26.01.1982
Sameinað þing: 43. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1970 í B-deild Alþingistíðinda. (1703)
84. mál, iðnaðarstefna
Flm. (Friðrik Sophusson):
Herra forseti. Á þskj. 87 höfum við 19 sjálfstæðismenn leyft okkur að leggja fram þáltill. um iðnaðarstefnu. Flm. eru allir þm. Sjálfstfl. að undanskildum hæstv. ráðh.
Áður en ég vík að einstökum liðum till. og grg. þykir mér viðeigandi að fara örfáum orðum um stöðu og afkomu iðnaðarins að undanförnu.
Snemma í desember á s. l. ári var haldinn fundur á vegum Félags ísl. iðnrekenda um stöðu iðnaðarins í dag. Framkvæmdastjóri félagsins, Valur Valsson viðskiptafræðingur, gerði þar grein fyrir áhrifum efnahagsaðgerða ríkisstj. á stöðu iðnaðarins á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:
„1. Þegar lög um aðlögunargjald runnu út um áramótin 1980–1981 án þess að starfsskilyrði iðnaðarins væru lagfærð lækkaði verð margra innfluttra samkeppnisvara um 3%. Samkeppnisstaða íslensks iðnaðar versnaði þá sem því nam.
2. Þegar ríkisstj. ábyrgðist sérstaka 5% hækkun viðmiðunarverðs á fiski í Verðjöfnunarsjóði á tímabilinu jan.—maí 1981 var reynt að tryggja eðlilega afkomu fiskvinnslunnar án gengisbreytingar, en sambærilegar ráðstafanir voru ekki gerðar vegna afkomu iðnaðarins.
3. Verðstöðvun ríkisstj. fyrri hluta ársins bitnaði þungt á íslenskum fyrirtækjum og þjónustu en ekki á innfluttum samkeppnisvörum.
4. Í efnahagsáætlun sinni frá áramótunum 1980–81 ákvað ríkisstj. að halda meðalgengi íslensku krónunnar óbreyttu fyrstu mánuði ársins, en á sama tíma var gert ráð fyrir 40–50% innlendum kostnaðarhækkunum á ári.
5. Á árinu urðu miklar sviptingar á erlendum gjaldeyrismörkuðum og varð sú þróun ásamt ákvörðun stjórnvalda um það, hvernig íslenska krónan var skráð, íslenskum iðnaði þung í skauti. Stór hluti útfluttra iðnaðarvara fer til Evrópulanda og meginþorri innfluttra iðnaðarvara, sem keppa við íslenskar vörur hér á heimamarkaði, kemur frá Evrópu.“ — Hér lýkur tilvitnun í ræðu sem framkvæmdastjóri Félags ísl. iðnrekenda flutti á fundi félagsins er þingmönnum var boðið að taka þátt í í desember s. 1.
Í ræðu sinni á þessum fundi fjallaði framkvæmdastjórinn ítarlega um þessa þætti og sýndi fram á hvernig innlendi kostnaðurinn hækkaði miklu meira en gjaldmiðlar viðskiptalandanna gagnvart íslensku krónunni. Afleiðingin birtist í minnkandi markaðshlutdeild íslenska iðnaðarins á heimamarkaði, í samkeppni við innfluttar vörur, og versnandi markaðsskilyrðum á erlendum mörkuðum. Öllum er ljóst að það tekur bæði tíma og fjármuni að vinna upp markaði sem þannig hafa glatast fyrst og fremst vegna skilningsskorts stjórnvalda og rangrar stjórnarstefnu.
Samkvæmt opinberum tölum um afkomu iðnaðarins hefur hún versnað verulega. Frá árinu 1971 lækkaði hreinn hagnaður í hlutfalli við framleiðslutekjur úr 3.1% niður í 1.1% árið 1978. Síðan hefur orðið kollsteypa niður á við og líklegt er að rekstrartapið verði 6–8% árin 1980 og 1981, ef marka má skyndikönnun Félags ísl. iðnrekenda og opinberar tölur um framreikninga á afkomu ullar- og prjónaiðnaðar sem síðar verður væntanlega vikið að.
Forstjóri iðnaðardeildar SÍS á Akureyri, Hjörtur Eiríksson, sagði á fundi í s. l. viku að rekstrarskilyrði iðnfyrirtækja Sambandsins hefðu versnað um 28% þegar borin eru saman árið 1976 annars vegar og hins vegar fyrstu níu mánuðir síðasta árs. Rekstrarskilyrði eru reiknuð með því að bera hækkun tekjuhliðar annars vegar saman við hækkun gjaldhliðar hins vegar hjá Sambandsfyrirtækjunum í iðnaðardeildinni. Það skal tekið fram, að árið 1976 var fremur hagstætt ár fyrir iðnaðinn og á síðustu þremur mánuðum á s. l. ári bötnuðu rekstrarskilyrðin nokkuð, sérstaklega vegna endurgreiðslu Seðlabankans á vöxtum annars vegar og gengismun hins vegar til þeirra sem fluttu til Evrópulanda og seldu vöru sína ekki í dollurum.
Það breytir hins vegar ekki því, að mörg iðnfyrirtækjanna væru hætt rekstri ef ekki hefði komið til verulega aukin lánafyrirgreiðsla bankanna, en fyrstu níu mánuði s. l. árs jukust útlán bankakerfisins til iðnaðarins um 70%.
Í lok ræðu sinnar á fyrrnefndum fundi gerði framkvæmdastjóri Félags ísl. iðnrekenda grein fyrir auknum lántökum iðnfyrirtækja á eftirfarandi hátt, með leyfi forseta:
„Það má því e. t. v. segja að greiðsluerfiðleikar fyrirtækjanna hafi verið fluttir inn í bankakerfið, því að mikil útlánaaukning bankanna til fyrirtækja á þessu ári hefur m. a. leitt til þess, að bankarnir eiga nú við mikla lausafjárerfiðleika að etja. Í annan stað kemur í ljós að það eru ekki einungis viðskiptabankar og sparisjóðir sem hafa aukið útlán sín til iðnaðar, heldur hefur Seðlabankinn á seinustu misserum aukið endurkaupalán til iðnaðar svo umtalsvert er. Frá áramótum til loka september mánaðar jók Seðlabankinn endurkaup lána vegna iðnaðar um 74%. Á tólf mánaða tímabili, frá okt. 1980 til sama mánaðar 1981, var aukningin hins vegar tæp 96%. Þessi aukning endurkaupa Seðlabankans stafar annars vegar af auknum lánum til þeirra sem fyrir voru með slíkar fyrirgreiðslur, en einnig vegna þess að á þessu ári (þ. e. á árinu 1981) hafa verið teknar inn nýjar greinar í endurkaupalánakerfið. Má þar nefna matvæla- og drykkjarvöruiðnað, húseiningaframleiðslu, brauð- og kökugerð og sælgætisgerð.
Ég hygg að fyrirliggjandi tölur sýni nokkuð glögglega að með útlánaaukningu bankakerfisins hafi um tíma verið forðað enn stærri vandræðum. Það er hins vegar væntanlega öllum ljóst, að til lengdar gengur ekki að fjármagna tap með lánum. Til þess að atvinnulífið geti gegnt sínu hlutverki verður það að skila hagnaði.“
Þessi hógværa lýsing framkvæmdastjórans skýrir betur en flest annað hvernig röng stjórnarstefna hefur orðið til þess að fyrirtækin hafa orðið að grípa til síaukinna bankalána til að fjármagna reksturinn og komast hjá greiðsluþroti og framleiðslustöðvun. Það væri svo efni í aðra ræðu að fjalla um yfirlýsingar ráðamanna um nauðsyn samdráttar í útlánum bankakerfisins við þessi skilyrði.
Auk þess sem hér hefur verið drepið á má geta þess, að nýlega kom út framreikningur eða skýrsla um stöðu ullar- og skinnaiðnaðar. Ég hef því miður ekki fengið þá skýrslu í hendurnar en býst við að hæstv. iðnrh. muni í ræðu sinni síðar í dag lýsa því sem þar kom fram. Sú mynd, sem hér hefur verið dregin af afkomu iðnaðarins í tíð núverandi stjórnvalda, hlýtur ein sér að vera næg ástæða fyrir því, að hv. Alþingi ræði málefni iðnaðarins og móti meginstefnu í þeim málum sem snerta rekstrarskilyrði iðnaðarins í dag og framtíðarhlutverk hans í íslensku þjóðfélagi.
Stuttu eftir að núv. hæstv. iðnrh. tók við af núv. hæstv. forsrh., dr. Gunnari Thoroddsen, sem var iðnrh. 1974–1978, eða nánar tiltekið 21. sept. 1978, skipaði núv. hæstv. iðnrh. nefnd sem kölluð var samstarfsnefnd um iðnþróun og átti að vera iðnrh. til ráðgjafar um mótun heildarstefnu í iðnaðarmálum og leggja fyrir tillögur um það efni. Jafnframt átti nefndin að efla samstarf hinna ýmsu aðila iðnaðar um þær aðgerðir sem samstaða næðist um innan nefndarinnar og á vettvangi ríkisstj. og Alþingis.
Hinn 3. maí 1979, eða fyrir nær þremur árum, skilaði samstarfsnefndin, sem stundum er kölluð SUI-nefndin, tillögum sínum. Í formála skýrslunnar segir orðrétt, með leyfi forseta:
„Nefndin hefur annars vegar lagt megináherslu á að greina þær forsendur, sem iðnþróun ætti að byggjast á, og skýra þau viðhorf, sem nefndin telur að eigi að móta stefnu og aðgerðir í iðnaðarmálum. Hins vegar hefur nefndin gert tillögur um einstakar aðgerðir á þeim sviðum sem brýnast er, bæði að því er varðar almennan aðbúnað til rekstrar og hins vegar vegna umbóta í fyrirtækjunum sjálfum.
Samstarfsnefndin telur mjög mikilvægt að skilningur stjórnvalda og samtaka iðnaðarins sjálfs (launþega og atvinnurekenda) fáist á nauðsyn samhæfðra aðgera til að auka framleiðni og arðsemi iðnrekstrar og gera honum kleift að skapa þann grundvöll vaxtar í efnahags- og atvinnulífi sem nú vantar, samkvæmt horfum í mannaflaþróun og aðstæðum í öðrum megingreinum atvinnulífsins. Telur nefndin að leggja þurfi mikla áherslu á uppbyggingu arðvænlegs iðnaðar á þeim sviðum, sem Íslendingar eru líklegastir til að hafa varanlega samkeppnisyfirburði í ljósi alþjóðlegra samkeppnisaðstæðna.
Iðnaðinum þarf að skapa hagstæð vaxtarskilyrði með því að afnema það misvægi í rekstraraðstæðum sem hann býr við gagnvart öðrum undirstöðuatvinnuvegum. Jafnframt þarf virkan stuðning við nýsköpun og umbætur í iðnaði af hálfu þjónustustofnana iðnaðarins svo og aðstoð annarra opinberra stofnana með því að þær greiði götu iðnþróunar í landinu með jákvæðri afstöðu og skilningi á nauðsyn málsins.
Samstarfsnefnd um iðnþróun leggur mikla áherslu á nauðsyn þess, að ríkisstjórn og Alþingi kveðji alla aðila málsins til samstöðu, með því að álykta ótvírætt um grundvallaratriði stefnumótunarinnar, þar sem ekki er líklegt að árangur náist án samstillts átaks.“
Þetta var tilvitnun, herra forseti, í formálann að svokallaðri SUI-skýrslu sem liggur til grundvallar stefnumótun í iðnaði, en henni var skilað til hæstv. núv. iðnrh. 3. maí 1979, eða fyrir hartnær þremur árum.
Þessi skýrsla er að langmestu leyti, eins og ég sagði, grundvöllur tillögugerðar hæstv. iðnrh. og hæstv. ríkisstj. síðan, en núv. hæstv. iðnrh. hefur hvorki meira né minna en fjórum sinnum lagt tillögur sínar fyrir hv. Alþingi án þess að fá þær afgreiddar. Síðast lagði hann tillöguna nokkuð breytta fram skömmu eftir að sjálfstæðismenn höfðu lagt fram þá till. sem hér er til umr. og byggð er á sama grunni, eins og tekið er fram í grg.
Eins og fram kemur í grg. lagði núv. hæstv. iðnrh. till. til þál. fyrst fram skömmu fyrir þinglok 1979, en hún kom þá ekki til umr. Hún var aftur lögð fram óbreytt haustið 1979, en var þá eigi heldur rædd vegna stjórnarslita og þingrofs. Eftir stjórnarskiptin 1980 ákvað iðnrh., sem þá hafði tekið sæti í nýrri stjórn, að bíða með flutning till. til hausts og var hún lögð fram lítils háttar breytt haustið 1980. Fimm þm. Sjálfstfl. fluttu þá þegar brtt. og til atvmn. bárust umsagnir nokkurra aðila ásamt hugmyndum um breytingar. Þrátt fyrir áhuga fulltrúa Sjálfstfl. og Alþfl. í atvmn. — en fulltrúi Alþfl. er hv. þm. Magnús H. Magnússon — fékkst till. ekki afgreidd á síðasta þingi, enda virtist ekki vera einhugur í röðum stjórnarflokkanna um málið. Á 10. fundi atvmn. Sþ., sem haldinn var 21. maí 1980, óskuðu Friðrik Sophusson og Magnús H. Magnússon eftirfarandi bókunar, sem ég leyfi mér að lesa hér ef forseti mótmælir því eigi:
„Við lýsum yfir því, að við erum fyrir okkar leyti tilbúnir að afgreiða 86. mál, um iðnaðarstefnu, með þeim breytingum sem við höfum lagt fram. Till. hefur þrisvar verið lögð fram á þingi en aldrei hlotið afgreiðslu. Við höfum kynnt í n. tillögur okkar og ráðh. hefur kynnt nýjar tillögur í málinu. Við teljum að n. eigi að gefa út nefndarálit, þannig að þingið geti tekið afstöðu til málsins.“
Skemmst er frá því að segja, að nál. var ekki gefið út og málið stöðvaðist þannig vegna áhugaleysis stjórnarþm. Þetta er ekki sagt hæstv. ráðh. til hnjóðs, því að hann var allur af vilja gerður og átti mjög gagnlegar viðræður við suma nm., sem aftur hefur leitt til þess, að meiri líkur eru nú en áður á því, að þinginu takist að móta heildarstefnu í iðnaðarmálum. Birtist það m. a. í því, að tillögur hæstv. ráðh. hafa breyst í átt til tillagna Sjálfstfl.- og Alþfl.-manna.
Eitt af því, sem forráðamenn í iðnaði hafa talið vera helsta baráttumál sitt, er jöfnun starfsskilyrða atvinnugreina, enda hafa þeir talið sig bera skarðan hlut frá borði í þeim efnum miðað við aðrar greinar. Af því tilefni samþykkti núv. hæstv. ríkisstj. hinn 30. mars 1980 að setja á stofn nefnd til að gera samanburðarathugun á starfsskilyrðum iðnaðar, sjávarútvegs og landbúnaðar. Var við það miðað að nefndin skilaði áliti fyrir 1. júlí það sama ár. Nefndin var hins vegar ekki skipuð fyrr en í sept. 1980, þremur mánuðum eftir að hún átti að ljúka störfum samkv. samþykktri till. í hæstv. ríkisstj. Nefndin hefur starfað undir forustu dr. Jóhannesar Nordals seðlabankastjóra og hefur sent frá sér áfangaskýrslu sem ríkisstj. hlýtur að taka afstöðu til á næstunni í samræmi við 13. tölul. efnahagsáætlunarinnar sem birt var fyrir tæpum 13 mánuðum eða eftir áramótin 1980–81, en þar segir, með leyfi forseta:
„Hraðað verði samanburði á starfsskilyrðum höfuðatvinnuveganna og þau samræmd. Tryggt verði að starfsskilyrði iðnaðarins verði ekki lakari en annarra atvinnugreina.“
Þannig hljóðar upphafið á 13. tölulið efnahagsáætlunar hæstv. ríkisstj. En enn stendur málið með þeim hætti, að hæstv. ríkisstj. hefur enga afstöðu tekið, að því er manni sýnist, til þessa viðamikla máls. Hæstv. ríkisstj. hefur þó skipað embættismannanefnd undir forustu Þórðar Friðjónssonar hagfræðings og er henni ætlað að semja lagafrv. og vinna með starfsskilyrðanefndinni. Það hlýtur þess vegna að vera fengur fyrir þá nefnd að fá stefnuyfirlýsingu hv. Alþingis í iðnaðarmálum og einnig væri gott að fá fréttir af starfi embættismannanefndarinnar í ræðu hæstv. ráðh. sem hann væntanlega flytur hér á eftir.
Það, sem einkum er athyglisvert við allt þetta mál, er að nú, tæpum tveimur árum eftir að hæstv. ríkisstj. samþykkti að fá skýrslu eftir þrjá mánuði, liggur aðeins fyrir áfangaskýrsla og enn vantar einn aðalkaflann, um verðmyndunarþáttinn. Ekkert hefur enn frést af aðgerðum hæstv. ríkisstj. á grundvelli skýrslunnar, en henni var dreift til þm. eftir að stjórnarandstaðan gagnrýndi þá leynd sem hvíldi yfir henni. Það skal tekið fram, að mjög nýlega er talið að starfsskilyrðanefnd hafi lokið þessum störfum sínum og sent til vissra aðila fyrsta uppkast að verðmyndunarkaflanum. Verður fróðlegt að heyra hæstv. ráðh. skýra frá því hvað í þeim kafla er að finna.
Í formála áfangaskýrslunnar sem ég minntist á áður, undir fyrirsögninni: Helstu niðurstöður — segir m. a. ef rakin eru helstu atriðin sem koma fram í þeim kafla:
Nefndin telur afar eðlilegt að stjórnvöld taki mið af samkeppnisskilyrðum þegar ákvarðanir eru teknar um starfsskilyrði atvinnugreina. Samkv. áliti nefndarinnar býr iðnaður nú að langmestu leyti við óhefta samkeppni erlendra fyrirtækja um leið og hann hefur orðið útflutningsgrein í vaxandi mæli. Samkeppnisstaða iðnaðar er af þeirri ástæðu orðin að nokkru leyti hliðstæð sjávarútvegi. Séu borin saman skilyrði þau, sem sjávarútvegur og iðnaður búa nú við, miðað við það sem var fyrir áratug eða tveimur, er auðséð að áliti nefndarinnar að mikil breyting hefur orðið á. Engu að síður er því þó haldið fram að víða gæti misræmis enn. Fyrst og fremst er í skýrslunni litið á meiri háttar efnahagslegan mismun sem felst í sérstökum ákvæðum og stjórnvöld gætu einhverju um ráðið. Samanburðarathugun nefndarinnar á starfsskilyrðum beinist þannig að þremur meginsviðum: tekjuöflun fyrir hið opinbera, opinberum framlögum og þjónustu og að lokum lánskjörum og aðgangi að lánsfé. Í áfangaskýrslunni er fyrst fjallað um starfsskilyrðin með tilliti til atvinnugreina og síðar með tilliti til málaflokka. Niðurstöður í áfangaskýrslunni með tilliti til atvinnugreina eru þessar helstar og skal þá stiklað á stærstu atriðunum sem koma fram í þessum kafla áfangaskýrslunnar.
1. Landbúnaður býr við nær algera markaðsvernd, sem engin hinna atvinnugreinanna gerir.
a) Landbúnaður greiðir hærri aðflutnings- og sölugjöld af innfluttum aðföngum en sjávarútvegur og iðnaður.
b) Uppsöfnun söluskatts er meiri en í öðrum greinum og er ekki bætt.
c) Landbúnaður er undanþeginn launaskatti.
d) Bein framlög úr ríkissjóði eru meiri en til annarra greina.
e) Fjárfestingar eru fjármagnaðar hlutfallslega minna með lánsfé, en lánskjör bæði til fjárfestingar og rekstrar eru landbúnaði hagstæðust.
Vegna markaðsverndarinnar eru landbúnaði sköpuð önnur og öruggari skilyrði en öðrum atvinnugreinum.
2. Vinnsla landbúnaðarafurða nýtur að miklu leyti sömu verndar og landbúnaður og innflutningsbann veitir fullkomið öryggi. Sú staðreynd, að úrvinnslugrein landbúnaðarins er á margan hátt verr sett en samkeppnisiðnaður og fiskvinnsla, t. d. varðandi aðflutningsgjöld, vegur því ekki mjög þungt á móti því öryggi sem innflutningsbann á samkeppnisvörum skapar. Í stuttu máli eru helstu niðurstöðurnar hvað varðar vinnslu landbúnaðarafurða að öðru leyti þessar:
Sláturhús og mjólkurbú eru undanþegin aðstöðugjaldi, en uppsöfnun söluskatts er ekki bætt.
3. Fiskveiðar hafa um langt skeið notið sérstakrar umhyggju sem önnur frumgrein íslenskrar framleiðslu.
Á sama hátt og landbúnaði hafa fiskveiðum verið tryggð betri starfsskilyrði en öðrum atvinnugreinum. Hins vegar eru afurðir sjávarútvegs í óheftri samkeppni á erlendum mörkuðum. Þótt því sé af mörgum haldið fram, að vegna auðlindaaðstöðu ættu fiskveiðar að greiða auðlindaskatt, og flestir áliti fiskveiðiflotann of stóran, þá hafa aðgerðir stjórnvalda yfirleitt miðast við að bæta stöðu útgerðar og hvetja þannig til aukinnar sóknar.
Að öðru leyti eru meginatriðin í starfsskilyrðum fiskveiða í samanburði við aðrar atvinnugreinar þessi:
a) Aðstöðugjald er mun lægra.
b) Fiskveiðar eru undanþegnar launaskatti.
c) Sjómenn njóta meiri háttar tekjuskattsfríðinda umfram starfsfólk annarra atvinnugreina.
d) Uppsöfnun söluskatts er ekki bætt, en er minni en í öðrum greinum.
e) Engin aðflutningsgjöld eða sölugjöld eru greidd af skipum eða fastabúnaði þeirra.
f) Mun hærri lánshlutföll gilda fyrir fjárfestingarlán til fiskveiða.
4. Þar er fjallað um fiskvinnsluna og kemst nefndin að þessari niðurstöðu: Að nokkru leyti er fiskvinnslan verr sett en útflutnings- og samkeppnisiðnaður.
a) Uppsöfnun söluskatts er ekki bætt.
b) Fiskvinnslan nýtur þó lægri aðstöðugjalda.
c) Aðflutningsgjöld eru hærri en fyrir útflutnings- og samkeppnisiðnað, en lægri en annarra greina.
d) Aðgangur að lánsfé er rýmri vegna endurkaupakerfisins.
5. Vegna markaðsstöðunnar er þýðingarmest að bera saman sjávarútveg og útflutnings- og samkeppnisiðnaðinn. Sambúðarvandi þessara atvinnugreina birtist m. a. í gengisskráningu krónunnar. Ástæðan er sú, að sjávarútvegur og afkoma hans hafa ráðið meiru um skráningu gengis vegna meiri hlutdeildar í útflutningsverðmæti. Að öðru leyti kom eftirfarandi fram við athugun nefndarinnar:
a) Aðstöðugjöld eru hærri en fyrir sjávarútveg.
b) Útflutnings- og samkeppnisgreinum iðnaðar er búin betri aðstaða en öðrum greinum með endurgreiðslu söluskatts og álagningu jöfnunargjalds.
c) Aðflutnings- og sölugjöld af sérhæfðum fjárfestingarvörum og nokkrum öðrum aðföngum eru felld niður eða endurgreidd í ríkari mæli en fyrir aðrar atvinnugreinar nema fiskveiðar.
d) Opinber framlög eru mun minni en til sjávarútvegs eða landbúnaðar.
e) Aðgangur að endurkaupakerfinu er lakari. Lánskjör afurðalána iðnaðarins eru hagstæðari en lánskjör afurðalána sjávarútvegsins. Þannig var þetta til skamms tíma, en eins og allir vita er unnið að breytingu á þessum sviðum og má gera ráð fyrir að í afurðalánakerfinu verði vextir þeir sömu, burt séð frá því hverjir eru lántakendur, eða 29% , ef hv. þm. Halldór Ásgrímsson ber hæstv. ráðh. Steingrím Hermannsson ofurliði samkv. því sem blöð hafa greint frá að undanförnu.
6. Skilin milli samkeppnisiðnaðar og annars iðnaðar eru ekki glögg, en markaðsstaða annars iðnaðar er á vissan hátt lík stöðu landbúnaðarins, þótt á starfskilyrðum þeirra sé mikill munur:
a) Uppsafnaður söluskattur er ekki bættur.
b) Aðflutningsgjöld af aðföngum eru há.
c) Opinber framlög eru minni en til landbúnaðar og sjávarútvegs.
d) Aðgangur að lánsfé er takmarkaðri og lánskjör óhagstæðari.
Þetta voru helstu atriðin varðandi samanburð á milli atvinnugreinanna. Sé hins vegar litið á niðurstöður nefndarinnar varðandi málaflokkana kemst nefndin að eftirfarandi meginniðurstöðu:
Ef áframhald á að verða í þeirri jöfnun starfsskilyrða, sem stefnt hefur verið að á undanförnum árum, telur nefndin að leita þurfi lausnar á eftirfarandi atriðum, og vík ég þá nánast orðrétt að því sem kemur fram í skýrslunni, með leyfi forseta:
1. Aðstöðugjald. Mishátt aðstöðugjald veldur mismunun milli greina og fyrirtækja. Vænlegast er að jafna gjaldstig skattsins og afnema afslætti.
2. Launaskattur. Undanþága fiskveiða og landbúnaðar felur í sér ótvíræða mismunun, sem auðveldast væri að leiðrétta með því að leggja launaskatt á allar greinar, en lækka um leið álagningarhlutfallið. Þetta er athyglisverð niðurstaða með tilliti til væntanlegra efnahagsaðgerða sem menn geta lesið um í blöðum í dag, en enginn má vita um fyrr en á fimmtudagskvöldið.
3. Sjómanna- og fiskimannafrádráttur. Þessi sérstöku tekjuskattsfríðindi fela ótvírætt í sér mismunun milli launþega sem að öllum líkindum veldur mismunun milli atvinnugreina. Út frá félagslegum sjónarmiðum er hugsanlega unnt að réttlæta frádrátt frá tekjuskatti, enda væri um hliðstæðan frádrátt að ræða fyrir alla þá sem búa við svipuð félagsleg skilyrði. Fremur er það þó ef um fastan frádrátt í krónutölu er að ræða (sbr. sjómannafrádrátt) en hlutfallslegan frádrátt (sbr. fiskimannafrádrátt).
4. Uppsöfnun söluskatts veldur mismunun milli atvinnugreina þar sem landbúnaður er verst settur, auk þess sem uppsöfnun veldur mismunun milli fyrirtækja. Til jöfnunar er hugsanlegt að auka niðurgreiðslur og láta þær ná til fleiri greina. Viðunandi lausn fæst þó varla nema með því að taka upp virðisaukaskatt og afnema söluskatt.
Þetta er athyglisverð niðurstaða, ekki síst með tilliti til þess, að nú virðist vera ljóst að núv. hæstv. ríkisstj. sé búin að gefa upp á bátinn að koma fram virðisaukaskatti sem ákveðið var þó að kanna í stjórnarsáttmálanum.
5. Aðflutningsgjöld. Aðflutnings- og sölugjöld á innflutt aðföng helstu útflutningsgreina og samkeppnisiðnaðar hafa verið lækkuð umfram annað ef frá er talin nánast algjör undanþága fiskveiða og stóriðju. Einstakir flokkar aðfanga, svo sem flutningstæki, rafeindabúnaður og ýmsar byggingarvörur og nokkrar greinar sem keppa við erlenda aðila, svo sem loðdýrarækt, hafa þó farið varhluta af þessum aðgerðum. Meginathugasemd nefndarinnar er að samræmi er ábótavant milli vöruflokka. Afar há aðflutningsgjöld eru greidd af ýmsum aðföngum í tekjuöflunarskyni og ræðst skattbyrði atvinnugreinanna af því hversu háðar slíkum aðföngum greinarnar eru.
6. Opinber framlög og þjónusta. Atvinnugreinarnar fá framlög úr ríkissjóði í misríkum mæli. Með framlögum eru hér ekki taldar niðurgreiðslur og útflutningsuppbætur landbúnaðarafurða. Ætlunin er að fjalla um þessar greiðslur í greinargerð um verðmyndunar- og samkeppnisskilyrði, en þann kafla er enn ekki búið að semja. Ýmis sjónarmið liggja að baki misskiptingu framlaga, sem óskyld eru fjárhagslegri mismunun. Misskipting framlaga og opinberrar þjónustu getur þrátt fyrir það valdið aðstöðumun milli greina.
7. Aðgangur að lánsfé., Mjög ólíkar reglur gilda um hlutfall útlána fjárfestingarlánasjóða af fjárfestingu. Áberandi hæst er hlutfallið í lánveitingum til fiskveiða. Æskilegt væri að draga úr kerfisbindingu fjárfestingarlána og afmörkunum milli greina. Varðandi lánsfjármögnun rekstrar er ljóst að reglur um endurkaup afurða- og rekstrarlána valda misræmi og eru landbúnaði og sjávarútvegi mest í hag.
Í áttunda og síðasta lagi er fjallað um lánskjörin. Bæði hvað varðar fjárfestingarlán og almenn rekstrarlán er samræming lánskjara nánast um garð gengin, segir í skýrslunni, þó að lánskjör fjárfestingarlána séu ívið hagstæðari landbúnaði en öðrum. Eina meiri háttar undantekningin eru sérstaklega ívilnandi kjör á ógengistryggðum endurkeyptum lánum, sem landbúnaður og að nokkru leyti iðnaður fá. Þetta hefur þó, eins og áður var getið um, breyst á síðustu mánuðum, eftir að skýrslan kom út.
Ég hef nú dregið saman helstu atriði úr niðurstöðukafla áfangaskýrslu starfsskilyrðanefndar, en rétt er að geta þess, að einn aðalkaflann vantar, þ. e. kaflann um markaðs- og verðmyndunarskilyrði, eins og ég hef reyndar áður minnst á, en gert er ráð fyrir að honum verði skilað til ríkisstjórnarinnar eftir nokkra daga.
Samtök landbúnaðarins, sjávarútvegsins og iðnaðarins hafa haft þessa skýrslu til athugunar og umsagnar og gera má ráð fyrir að þær verði ekki allar á sama veg. Hér verða ekki tíundaðar umsagnir samtaka atvinnulífsins að öðru leyti en því, að mér þykir rétt að lesa lokaorðin í umsögn Félags íslenskra iðnrekenda, sem send voru starfsskilyrðanefndinni í nóv. s. l., en þar segir svo, með leyfi forseta:
„Eins og réttilega er bent á í skýrslunni hefur notkun hugtaksins samkeppnisiðnaður valdið deilum á undanförnum árum milli samtaka iðnaðarins annars vegar og stjórnvalda hins vegar. Þar sem þetta hugtak er notað mjög mikið í skýrslunni væri full ástæða til að fram kæmi í hvaða skilningi nefndin notar hugtakið.
Félagið vill benda nefndinni á að skipting iðnaðar í útflutnings- og samkeppnisiðnað er afar hæpin. Í raun er allur útflutningsiðnaður samkeppnisiðnaður og allur samkeppnisiðnaður mögulegur útflutningsiðnaður og því sérstök aðgreining óþörf.
Félag ísl. iðnrekenda vill benda á að meginástæðan fyrir inngöngu Íslands í EFTA og samningum við Efnahagsbandalag Evrópu var að veita sjávarútveginum tollfrjálsan aðgang að markaðssvæðum Evrópu. Forsvarsmenn iðnaðarins féllust á niðurfellingu tollverndar gegn loforðum um að samkeppnisstaða íslenskra iðnfyrirtækja yrði engu verri en samkeppnisaðilanna. Áfangaskýrslan undirstrikar það sem forsvarsmenn iðnaðar hafa haldið fram undanfarin ár, að tíu ára aðlögunartími hafi ekki reynst stjórnvöldum nægilega langur til að jafna starfsskilyrði iðnaðar og annarra innlendra atvinnuvega. Félag ísl. iðnrekenda telur því að hið mikilvæga starf nefndarinnar sé unnið fyrir gýg nema því verði fylgt eftir með raunhæfum aðgerðum stjórnvalda til að leiðrétta það misræmi sem nefndin bendir á.“
Svo segir í bréfi Félags ísl. iðnrekenda. Það eru lokaorð til dr. Jóhannesar Nordals vegna starfsskilyrðanefndarinnar.
Vegna mikils umróts í efnahags- og atvinnulífi margra iðnaðarþjóða á undanförnum árum hafa miklar umræður átt sér stað um markmið og leiðir í iðnaðarmálum.
Efnahags- og framfarastofnun Evrópu hefur haft forgöngu um ráðstefnuhald fyrir aðildarþjóðirnar og ein slík var haldin í Madrid í maí 1980. Af hálfu Íslands sóttu ráðstefnuna Jafet S. Ólafsson viðskiptafræðingur í iðnrn., Vilhjálmur Lúðvíksson formaður samstarfsnefndar um iðnþróun, Þórður Friðjónsson hagfræðingur forsrn., og Þorvarður Alfonsson framkvæmdastjóri Iðnþróunarsjóðs, en í frásögn þeirra af fundinum segir svo, með leyfi forseta:
„Í stórum dráttum má segja að eftirfarandi hafi komið fram um iðnaðarstefnu, sem flestir virtust sammála um:
1. Iðnaðarstefna er skilgreind sem yfirlýsing stjórnvalda til samfélagsins og aðila iðnaðarins um þau markmið, sem stefnt skuli að, og þær leiðir, sem farnar skuli, og tæki, sem notuð verði.
2. Undirstöðuatriði jákvæðrar og árangursvænlegrar iðnaðarstefnu eru:
Sem allra mest frelsi í viðskiptum milli landa og svæða. Öfl markaðarins verði látin ráða ákvörðunum um framleiðslu eins mikið og frekast er unnt og haldið við dreifðri ákvarðanatöku og frumkvæði í þeim efnum.
Iðnaðarstefna á að vera vaxtarstefna en ekki varnarstefna. Aðeins með vaxtarstefnu er hægt að uppfylla efnahagslegar og félagslegar óskir á hendur atvinnulífinu.
Aðalþættir iðnaðarstefnu séu hagstæð almenn skilyrði fyrir arðbæran rekstur fyrirtækja. Inngrip stjórnvalda til að verja fyrirtæki gegn afleiðingum samkeppni verði aðeins í neyðartilvikum og miðist þá við að greiða fyrir sem skjótastri aðlögun fyrirtækjanna eða stöðvun rekstrar ella.
Aðgerðir stjórnvalda til að styðja við nýsköpun í iðnaði verði aldrei til þess að afvegaleiða viðskiptalegan hugsunarhátt hjá fyrirtækjum. Stefnumótun og aðgerðir stjórnvalda miði að því að skapa einhug og samstöðu um eflingu iðnaðar og þannig byggt á gagnkvæmum stuðningi stjórnvalda, fyrirtækja, samtaka og stofnana iðnaðar, svo og velvilja og skilningi almennings, ekki síst starfsliðs í iðnaði. Sérstök áhersla sé lögð á að skapa jákvæð viðhorf gagnvart aðlögun og breytilegum samkeppnisskilyrðum með
1. góðu upplýsingastreymi,
2. ráðgjöf um stjórnunarmál, markaðs- og rekstrartæknileg efni,
3. öflugri aðstoð við starfsþjálfun og endurmenntun,
4. hvatningu til nýsköpunar á vegum fyrirtækja með stuðningi við rannsóknar- og þróunarstarfsemi,
5. aðstoð við að færa framleiðsluþætti úr hnignandi greinum yfir í lífvænlegar greinar.“
Meira les ég ekki úr þessari skýrslu frá þeim ágætu mönnum, nokkurs konar landsliði iðnaðarins sem sent var til Madrid á ráðstefnu OECD og skilaði þessari skýrslu, en í henni er ljóslega bent á að allir eða flestir á ráðstefnunni virðast hafa verið sammála þeim atriðum sem ég hef nú lesið. Athyglisvert er að þetta eru þau sömu sjónarmið sem koma fram í þáltill. sjálfstæðismanna, en sum þeirra er því miður ekki að finna í þáltill. hæstv. ríkisstj.
Eins og fyrr sagði er þáltill. okkar sjálfstæðismanna byggð á þeirri till. sem lögð var fram af hæstv. ríkisstj. á s. l. ári, ásamt brtt. sem fram komu við meðferð málsins, bæði frá sjálfstæðismönnum og eins umsagnaraðilum hv. atvmn. Sþ. Mun ég fyrst greina frá helstu atriðum sem koma fram í l. kafla þáltill., um markmið. Inngangur kaflans eða þrjár fyrstu línurnar eru nánast samhljóða þeirri þáltill. sem hæstv. iðnrh. mælti fyrir á síðasta Alþingi. Það furðulega hefur þó gerst, að í hinni nýju þáltill. hæstv. iðnrh. er ekki lengur að finna orðasambandið „að fela ríkisstj. að beita sér fyrir framkvæmd iðnaðarstefnu“, heldur stendur á þskj. 162 aðeins: „ályktar Alþingi að stuðla beri að framkvæmd iðnaðarstefnu“. Þetta er út af fyrir sig athyglisverð breyting og gerir hæstv. iðnrh. án efa grein fyrir henni þegar hann flytur framsöguræðu fyrir sinni þáltill. hér á eftir.
1. tölul. kaflans um meginmarkmiðin á þskj. 87 í þáltill. okkar sjálfstæðismanna er nýr og hljóðar þannig, með leyfi forseta:
„Að skapa iðnaðinum almenn skilyrði fyrir arðbæran rekstur fyrirtækja og að byggja iðnþróun á grundvelli fríverslunar og athafnafrelsis og örva til nýrra átaka á sviði nýjunga í framleiðslu.“
Áherslan hvílir sem sagt á því, að skilyrðin verði almenn og stefnt sé að arðbærum rekstri og grundvöllurinn verði fríverslun og athafnafrelsi. Eru þetta sömu viðhorf og komu fram hjá langflestum þeim aðilum sem sóttu fund OECD í Madrid fyrir tæpum tveimur árum.
2. tölul. er eins í till. sjálfstæðismanna og till. hæstv. ríkisstj. Í 3. tölul. má finna nokkurn mun, sem þó er ekki verulegur. 4. tölul. er eins, en mikill munur er á efnisatriðum sem koma fram í 5. tölul. í markmiðakafla sjálfstæðismanna annars vegar og hæstv. ríkisstj. hins vegar. Sá töluliður fjallar um orkufrekan iðnað í landinu.
19 þingmenn Sjálfstfl. hafa flutt þáltill. á þskj. 131 um hagnýtingu orkulinda landsins til stóriðju. Þessir 19 þingmenn eru sömu þingmenn og þeir sem flytja þá till. sem hér er til umræðu, en á þskj. 131 er gerð nánari grein fyrir stóriðjustefnu Sjálfstfl., og í 3. tölulið stóriðjuályktunartillögunnar segir svo, með leyfi forseta:
„Við uppbyggingu stóriðju verði haft samstarf við innlend og erlend fyrirtæki, sem hafa yfir að ráða nauðsynlegri tækniþekkingu, markaðsstöðu og fjármagni. Í samstarfssamningum við þau og samningum um eignaraðild að stóriðjuverum skal fara eftir eðli hvers máls og aðstæðum á hverjum tíma. Í öllum slíkum samningum skal að því stefnt, að innlendir aðilar, sem þess óska, geti þegar í upphafi átt hlut í stóriðjufyrirtækjum og geti þegar fram líða stundir keypt hlut hinna erlendu aðila í þeim.“
Með þessari tilvitnun er skýrt frekar hvað við er átt þegar sagt er að leita verði eftir samvinnu við erlenda aðila eftir því sem nauðsynlegt og hagkvæmt er á hverjum tíma, eins og það er orðað í 5. tölul. markmiðakaflans í þeirri þáltill. sem hér er til umræðu.
Ég fer ekki frekar út í umr. um stóriðju og afstöðu hæstv. ríkisstj. til hennar. Það verður að biða þess tíma er till. sjálfstæðismanna um það mál verður til umræðu.
Þá vík ég að II. kaflanum, um leiðir, en hann svarar til sama kafla í þáltill. hæstv. ríkisstj.
Varðandi 1. tölul. vekur það athygli, að ekki er lengur minnst á virðisaukaskattinn í till. hæstv. ríkisstj. Virðist það benda til þess, að hæstv. ríkisstj. hafi gefið virðisaukaskattinn upp á bátinn, eins og ég minntist áðan á, og er það athyglisvert með tilliti til niðurstaðna starfsskilyrðanefndar sem ég vitnaði til áðan.
2. tölul. fjallar um gengisákvarðanir og er eins orðaður í till. sjálfstæðismanna og till. hæstv. ríkisstj. Það hlýtur að vera iðnaðinum fagnaðarefni ef þessi liður verður samþykktur, ekki síst með tilliti til þess, að síðasta ár, árið 1981, er skólabókardæmi um það, hvernig gengisstefna fer gersamlega í bága við það sem segir í töluliðnum.
3. tölul. er nánast eins orðaður hjá báðum aðilum þótt meiri áhersla sé lögð á að arðsemi sé ráðandi við lánveitingar í þáltill. sjálfstæðismanna.
4. liðurinn er eins hjá báðum aðilum. Í sambandi við hann er rétt að minna á till. sem gerir ráð fyrir því, að hægt sé að auka rannsóknar- og þróunarstarfsemi, t. d. með skattaívilnunum.
Í 5., 6. og 7. tölul. er að finna stefnuyfirlýsingar sem ég sé ekki ástæðu til að fjalla ítarlega um, enda eru þær auðskildar.
Í 8. tölul. er minnst á stjórn ríkisins á iðnrekstri og enn fremur á aðila sem hafi fjárhagslegt bolmagn til að undirbúa og standa fyrir arðvænlegum nýiðnaðarverkefnum. Síðasta setningin er ný. Hún hljóðar þannig, með leyfi forseta:
„Almenningi verði gefinn kostur á að gerast beinn eignaraðili að iðnfyrirtækjum sem nú eru í eigu ríkisins.“ Í nýjustu tillögum hæstv. ríkisstj. er þetta atriði jafnframt að finna. Ýmsum kann að þykja efni 8. tölul. kynlegt, en þar er verið að vísa til efnisatriða sem fram koma í svokallaðri SUI-skýrslu um stofnun nýiðnaðarfyrirtækja. Á bls. 172 í þeirri skýrslu segir m. a., með leyfi forseta:
„Það er skoðun samstarfsnefndarinnar að frumkvæði eða a. m. k. hlutdeild ríkisins verði óhjákvæmileg í stofnun margra stærri nýiðnaðarfyrirtækja. Sýnist nefndinni nauðsynlegt að tekið sé gagngert á því máli með einhverjum hætti. Til álita gæti komið að setja allan iðnrekstur á vegum ríkisins undir eitt eignarhaldsfyrirtæki (holding company), sem m. a. hafi það markmið að fara með hlutverk hins raunverulega eiganda gagnvart fyrirtækjum sem ríkið á aðild að. Þannig fáist eðlilegt eftirlit með rekstrinum og þess gætt, að hann sé í samræmi við eðlilegar arðsemiskröfur og að ákvarðanir eigandans séu teknar með skjótum hætti og verði ekki pólitískt bitbein milli ráðuneyta.
Pólitískar ákvarðanir, sem hafa í för með sér skuldbindingar sem draga úr arðsemi eða auka stofnkostnað, séu aðskildar frá arðsemissjónarmiðum og þá reiknaðar sérstaklega til kostnaðar sem Alþingi eða ríkisstj. taki síðar ákvörðun um. Eignarhaldsfyrirtækið þyrfti að hafa fjárhagslegt bolmagn og sjálfstæði til að stofna ný fyrirtæki sem metin eru arðvænleg og geti látið fara fram rannsóknir og þróunarstarfsemi til undirbúnings lokaákvörðun.“
Síðan segir í sömu bók á bls. 173:
„Lögð er áhersla á nauðsyn þess, að slíku fyrirtæki yrði stjórnað með arðsemissjónarmið í fyrirrúmi, en þó með það skýrt í huga að því er ætlað að taka áhættu og vinna brautryðjendastarf þar sem byrjunarerfiðleikar geta komið upp. Fyrirtækið yrði að ráða yfir mjög hæfu starfsliði á sviði stjórnunar, fjármála, markaðsmála og rekstrartækni og sjá til þess, að reynsla af stofnun og rekstri nýrra fyrirtækja safnist saman og komi að gagni við nýjar framkvæmdir og ný verkefni og bolmagn fáist til að leysa vandamál sem upp koma.“
Hér lýkur tilvitnun í SUf-skýrsluna, en annars er fjallað um þetta efni í ítarlegu máli og væri vissulega ástæða til þess að ræða það sérstaklega, enda er hér drepið á mjög gagnlega hugmynd sem vissulega þarf að færa út og setja í framkvæmanlegan búning.
Í 9. tölul. er minnst á svokallaða iðnráðgjafa, en nýlega voru samþykkt lög um þá hér á hv. Alþingi. Orðalag samsvarandi töluliðar í till. hæstv. iðnrh. er betra, enda nýrra og byggt á lögum sem þegar hafa verið samþykkt.
10. tölul. um iðngarða, er eins hjá báðum.
Í 11. tölul. er minnst á skattalegar aðgerðir, en það er ekki gert í till. hæstv. ráðh.
12. tölul. er eins í báðum till., en hann fjallar um innkaup opinberra aðila. Væri vissulega fróðlegt að heyra það hjá hæstv. iðnrh. hér á eftir, hvernig staðið hefur verið að framkvæmd þessara mála, ekki síst með tilliti til þáltill. sem samþykkt var á Alþingi fyrir nokkrum árum.
Í 13. tölul. er minnst á nýmæli, svokallaða iðnhönnun og listiðnað, og nauðsyn þess að samræma viðleitni í þessum greinum og auka tengsl við framleiðsluiðnaðinn. Í þessum efnum ber nauðsyn til að móta stefnu til að efla iðnhönnun og hvers konar listiðnað, en góð vöruhönnun er eitt þeirra undirstöðuatriða sem byggja verður á í þeirri viðleitni okkar að auka markaðshæfni íslenskrar iðnaðarframleiðslu.
Efni 14. tölul. er gamalkunnugt og í því sambandi hef ég ásamt hv. þm. Guðmundi G. Þórarinssyni og Árna Gunnarssyni lagt fram lagafrumvarp, reyndar í annað sinn, sem er á dagskrá neðri deildar um þessar mundir. Er það frv. til breytingar tollskrárlögum. Á sínum tíma óskaði fjh.- og viðskn. Nd., sem þá laut forustu Lúðvíks Jósepssonar, eftir því, að ríkisstj. legði fram frv. um þetta efni, en það hefur enn ekki, þremur árum síðar, séð dagsins ljós. Ítrekaðar tilraunir þingmanna til að koma málinu í gegnum þingið hafa ekki tekist hingað til. Gera verður ráð fyrir að við endurskoðun tollskrárlaga, sem hæstv. fjmrh. hefur lýst yfir að séu á dagskrá í fjmrn., verði tekið tillit til þessara viðhorfa og þannig efnt það loforð sem iðnaðinum var gefið við inngöngu Íslands í EFTA á sínum tíma.
Í 15. tölul. er fjallað um verðlagsmál og tekið ákveðnar til orða en gert er í samsvarandi grein í tillögum hæstv. ráðh. Sem betur fer hafa verið á kreiki fregnir um að lögum um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti verði breytt í átt til fyrra horfs innan tíðar. Eiga þær sögusagnir vonandi við rök að styðjast, en hæstv. ráðh. getur að sjálfsögðu staðfest það í sinni ræðu.
Í 16. tölul. er rætt um fjármunamyndun í iðnaði og bent á að ná megi markmiðinu fram með breytingum á skatta- og verðlagslögum, en þessi till. og hugmyndin í 11. tölul. um að nota skattalegar aðgerðir er ábending sem send var hv. atvmn. á síðasta ári frá Sambandi ísl. samvinnufélaga.
Af þeim töluliðum, sem eftir eru, tel ég ekki nauðsynlegt að gera grein fyrir nema 17. tölul., en þar segir svo, með leyfi forseta:
„Einstaklingsframtakið verði virkjað til nýrra átaka á sviði iðnþróunar með því að skapa einkarekstri og samtökum einstaklinga eðlileg almenn rekstrarskilyrði og þar með að á engan hátt verði fyrirtækjum mismunað skattalega eftir rekstrarformum. Stuðlað verði að aukinni samvinnu stjórnenda og starfsfólks fyrirtækja í samráði við samtök launþega og atvinnurekenda í iðnaði.“
Hér er tekið á efnisatriði sem Sjálfstfl. hefur ætíð lagt mikla áherslu á, einkum þó mismunandi skattareglur eftir rekstrarformum.
Í III. kafla þáltill. er vikið að framkvæmd stefnunnar.
Tvær fyrri mgr. í þessum kafla eru sama efnis og koma fram í till. hæstv. ríkisstj., eins og þær eru nú og eins og þær voru áður. En í 3. mgr. er lagt til að komið verði á fót svokallaðri „samstarfsnefnd um framkvæmd iðnaðarstefnu“, sem í eigi sæti samkvæmt tilnefningu einn fulltrúi frá hverjum þingflokkanna, viðskrn., fjmrn., Félagi ísl. iðnrekenda, Landssambandi iðnaðarmanna, Landssambandi iðnverkafólks og fulltrúi iðnrn., sem jafnframt verði formaður nefndarinnar. Flm. þessarar þáltill. telja afar mikilvægt að þessari nefnd verði komið á laggirnar og hún taki við, þar sem störf samstarfsnefndar um iðnþróun enduðu, og verði þannig samstarfsvettvangur þeirra aðila sem þessi mál snerta.
Ég sé ekki ástæðu til að gera frekari grein fyrir einstökum atriðum og töluliðum í sjálfri tillgr.
Á landsfundi Sjálfstfl., sem haldinn var um mánaðamótin okt.-nóv. s. l. haust, var samþykkt með öllum atkvæðum till. um stefnu í atvinnumálum sem hlotið hefur nafnið: „Leiðin til bættra lífskjara“. Í þessum efnum voru allir sjálfstæðismenn sammála, burt séð frá afstöðu til hæstv. ríkisstj. Stefna Sjálfstfl. er hagvaxtarstefna sem leggur áherslu á nauðsyn þess að leysa úr læðingi atorku, hugvit og framtak einstaklinga og örva þannig atvinnustarfsemina. Eins er undirstrikað mikilvægi þess að nýta orkulindir landsins til að bæta lífskjörin í landinu. Sérstakur kafli er um iðnaðinn og þykir mér rétt að lesa hann hér til að kynna efni hans í umræðum um iðnaðarmál á Alþingi. Kaflinn er svohljóðandi, með leyfi forseta:
„Íslenskur iðnaður hefur tekið sér stöðu sem einn af undirstöðuatvinnuvegum þjóðarinnar. Hann mun í vaxandi mæli taka við því hlutverki að vera vaxtarbroddur atvinnulífsins og ein helsta undirstaða aukinnar atvinnu og batnandi lífskjara þjóðarinnar. Við mikilvægar ákvarðanir í efnahagsmálum verður því að taka fullt tillit til hagsmuna hans, afkomu og atvinnuöryggis þeirra sem í iðnaðinum starfa. Iðnaðurinn þarf að njóta jafnréttis um aðstöðu og starfsskilyrði á öllum sviðum gagnvart öðrum innlendum atvinnugreinum og erlendum keppinautum. Nauðsynlegt er að iðnaður fyrir heimamarkað endurheimti sína fyrri stöðu og eflist frekar, en skilyrði þess er að hér á landi verði atvinnulíf í blóma, þjóðinni fjölgi eðlilega og sæmilegur stöðugleiki ríki í efnahagsmálum.
Fyrir aðra undirstöðuatvinnuvegi landsins hefur sterkur iðnaður ómetanlega þýðingu, hvort sem litið er til mannvirkja- og vélaframleiðslu og þjónustu eða daglegra nauðsynja. Þannig má minna á skipasmíðar og viðgerðir, smíði fiskvinnslutækja og veiðarfæragerð í þágu útgerðar og fiskvinnslu.
Rafeindatækni og örtölvur opna nýjar leiðir í iðnaði. Á því sviði eru framtíðarmöguleikar bæði hvað varðar framleiðslu fyrir innlendar þarfir og útflutning. Stóraukin nýting jarðhita og vatnsorku hefur opnað nýja markaði innanlands sem iðnaðurinn sinnir í auknum mæli. Uppbyggingu stóriðju til útflutnings munu á sama hátt fylgja fjölbreytt iðnaðarverkefni í öllum landshlutum. Framleiðsla iðnaðarvöru til útflutnings hefur aukist meira en bjartsýnustu menn þorðu að vona. Framleiðsla ullar- og skinnavöru er nú ein sér orðin mikilvægur þáttur í þjóðarbúskapnum og veitir mikla atvinnu á fjölmörgum stöðum á landinu.
Annar útflutningur, sem á sama hátt byggist á sérhæfðri þekkingu og reynslu landsmanna, hugviti og verkhönnun, er einnig óðum að hasla sér völl á erlendum mörkuðum. Það væri hörmulegt ef aðgerðir íslenskra stjórnvalda yrðu til þess, að erlendir markaðir sem aflað hefur verið í harðri samkeppni við erlendan keppinaut, töpuðust.
Höfuðnauðsyn er að eðlileg skilyrði og efnaleg hvatning séu ætíð fyrir hendi til þess að íslenskt hugvit og þekking og sérstök hráefni nýtist til atvinnuuppbyggingar. Hér hafa einstaklingsframtak og lítil fyrirtæki sérstöðu, brautryðjendahlutverki að gegna þjóðarheildinni til hagsbóta.
Sjálfstfl. telur jafnframt að nú séu hagstæð skilyrði til þess að nýta orkulindir þjóðarinnar í stórum stíl til iðnaðar víða um land eins og gerð hefur verið grein fyrir hér að framan.“
Hér lýkur tilvitnun í stefnu Sjálfstfl. í atvinnumálum, þar sem fjallað er um iðnaðarmál og ég vildi koma á framfæri einkum og sér í lagi þar sem ekki gefst oft tækifæri til þess hér í þingsölum að ræða málefni iðnaðarins, nema þá þegar hæstv. iðnrh. hefur lagt fram sína þáltill. sem hann hefur gert nú fjórum sinnum og minnst hefur verið á.
Ég hef fengið í hendur framreiknað rekstraryfirlit útflutningsiðnaðar árið 1980 frá Þjóðhagsstofnun. Þar kemur fram, sem reyndar allir vita, að verulegt tap er og verður á nokkrum greinum sem hingað til hafa verið að byggjast upp í landinu, en ég sé ekki ástæðu til þess að lesa það upp í einstökum tölum.
Sú þáltill., sem hér er til umr., er lögð fram fyrst og fremst til þess að sýna áhuga sjálfstæðismanna á því, að iðnaðarstefna verði mörkuð á hinu háa Alþingi. Við viljum sýna þennan vilja í verki og sýna vilja til samstarfs við þá sem árangurslaust hafa reynt hingað til að koma sínum stefnumiðum fram á Alþingi. Ég tel ástæðu til þess að vera bjartsýnn um að það takist á yfirstandandi þingi, ekki síst vegna þess að báðir aðilar, bæði flm. þessarar till. og eins flm. stjórnartillögunnar, hafa teygt sig í átt hvorir til annarra og veit það að sjálfsögðu á gott. Í hv. atvmn. mun ég vinna að sameiningu þessara tillagna og minni á að þrír flm. till. eru í þeirri hv. nefnd, þar með formaður nefndarinnar. Mér er jafnframt kunnugt um að fulltrúi Alþfl. í nefndinni hefur haft svipuð viðhorf til málsins, enda tók hann þátt í viðræðum á s. l. vori sem urðu á milli okkar og hæstv. ráðh. um þetta mál, en þá strandaði málið á því, að ekki náðist samkomulag innan stjórnarflokkanna.
Ég vil leggja aðaláherslu á örfá atriði í þessari þáltill. Þar er í fyrsta lagi um að ræða 1. tölul. í markmiðakaflanum sem ég hef rækilega gert skil, en það atriði kemur ekki nægilega skýrt fram í þáltill. hæstv. ríkisstj.
Í öðru lagi vil ég benda á 5. tölul., þar sem fjallað er um orkufrekan iðnað og bent á hvernig með fordómalausum hætti má eiga samvinnu við erlenda aðila til að nýta okkar eigin auðlindir. Þetta kemur ekki nægilega skýrt fram í þáltill. hæstv. ríkisstj., en ugglaust verður hægt að sveigja það til í nefndarstarfinu.
Loks vil ég í sambandi við leiðirnar leggja áherslu á 17. tölul. þar sem fjallað er um mismunun í skattalögum. Varðandi framkvæmd stefnunnar tel ég það vera mjög mikilvægt, ef samþykkt slíkrar tillögu á að vera einhvers virði, að sett verði á laggirnar samstarfsnefnd um framkvæmd iðnaðarstefnu, eins og þar er gert ráð fyrir. Aðalatriðið er hins vegar að þetta mál nái fram að ganga með þeim hætti sem ég veit að flestir geta sætt sig við. Og með þeim orðum vil ég ljúka máli mínu.