26.01.1982
Sameinað þing: 42. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1964 í B-deild Alþingistíðinda. (1691)

Afbrigði um útvarpsumræður

Forseti (Jón Helgason):

Samkomulag hefur orðið um að útvarpa umr. um skýrslu ríkisstj. um efnahagsmál fimmtudaginn 28. þ. m. Umr. hefst kl. 8 síðdegis og verður hagað þannig: Forsrh. gerir grein fyrir skýrslunni, síðan fá fulltrúar þingflokka til umráða 15–20 mínútur hver í fyrri umferð. Í síðari umferð hafa stuðningsmenn ríkisstj. í Sjálfstfl. til umráða 5–10 mínútur og fulltrúar þingflokka 10–15 mínútur. Er hér með leitað afbrigða frá þingsköpum um að haga megi umr. þannig.