27.01.1982
Neðri deild: 34. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2028 í B-deild Alþingistíðinda. (1716)

167. mál, almannatryggingar

Frsm. (Guðrún Helgadóttir):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. um frv. til l. um almannatryggingar, sem er 167. mál þingsins, þskj. 261. Hér er um að ræða breytingar sem nauðsynlegt var að gera á almannatryggingalöggjöfinni vegna barnalaga sem samþ. voru á síðasta löggjafarþingi og tóku gildi 1. jan. s. l. Það var því brýnt að mál þetta fengi hraða afgreiðslu þar sem Tryggingastofnun ríkisins hefur ekki getað hafið greiðslur samkv. ákvæðum barnalaganna.

Við umr. um frv. hér í hv. deild minntist ég á breytingu sem ég taldi ástæðu til að gera úr því að 14. gr. almannatryggingalaga væri hér til meðferðar. Var sú breyting fólgin í því, að setningin „enda eigi barnið lögheimili hér á landi“ í 2. mgr. 1. gr. félli niður og næsta orð á eftir henni breyttist í „hafi“, en síðan verði greinin eins og þar segir. Rakti ég rök fyrir þessari breytingu þá og skal ekki fjölyrða um hana hér, en um er að ræða réttindamissi barna öryrkja og barnalífeyris séu þau búsett erlendis og jafnframt sama réttindamissi barna látins foreldris við sömu aðstæður. Þessi breyting varðar örfáa einstaklinga svo að hér er ekki um neina fjárhæð að ræða sem máli skiptir, en vissulega óréttlæti bæði gagnvart börnum og foreldrum sem ástæðulaust er að viðhalda.

Nefndin fékk sér til ráðuneytis Hilmar Björgvinsson deildarstjóra í Tryggingastofnun ríkisins og studdi hann ofangreinda brtt. og frv. að öðru leyti. Kvað hann einnig mikilvægt að afgreiðslu þess yrði hraðað sem mest mætti verða.

Nefndin varð sammála um að mæla með samþykkt frv. með þessari áðurnefndu breytingu. En einnig var nefndinni bent á að dagsetning gildistöku eins og hún er í frv., þ. e. 1. jan. 1982, fengi ekki staðist þar eð lög tækju ekki gildi fyrr en hið háa Alþingi hefði samþykkt þau. Því leggur nefndin einnig fram brtt. um að 6. gr. frv. orðist eins og segir á þskj. 286: Lög þessi öðlast þegar gildi, og skulu ákvæði þeirra um réttindi og skyldur til samræmis við barnalög, nr. 9 15. apríl 1981, gilda frá og með 1. jan. 1982.“ Þá var um það rætt í nefndinni, hvort a-liður 4. gr. frv. ætti rétt á sér þegar kona nýtur fæðingarorlofs, en þar er um að ræða greiðslu frá barnsföður í allt að þrjá mánuði sem yfirvald getur gert barnsföður að greiða henni. Sams konar ákvæði var í lögum um almannatryggingar þar til lög um fæðingarorlof voru sett, en þá var það fellt niður þar sem fæðingarorlof var talið bæta þann tekjumissi sem er skilyrði fyrir greiðslunni. Nefndin vill því beina þeim tilmælum til hæstv. heilbr.- og trmrh., að hann sjái til þess, að sami háttur verði hafður á við framkvæmd a-liðar 4. gr, frv., verði það að lögum, að fæðingarorlofsgreiðsla skerði rétt til greiðslu samkv. a-liðnum og þar með samkv. 1. mgr. 20. gr. barnalaga, nr. 9 frá 1981. Verði dómsaðilum í úrskurðarmálum barnsfaðernismála kynntur sá skilningur verði hann viðurkenndur.

Annað hef ég ekki um þetta nál. að segja og vil þakka nefndinni fyrir skjóta og góða afgreiðslu. Hæstv. ráðh. Pálmi Jónsson var fjarstaddur afgreiðslu málsins.