27.01.1982
Neðri deild: 34. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2035 í B-deild Alþingistíðinda. (1723)

168. mál, dýralæknar

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Ég ætla hér aðeins að gera að umræðuefni umdæmaskiptinguna, þann hluta sem snertir Vestfirði. Í 10. lið er talað um Strandaumdæmi: Strandasýslu. Þar sem nokkur ár geta liðið áður en þetta frv. verður komið til framkvæmda að fullu þykir mér einsýnt að akvegur verður kominn yfir Steingrímsfjarðarheiði þegar þar að kemur. Þess vegna óska ég eftir því, að leitað verði álits hreppsnefnda við Ísafjarðardjúp, þ. e. í Snæfjallahreppi, Nauteyrarhreppi, Reykjarfjarðarhreppi og Ögurhreppi, til að fá úr því skorið hvort þeir telja hagkvæmara fyrir þá að tilheyra Ísafjarðarumdæmi eða Strandaumdæmi hvað þessa þjónustu snertir. Það er óvíst að þeir mundu allir taka sömu afstöðu, en stór hluti íbúa af þessu svæði ætti um styttri veg að fara til Hólmavíkur en til Ísafjarðar.