26.01.1982
Sameinað þing: 42. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1966 í B-deild Alþingistíðinda. (1696)
341. mál, alkalískemmdir á steinsteypu í húsum
Fyrirspyrjandi (Birgir Ísl. Gunnarsson):
Herra forseti. 26. mars s. l. var samþykkt svohljóðandi þáltill. hér í Sþ.: „Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að sjá til þess, að Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins verði gert kleift að framkvæma nauðsynlega könnun á því, hvernig best verði staðið að viðgerðum á alkalískemmdum á steinsteypu í húsum.
Jafnframt skorar Alþingi á ríkisstj. að hún skipi nefnd, sem hafi það verkefni að kanna með hverjum hætti best verði fyrir komið fjárhagsaðstoð við þá húseigendur, sem leggja þurfa í mikinn viðgerðarkostnað vegna alkalískemmda á steinsteypu á húsum sínum.
Nefndin ljúki störfum sem fyrst og skal álit hennar sent Alþingi. Ef nauðsyn ber til sérstakrar lagasetningar í þessu efni skal ríkisstj. undirbúa slíka löggjöf og leggja fyrir Alþingi sem fyrst.“
Ég hef nú flutt á þskj. 89 svofellda fsp. til hæstv. iðnrh.: „Hvað líður framkvæmd á ályktun Alþingis frá 26. mars s. l. um viðgerðarkostnað vegna alkalískemmda á steinsteypu í húsum?“