum um efnisatriði frv. sem ég get að langmestu leyti tekið undir.
Mér finnst ástæða til, þegar það gerist að mál tefjast með þessum hætti hjá ríkisstj., að spurt sé hvernig á því standi. Ég vil leyfa mér að fara fram á það við hæstv. menntmrh., að hann gefi hv. deild skýr svör um það, hvernig á því standi að ekki var unnt að leggja þetta frv. fram fyrr, þótt námsmenn hafi talið sig hafa gert samning við hæstv. ráðh. um að þeir samþykktu efnisatriði frv., sem að mörgu leyti herða endurgreiðslureglur, ef hæstv. ríkisstj. sæi sér fært að verða við þeim óskum að taka að fullu tillit til umframfjárþarfar námsmanna á ákveðnu tilteknu bili. Nú gerist það, að frv. kemur seint fram og frestað er þessum aðalatriðum málsins. Það má vera, eins og reyndar hæstv. ráðh. ýjaði að, að nokkuð hafi staðið í hæstv. ríkisstj. lífeyrissjóðsaðildin sem gert er ráð fyrir í 3. gr. frv. Má vera að það sé sá ásteytingarsteinn sem orðið hafi þess valdandi, að frv. kom svo seint fram. Varðandi þetta efnisatriði held ég að ástæða sé til að taka fram eftirfarandi:
1. Það er ekki skylda að námsmenn séu í lífeyrissjóði samkv. þessu frv.
2. Rétt er að benda á að nýlega gengu í gildi lög, sem hæstv. ríkisstj. stóð að og flutti, þess efnis, að atvinnurekendum sé skylt að vera í lífeyrissjóðum, sem þýðir það að eingöngu námsmenn og húsmæður eru utan lífeyrissjóða.
3. Ljóst er að námsmenn koma til með samkv. efnisatriðum frv. að greiða sjálfir þau 10% sem til hliðar leggjast í lífeyrissjóð, rétt eins og atvinnurekendur, en enginn kemur til með að greiða fyrir þá þau 6% sem atvinnurekendur greiða í lífeyrissjóð samkv. lögum og kjarasamningum þegar um launþega er að ræða.
Í stuttu máli má lýsa þessu kerfi svo, að eigi námsmaður rétt á 10 þús. kr. láni, þá skrifar hann undir 10 600 kr. skuldabréf en fær 9 600 kr. út. Eftir sitja 10% af 10 þús. kr. sem lífeyrissjóðsframlag námsmannsins. Og það fé, sem lagt verður væntanlega inn í söfnunarsjóð lífeyris eða annan álíka sjóð, biðreikning, má auðvitað nota til útlána á vegum Lánasjóðs ísl. námsmanna. Það er þess vegna misskilningur, sem stundum hefur verið haldið fram, að þarna séu námsmenn settir á bekk með launþegum. Þeir eru settir á bekk með atvinnurekendum og þurfa sjálfir að reiða fram allt fjármagn sem rennur til lífeyrissjóðsdeildar sinnar. Þetta er í sjálfu sér ekki óeðlilegt, annars vegar vegna þess að lánin greiðast síðar með tekjum og ljóst er að það er ein helsta krafa nútíma Íslendinga að öðlast lífeyrissjóðsaðild og réttindi sem allra fyrst. Og segja má að námsmenn, sem margir hverjir eru í hjónabandi og eiga stórar fjölskyldur, eigi að hafa sömu möguleika t. d. til húsbygginga og lánafyrirgreiðslu, sem lífeyrissjóðir geta veitt, eins og jafnaldrar þeirra sem stundað hafa önnur störf en nám.
Það er athyglisvert vegna þeirra tafa, sem orðið hafa á því að þetta frv. kæmi fram, að skoða ummæli sumra hæstv. ráðh. þegar þeir voru í stjórnarandstöðu. Í stúdentablaði sem gefið var út snemma árs 1978, þ. e. 1. tölublaði Stúdentablaðsins, birtast svör þingflokka við bréfi Stúdentablaðsins þar sem spurst er fyrir um álit og afstöðu þingflokkanna um þetta málefni. Í einu svari segir svo, með leyfi forseta:
„Við töldum og teljum enn að löngu sé orðið tímabært að umframfjárþörf námsmanna sé mætt að fullu, og miðað við þetta markmið og aðrar breytingar, sem við teljum nauðsynlegt að gerðar verði á úthlutunarreglum sjóðsins, er ljóst að óhjákvæmilegt er að veita auknu fjármagni til sjóðsins.“
Þetta bréf undirritar fyrir hönd þingflokks Alþb. Ragnar Arnalds, sem síðar varð menntmrh. og nú er hæstv. fjmrh., og sýnir það hvern hug hann ber til þessa máls. Undrar mig þess vegna hve málið hefur tafist í höndum svo vinveittrar ríkisstj. eins og kemur fram í ummælum hæstv. fjmrh.
Það, sem skiptir máli og á hefur verið bent, er að námsmenn féllust á það samkomulag, sem kemur fram í efnisatriðum frv., upp á þau býti að tímamörk yrðu þau sem lagt var til í tillögum nefndarinnar til ríkisstj. Þess vegna er eðlilegt að talsverðrar óþreyju hafi gætt í röðum námsmanna, eins og t. d. kemur fram í bréfi sem Stúdentaráð Háskóla Íslands sendir ríkisstj. og dags. er 26. nóv. 1981 og hljóðar þannig, með leyfi forseta:
„Menntmrh. hefur nú lýst því yfir í samtali við fulltrúa námsmanna, að hið nýja frv. um námslán og námsstyrki verði ekki lagt fram óbreytt á Alþingi. Ríkisstj. ætlar ekki að standa við fyrirheit sín um lífeyrisréttindi námsmanna og vill seinka hækkun á lánshlutfallinu í 100% fjárþarfar. Auk þess er ljóst að framlögðum fjárlögum að ríkisstj. hefur þegar svikið loforð sín um aukinn tekjuumreikning og hækkun lánshlutfalls í vetur.
Námsmenn hafa sýnt samningsvilja og féllust á hertar endurgreiðslur gegn því að ná fram mjög mikilvægum atriðum varðandi úthlutun lánanna. Um þetta náðist samkomulag sumarið 1980. Það samkomulag hefur nú verið þverbrotið af hálfu stjórnvalda. Því lýsa námsmenn sig óbundna af þessu samkomulagi, mótmæla öllum breytingum og munu berjast gegn hinu breytta frv.“
Undir þetta bréf rituðu Finnur Ingólfsson, Garðar Mýrdal og Jakob Rúnarsson. Telja verður að það hafi verið áhrif þessa bréfs og aðgerða námsmanna sem urðu til þess að þetta frv. var lagt fram á Alþingi, og segja má að það sé í viðunandi formi ef frá eru talin tímamörkin sem gerð hefur verið grein fyrir í fyrri ræðum um þetta mál. Má þá segja að skárra sé að fá frv. í þessum búningi heldur en að ríkisstj. dundi sér við að skoða það á fundum sínum einn veturinn í viðbót.
Það er ekki ástæða til, herra forseti, að fjalla efnislega um hvern þátt málsins á þessu stigi. Þó tel ég ástæðu til að benda á örfá atriði, reyndar þrjú, sem sérstaklega er vert að komi fram við 1. umr. málsins.
Í fyrsta lagi vil ég benda á að á bls. 7 í grg. eða í aths. með frv. er getið um tvær hugmyndir um endurgreiðslur: annars vegar endurgreiðslukerfi sem byggist fyrst og fremst á lánasjónarmiðum og tekur þá fyrst og fremst tillit til heildarupphæðar við námslok, og hins vegar það sjónarmið sem kalla mætti félagslega sjónarmiðið og tekur tillit til greiðslugetu einstakra lánþega þegar um endurgreiðslur er að ræða eftir að námstíma er lokið. Um þessar tvær hugmyndir stóð styrr í nefndinni, og segja má að niðurstaðan hafi verið nokkurs konar jafntefli þar sem tekið var tillit til beggja sjónarmiðanna. Ég leyni því ekki, að mér þykir eðlilegt að tekið sé tillit til fyrra sjónarmiðsins í meiri mæli en gert er í frv., og var þeirrar skoðunar í nefndarstarfinu. Ég tel að fara eigi með námslán eins og lán, en ekki laun eða greiðslur fyrir störf, og tel ástæðu til að varðveita þau sjónarmið sérstaklega í þessu frv. og einnig í reynd í framtíðinni.
Í öðru lagi vil ég undirstrika, eins og aðrir hv. ræðumenn sem hér hafa talað á undan mér, að í frv. er gert ráð fyrir hertari endurgreiðslureglum, sem þýða það, að í stað þess, að nú innheimtast 66% af þeim 90% umframfjárþarfar sem lánað er, má gera ráð fyrir, verði frv. samþykkt, að 86–90% af útlánum sjóðsins innheimtist. Þetta ber að leggja áherslu á vegna sjónarmiða ríkissjóðs og vegna þeirra viðhorfa sem margoft hafa komið fram á hv. Alþingi, að ástæða sé til að menn greiði til baka lán í sömu verðmætum og þau eru fengin. En það er ástæða til að benda á að gert er ráð fyrir að lánin fylgi lánskjaravísitölu og samkv. reynslu hefur lánskjaravísitalan verið lánveitanda í vil umfram það sem verðbótavísitala t. d. hefur orðið á undanförnum árum. Lánskjaravísitala er nokkurs konar bland af byggingarvísitölu og framfærsluvísitölu og hún bætir verðmæti betur en þær verðbætur sem bæta laun launþega í dag. Þess vegna er spurning hvort halda eigi í þetta kerfi. Ég tel ástæðulaust að breyta frá því sem þarna er, en auðvitað verður að taka tillit til stefnu hæstv. ríkisstj. í peninga- og lánamálum almennt, því að auðvitað er ekki hægt að bjóða það að einn sjóður sé látinn lána með verðtryggðum hætti nema það sé sú stefna sem ríkisstj. ætlar að fylgja almennt. Vænti ég þess, að hæstv. menntmrh. geti lýst því yfir, þar sem þetta sjónarmið kemur fram í frv., að það sé samkv. stefnu ríkisstj. sem ætli sér áfram að fylgja verðbótastefnunni eins og hún hefur gert hingað til, en sveigja ekki af leið eins og maður gæti reyndar haldið að sumir hæstv. ráðh. ætluðu að gera, ef dæma má af ummælum undir rós í blöðum að undanförnu þegar þeir senda tilskrif sín á milli, hæstv. ráðh. og foringjar í stjórnarherbúðunum.
Í þriðja lagi vil ég nefna að ég tel að eitt helsta vandamál Lánasjóðs íslenskra námsmanna á undanförnum árum — og þar á ég ekki við ár þessarar hæstv. ríkisstj. frekar en árin þar á undan — sé það, hve litið beint fjárframlag hefur runnið úr ríkissjóði til sjóðsins. Þess vegna hefur Lánasjóðurinn orðið að taka mikla fjármuni að láni, og því er svo komið að Lánasjóðurinn skuldar stórfé. Þess vegna er erfiðara að hækka lánshlutfallið úr 90 í 95 og síðan í 100%, því að það hlýtur að kosta ríkissjóð talsverða fjármuni um nokkurt skerið og enn meiri vegna þeirrar stefnu sem fylgt hefur verið á undanförnum árum, að fjármagna Lánasjóðinn frekar með lánum en beinu framlagi úr ríkissjóði. Þegar málið verður til umr. frekar í hv. nefnd er ástæða til að benda á að í aths. við frv. á bls. 8 stendur eftirfarandi mgr., sem ég ætla að lesa, með leyfi forseta:
„Í nefnd þeirri, sem samdi frv. þetta, áttu sér einnig stað umræður um skattamál og hugsanlegan frádrátt frá skatti vegna verðbótaþáttar námslána og eins vegna ónýtts persónufrádráttar lánþega meðan á námi stendur. Nefndin er þeirrar skoðunar, að síðari kosturinn sé eðlilegur, og mælist til þess, að Alþingi breyti ákvæðum skattalaga með tilliti til þess.“
Í framhaldi af þessu flutti ég ásamt þeim hv. þm. Halldóri Blöndal og Matthíasi Á. Mathiesen till. sem gekk í þessa átt og reyndar var tvíþætt. Fyrri hluti þeirrar till., um svokallaðan ónýttan námsfrádrátt, var samþykktur á síðasta þingi þegar tekju- og eignarskattslögin voru til umr. og breytinga á hv. Alþingi. Síðari hluti till., sem fjallar um frádráttarbærni verðbótaþáttar og vaxta námslána, náði ekki fram að ganga og telja verður að ástæðan sé sú, að ný lög um Lánasjóð ísl. námsmanna höfðu þá ekki verið lögð fram og fengið staðfestingu. Ég vil fara fram á það, að sú nefnd, sem fær þetta mál til meðferðar, kynni sér þá hugmynd, sem fram kom á sínum tíma, að hægt væri að draga frá vaxtagjöld og verðbætur með sama hætti og 30. gr. E-liður 1. tölul. tekju- og eignarskattslaga gerir ráð fyrir varðandi húseignir sem menn eignast eða verið er að byggja. Ég tek fram að ætlunin var að breyta ekki því hámarki sem þar kemur fram, en það er nú í gildandi lögum 25 þús. kr. h já einstaklingi og 50 þús. kr. hjá hjónum. Sú tala kemur svo til með að hækka samkv. skattvísitölu eins og fleiri slíkar tölur í skattalögum. Á þetta vil ég leggja áherslu því að mér finnst sanngjarnt að tekið sé tillit til námskostnaðar með þessum hætti. Nám hlýtur að vera fjárfesting sem menn afla sér, rétt eins og sú fjárfesting sem menn afla sér í steinsteypu, og þjóðfélagið hlýtur að vilja hvetja menn til slíkrar fjárfestingar og styðja þess vegna með sama hætti.
Í öðru lagi tel ég ástæðu til þess, að nefndin athugi rækilega hvort ekki eigi að draga úr því, að tekið sé tillit til launatekna námsmanna meðan á námi stendur, þannig að þeir námsmenn, sem stundi vinnu, geti fengið þær tekjur án þess að til frádráttar komi þegar þeir fá námslán úr Lánasjóði ísl. námsmanna. Slíkt mundi hvetja námsmenn til vinnu með námi ef þeir eiga kost á því — sem eru nú því miður hverfandi líkur á — og enn fremur koma í veg fyrir það, sem því miður ber nokkuð á í seinni tíð, að námsmenn ráði sig í vinnu þar sem hægt er að koma við skattsvikum, ekki til þess að svík ja beinlínis undan skatti, heldur til þess að fá aukin námslán. Á þetta vil ég benda því að ég tel ástæðu til að fjalla sérstaklega um þetta mál.
Loks, herra forseti, vil ég taka það fram, eins og reyndar er gert í aths. með frv., að ég áskil mér rétt til þess að fylgja eða flytja brtt. sem ég tel vera til bóta, og þingflokkur Sjálfstfl. er óbundinn af því frv. sem hér liggur frammi. En ég lýsi þeirri von minni jafnframt, að þetta frv. — annaðhvort óbreytt eða í breyttu formi — geti orðið að lögum á yfirstandandi þingi.