26.10.1981
Neðri deild: 6. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 246 í B-deild Alþingistíðinda. (169)
43. mál, brunavarnir og brunamál
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Ég þakka hv. þm., sem hér hafa talað, fyrir áhuga á þessu máli og sumpart jákvæðar undirtektir. Ég vil aðeins víkja að þeim athugasemdum sem fram hafa komið.
Þegar ég setti þessa nefnd í verk, sem ég gerði grein fyrir áðan, bað ég um sérstakt álit á því máli sem hv. þm. Magnús H. Magnússon nefndi, þ. e. um hvort það væri hugsanlegt að tengja þessa stofnun við Vinnueftirlit ríkisins. Nefndin skilaði mér nokkuð ítarlegri grg. um þetta mál. Þar er farið yfir svokölluð stjórnunarleg rök í þessum efnum og efnahagsleg rök. Niðurstaða nefndarinnar er sú, að það sé óeðlilegt að setja þessa stofnun undir Vinnueftirlit ríkisins þar sem því sé ætlað að starfa á allt öðru sviði en Brunamálastofnun ríkisins á að gera.
Í þessu sérstaka áliti segir m. a., með leyfi hæstv. forseta: „Þau verkefni, sem Brunamálastofnun ríkisins er ætlað að sinna samkv. núgildandi lögum um brunavarnir og brunamál, snerta öryggi alls almennings í landinu og varnir gegn tjóni á eignum og mannvirkjum af hvers konar tagi, bæði í eigu einstaklinga og opinberra aðila. Þessi verkefni, svo sem almennar brunavarnir og slökkvistarf, hafa af þessum ástæðum heyrt undir almannavaldið, þ. e. sveitarfélög og ríkisvald. Vinnueftirliti ríkisins er hins vegar ætlað það hlutverk „að tryggja öruggt og heilsusamlegt starfsumhverfi og að tryggja skilyrði fyrir því, að innan vinnustaðanna sjálfra sé hægt að leysa öryggis- og heilbrigðisvandamál“ o. s. frv., sbr. 1. gr. laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.“ Eftir sömu lögum verður stjórn Vinnueftirlits ríkisins að mestu skipuð aðilum vinnumarkaðarins eðli málsins samkvæmt.“ — Eins og hv. þm. er kunnugt er hún nánast eingöngu skipuð fulltrúum aðila vinnumarkaðarins, fyrir utan formann stjórnar Vinnueftirlitsins sem er skipaður af félmrh. án tilnefningar.
„Brunamálanefnd telur því augljóst,“ segir hér í nál., „að Vinnueftirliti ríkisins sé ætlað að starfa á mun þrengra sviði en Brunamálastofnun gerir samkv. gildandi lögum og að ekki komi til álita að þeir almennu öryggis- og björgunarþættir, sem Brunamálastofnunin hefur með höndum, verði alfarið settir undir stjórn aðila vinnumarkaðarins. Á hinn bóginn telur nefndin augljóst að mikilvægir þættir eru sameiginlegir í starfi Brunamálastofnunar og Vinnueftirlitsins. Þar er um að ræða allt er varðar öryggi gegn eldsvoða á vinnustöðum, svo sem fræðslu um brunahættu og slökkvistarf, eldvarnareftirlit og annað fyrirbyggjandi starf. Æskilegt er einnig að varsla gagna og skrifstofuhald verði sameiginlegt, en til að svo megi verða þurfa þessar tvær stofnanir að vera undir sama þaki. Um þessa og aðra augljósa þætti þarf að skapa náið samstarf svo að sameiginlegir starfskraftar nýtist sem best og fjármunir sparist í rekstrinum.“
Síðan er það niðurstaða nefndarinnar að því er varðar efnahagsleg rök, að þau séu í rauninni ekki til staðar vegna þess að þau verkefni, sem Brunamálastofnunin sinni, séu það mikilvæg að þau hljóti að verða unnin hvort eð er og það sé ekki unnt þar af leiðandi að spara fjármuni til þeirra.
Síðan segir nefndin að lokum í sínu áliti:
„Af þessum sökum telur nefndin ekki koma til greina að Vinnueftirlit ríkisins, í því formi og undir slíkri stjórn sem gildandi lög gera ráð fyrir, hafi yfirstjórn brunamála þjóðarinnar alfarið með höndum.“
Þessi niðurstaða er mjög afdráttarlaus, eins og ég hef hér gert grein fyrir, og ég held að það sé alveg ljóst að mjög hæpið sé að setja Brunamálastofnunina undir Vinnueftirlitið. Hitt er svo aftur allt annað mál og sjálfsagt að stuðla þarna að samstarfi á milli aðila.
Hv. 5. þm. Suðurl., Magnús H. Magnússon, nefndi auk þess tvö önnur efnisatriði í frv. þessu. Það er þá fyrst c-liður 3. gr., að það væri hlutverk Brunamálastofnunarinnar að yfirfara uppdrætti að nýbyggingum, viðbótum og meiri háttar breytingum á mannvirkjum töldum í b-lið þar á undan til þess að ganga úr skugga um að lögum og reglugerðum, sem að brunamálum lúta, sé fullnægt. Þessi ákvæði eru óbreytt frá gildandi lögum, Brunamálastofnunin á samkv. gildandi lögum að sinna þessu verki. Hér er að vísu um orðalagsbreytingu að ræða, en ég held að þar sé ekki um efnisbreytingu að ræða. Ég held að það sé alveg öruggt að svo sé ekki. Brunamálastofnunin á að sinna þessu verki samkv. gildandi lögum. Hana hefur að vísu skort til þess mannafla og fjármuni á undanförnum árum, en ég sé ekki hvaða önnur stofnun eða annar aðili í þjóðfélaginu er betur til þess fallinn að yfirfara uppdrætti að nýbyggingum, viðbótum og meiri háttar breytingum á mannvirkjum í sambandi við brunavarnaeftirlit og eldvarnir. Ég held því að þetta sé best komið hjá Brunamálastofnuninni.
Í sambandi við sveitarfélögin, sem hv. þm. nefndi áðan, er ekki alveg rétt að það sé verið að kasta sveitarfélögunum út. Sveitarfélögunum er í raun og veru ætluð alveg afdráttarlaus lagaskylda í þessum efnum, og þó að brunamálanefndirnar, eins og þær hafa verið, séu lagðar niður eiga slökkviliðsstjórar að hafa betri möguleika á að úrskurða um hugsanleg brot á lögum og reglugerðum í þessu efni. Brunamálanefndirnar hafa átt mjög erfitt í þessum efnum. Þær hafa ekki getað sinnt sinni lagaskyldu eins og nauðsynlegt er af mörgum ástæðum, m. a. vegna þess að í þeim eru að sjálfsögðu oft aðilar sem eru í tengslum við t. d. stærri atvinnufyrirtæki á stöðunum o. s. frv. Þannig eru auðvitað ýmis rök sem eru á móti því, að úrskurðarvald af þessum toga sé í höndum nefnda eins og brunamálanefndirnar hafa verið. Þess vegna er sú breyting lögð til sem hér var gerð grein fyrir. Ég held að hún sé mjög til bóta, og ég mótmæli því alfarið að það sé verið að lítilsvirða sveitarfélögin hér á nokkurn hátt. Það var a. m. k. ekki ætlunin. En ef eitthvað kemur fram af ábendingum til bóta í þessu efni og öðrum varðandi þetta frv. við meðferð málsins á Alþingi verður að sjálfsögðu að hlusta á það og taka tillit til slíks og allar aths. ber að skoða með tilliti til þess.
Varðandi aths. frá hv. þm. Ólafi G. Einarssyni er þess að geta, að í 24. gr. er gert ráð fyrir að brunatryggingariðgjaldið sé 1.5% af brúttóiðgjaldatekjum vegna brunatrygginga á fasteignum og lausafé. Þetta gjald kemur þar af leiðandi væntanlega ekki á önnur tryggingafélög en þau sem hafa brunatryggingar og því eðlilegt að mínu mati að takmarka aðild að stjórn stofnunarinnar við þau tryggingafélög sem örugglega eru með brunatryggingar.