27.01.1982
Neðri deild: 34. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2036 í B-deild Alþingistíðinda. (1725)
168. mál, dýralæknar
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Ég vil þakka landbrh. fyrir þá yfirlýsingu hans, að hann skuli vera opinn fyrir því að vilji heimamanna ráði í þessum efnum og dýralæknarnir sitji báðir á Húsavík. Sá misskilningur hefur komist inn í skjöl þessa máls, að vilji Búnaðarsambands Suður-Þingeyjarsýslu standi til annars. M. a. verður ekki annað ráðið af gögnum sem liggja fyrir í þinginu um það frv. sem við hv. 6. þm. Norðurl. e. lögðum fram á síðasta Alþingi. En sannleikur málsins er sá, að á síðasta Alþingi, sendi stjórn Búnaðarsambandsins þinginu erindi þar sem m. a. var talað um að Hálshreppur færðist í Þingeyjarþingsumdæmi vestra. En nokkru síðar sendi Búnaðarsambandið sjálft, aðalfundur þess, aðra umsögn sem var hliðholl þeirri skiptingu sem við hv. 6. þm. Norðurl. e. lögðum til á síðasta Alþingi.
Ég vil jafnframt geta þess, að yfirlýsing liggur fyrir frá hæstv. fjmrh. við 3. umr. fjárlaga um að ekkert sé því til fyrirstöðu frá hans hálfu að þessi dýralæknir geti tekið til starfa svo fljótt sem kostur er. Ég vil þess vegna beina því til nefndarinnar að hraða störfum sem mest til þess að hægt sé að auglýsa dýralæknisumdæmin í Þingeyjarsýslu sem fyrst. Það lá fyrir loforð um það á síðasta þingi, að þetta mál yrði afgreitt það snemma að hægt væri að taka tillit til þess við afgreiðslu fjárlaga. Það reyndist ekki unnt fyrir áramótin, en ég vil vænta þess, að hv. landbn. hraði mjög störfum sínum svo að frekari dráttur verði ekki á þessu máli. Það er alveg ástæðulaust. Allir viðurkenna þá brýnu þörf sem er á dýralæknum í Þingeyjarþingsumdæmi. Á s. l. vori jaðraði við neyðarástand vegna þess, hversu illa var að því dýralæknisumdæmi staðið. Ég vil líka benda á að veturinn hefur verið þannig, að búast má við öllu hinu versta þegar kemur fram á vorið.