27.01.1982
Neðri deild: 34. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2047 í B-deild Alþingistíðinda. (1731)

125. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Karvel Pálmason:

Herra forseti. S. l. miðvikudag, þegar þetta mál var hér til umr., óskaði ég eftir því við hæstv. forseta, að 1. umr. þess yrði ekki lokið án þess að tækifæri gæfist til þess við þá umr. að ræða við hæstv. ráðh. og þá fyrst og fremst hæstv. forsrh. En þá stóð á eins og nú, að lítið sem ekkert af ráðherrum var í deildinni. Það er orðinn daglegur viðburður — og raunar undantekning ef hæstv. ráðh. sitja hér undir umr. Hæstv. forseti var ekki alls kostar hress yfir þeirri ósk og gat þess, að nægur tími gæfist til þess við 2. umr., eftir að málið kæmi úr nefnd, að ræða við hæstv. ráðh. um það. Ég vil taka það fram, að ef hæstv. forseti getur tryggt að þetta mál komi úr nefnd til 2. umr. hér í deildinni, þá mun ég að sjálfsögðu falla frá slíkri ósk. En ég óttast að núv. meiri hl. á Alþingi — eins og hv. stjórnarliðar, a. m. k. tveir hafa talað í þessari umr. — ætli sér að drepa þetta mál í nefnd þannig að það komi ekki til 2. umr. Í ljósi þess er full ástæða til að ég ítreki þá ósk mína, að þessari umr. verði ekki lokið án þess að tækifæri gefist til að tala við hæstv. ráðh., fyrst og fremst forsrh.

Aðeins örfá orð út af því sem hér hefur komið fram. Það er gamalkunnugt orðatiltæki að margt sé skrýtið í kýrhausnum. Ég verð nú að segja að það er ekki síður margt skrýtið í haus þeirra framsóknarmanna sem hér hafa talað í þessari umr.

Hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson talaði hér s. l. miðvikudag og sagði þá — eins og þessir menn oftast hafa uppi haft áður í orði, en ekki reynst verða í reynd á borði — að Alþingi og þjóðarheildin gæti ekki skotið sér undan jöfnun á orkuverði. Þetta sagði þessi hv. þm. nokkrum vikum eftir að hann hafði staðið að því hér á Alþingi við afgreiðslu fjárlaga að skattleggja þjóðarheildina um 190 millj. til þess að jafna orkuverð í landinu, en stela síðan 160 millj. af því í ríkissjóð til annarrar eyðslu. Þetta er málflutningur sem ég held að sé nauðsynlegt að vekja athygli á. Og þetta á raunar líka við og ekki síður um hv. þm. Alexander Stefánsson. Hann sagðist hér við fyrri umr. fylgja heils hugar öllum tillögum til jöfnunar og stendur á sama hátt að því við afgreiðslu fjárlaga að skattleggja um 190 millj. skattþega landsins til þess beinlínis að jafna orkuverð, en síðan taka þessir ágætu menn 160 millj. af þessum 190 til annarra þarfa í ríkissjóð.

Þetta er auðvitað hreint út talað — það má kannske ekki segja ljót orð hér, maður verður að hugsa sig um áður, en hér er að mínu viti — (Gripið fram í.) Hvað segir hv. skrifari? (Gripið fram í: Það er of seint séð að ætla að fara að iðrast núna eftir að hafa sagt ljót orð.) Það hefur ekkert verið sagt svo ljótt enn að það eigi ekki við báða þessa hv. þm. — ekki enn. Það er allt í fullu gildi sem um þá hefur verið sagt enn við þessa umr. En hér er beinlínis verið að fara aftan að fólkinu í landinu. Hér er framkvæmd skattheimta á fölskum forsendum. Hvað sem líður fjálglegum yfirlýsingum þessara annars ágætu þm. í mörgum tilfellum, þá er hér verið að fara aftan að fólki í landinu með skattheimtu sem er notað til annars en látið er í veðri vaka. Síðan geta þessir hv. þm. komið hér upp og lýst fjálglega yfir því, að þeir fylgi heils hugar öllum tillögum til jöfnunar á orkuverði, þrátt fyrir þær staðreyndir sem við blasa, að þeir hafa svikið þau gefnu fyrirheit og loforð um að láta þá peninga, sem aflað er með skattheimtu til jöfnunar á orkuverði, renna til þess þáttar. Þessir ágætu menn ættu að lesa stjórnarsáttmálann oftar en þeir gera því að þeir virðast ekki vita hvað í honum stendur. Þar eru gefin fullkomin fyrirheit af hálfu hæstv. ríkisstj., sem þessir báðir þm. styðja, um að jafna orkuverð í landinu og þá fyrst og fremst orkuverð til húshitunar.

Hv. þm. Alexander Stefánsson sagði að mönnum blöskraði þessi mismunum, menn þyrftu að borga 6–8 sinnum hærra verð t. d. í Ólafsvík fyrir kyndingu á íbúðarhúsnæði heldur en hér á Reykjavíkursvæðinu. Þessum ágæta þm. blöskrar nú ekki meira en svo að hann greiðir atkvæði með því að stela 160 millj. af því fé sem átti að fara til þessa. Manni blöskrar, nánast klígjar við því að heyra þessa þm. tala með þeim hætti sem þeir gera hér, þrátt fyrir að hægt sé að benda á þá staðreynd, að þeir breyta þveröfugt við það. Þegar á reynir og þeir standa frammi fyrir því að geta fullnægt réttlætinu a. m. k. að einhverju leyti, þá gera þeir það svona.

Hv. þm. Alexander Stefánsson sagði að þetta frv. væri bæði vitlaust og vonlaust. Það eina, sem hann rökstuddi þessar fullyrðingar sínar með, var að gamla fólkið, þ. e. elli- og örorkulífeyrisþegar, væri skilið eftir. Það hefur margoft verið tekið fram við umr. um þessi mál hér í þinginu af hálfu þm. Alþfl., að þetta frv. væri ekki nema hluti af lausninni, sú lausn, sem þyrfti að fylgja að því er varðaði elli- og örorkulífeyrisþega og aldraða, þyrfti að koma í gegnum tryggingakerfið t. d. Það mætti kannske skamma Alþfl.-þm. fyrir að hafa ekki jafnframt flutt slíkt frv. (Gripið fram í: Viltu ekki byrja á því, hv. þm.?) Það þyrfti helst að taka það jafnhliða. (Forseti: Ekki samtal á fundinum.) En þá ætti þessi hv. þm. að manna sig upp í það sem meirihlutaaðili hér á hv. Alþingi að koma slíkri breytingu á, hafi hann dug í sér til þess og meini hann eitthvað með þessu tali. Það mun sannarlega ekki standa á þm. Alþfl. að stuðla að lausn á þeim þætti. Raunar hefur verið flutt hér í þinginu, eins og hv. þm. Magnús H. Magnússon benti á af hálfu Alþfl. frv. sem gerir ráð fyrir að leysa þetta með öðrum hætti. En hv. þm. Alexander Stefánsson lýsti ekki heldur fylgi við það frv. þrátt fyrir fjálglegar yfirlýsingar um heils hugar stuðning við allar tillögur til jöfnunar. Þá benti hv. þm. Alexander Stefánsson á það, að nú væri nefnd að ljúka störfum sem skipuð hefði verið til þess að gera till. um þessi mál. Það hefði verið ástæða til þess að spyrja hæstv. forsrh. — kannske hæstv. menntmrh. eða hæstv. félmrh. viti það? — hvenær þessari nefnd er ætlað að ljúka störfum eða hvort hún er komin á lokastig með sína vinnu. Ég beini þeirri spurningu til beggja þessara ráðh., hvort þeir geti upplýst þingheim um það, hvenær nefndin muni ljúka störfum og hvort að því sé að koma á allra næstu dögum.

Þá taldi hv. þm. Alexander Stefánsson furðulega þá yfirlýsingu mína þegar ég hefði sagt hér að samþykkt þessa frv. væri lykillinn að lausn vinnudeilna á Vestfjörðum. Það sagði ég að vísu aldrei, en það hefði getað átt fullkomlega við að samþykkt frv. gæti verið lykillinn að lausn þeirrar vinnudeilu sem nú stendur yfir — og ekki bara fyrir vestfirskt verkafólk, margt af launafólki og verkafólki í kjördæmi hv. þm. Alexanders Stefánssonar á við sömu vandamál að stríða, svo að lausn í þessa átt væri ekki bara fyrir Vestfirðinga, hún væri fyrir stóran hóp fólks víðs vegar um landið. En kannske má ekkert gera í málinu af því að krafan er uppi á Vestfjörðum, það sé þar sem hnífurinn stendur í kúnni, að ekki megi taka tillit til þessara óska.

En það er rétt sem hér hefur verið sagt af fleiri en einum hv. ræðumanni, að hér hefur forustusveit verkalýðshreyfingarinnar brugðist. Og af hverju skyldi það vera? Það er fyrst og fremst vegna þess að sú forusta, sem ráðið hefur og ræður enn, er búsett á því svæði sem við erum nú á og þarf ekki að búa við þessi orkukjör á orkuverði. En nú hefur það sýnt sig, að til er í landinu forusta innan verkalýðshreyfingar sem setur slíka réttlætiskröfu á oddinn. Það er gert af hálfu Alþýðusambands Vestfjarða. Og hver eru þá svör stjórnvalda, ráðandi manna eins og hv. þm. Alexanders Stefánssonar? Slík krafa er virt að vettugi. Hæstv. ríkisstj. í umboði þessa hv. þm. hefur virt að vettugi kröfu til jöfnunar í þessa átt, hvað sem líður fjálglegum yfirlýsingum hv. þm. En eitt er víst, að ef þessir hv. þm. og stjórnarliðar hér á Alþingi almennt, meiri hl. Alþingis, ætlar áfram að virða þessa réttlætiskröfu að vettugi, þá eru þeir fyrir fram — og kannske enginn skaði skeður — þá eru þeir pólitískt að drepa sjálfa sig. (Gripið fram í.) Rétt er það, það er því betra. Ég átti bara eftir að bæta því við, en menn hafa skilið það hér. (Gripið fram í.) Menn hafa skilið það og hugsað hvað átt er við.

Það er alveg klárt mál, að þessi krafa um jöfnun, ekki síst á þessu sviði, rís svo hátt nú að ekki verður undan því vikist að taka tillit til hennar. Það duga ekki lengur fjálglegar, ómerkilegar yfirlýsingar, eins og þeirra hv. þm. Framsfl. sem hér hafa talað, meðan staðreyndirnar og verk þeirra sýna allt annað í reynd. Það var upplýst hér í umr. áðan af hv. þm. Magnúsi H. Magnússyni, að til þess að ná réttlæti í þessu máli, taka tillit til meiri kostnaðar við kyndingu úti á landi, að viðbættum sköttum sem fólk þarf að borga af umframtekjum vegna þessa mikla kostnaðar, þyrfti verðbótavísitalan að vera 16–17% hærri úti á landi. Ég skil ekki þm. þeirra kjördæma sem búa við svo hrikalegan ójöfnuð, að þeir skuli leyfa sér að standa hér upp á hv. Alþingi með slíku tali sem þeir hafa tamið sér í þessum umr. Er þá fyrst og fremst átt við þm. Framsfl., því að enn hefur enginn af hv. þm. Alþb. lagt í það að rísa hér upp og tala í þessu máli, þó að þar séu í sveit fyrst og fremst þeir sem að eigin mati eru forsvarsmenn þeirra sem minnst mega sín í landinu. En að þessir þm. skuli leyfa sér að tala með þeim hætti sem þeir hafa gert, þrátt fyrir það, sem á undan er gengið, og þær staðreyndir, sem í málinu eru, það er raunar furðulegt. Það má sjálfsagt búast við því, eigi þessi afstaða að ráða áfram, að fólk verði látið fara að borga hærra afnotagjald af útvarpi og sjónvarpi t. d. úti á landi heldur en hérna í Reykjavík. Það væri í anda þeirrar stefnu sem þessir þm. Framsfl. hafa í reynd, hvað sem þeir segja.

Allt tal þeirra manna, sem eru berir að því að breyta þveröfugt við það sem þeir hafa sagt, er hjóm eitt og að engu hafandi, ekkert mark á því takandi. Það er vissulega von til þess, að almenningur í landinu hafi það sem víti til varnaðar við næstu kosningar, þegar að því kemur, að það eru þessir menn fyrst og fremst sem hafa svikið í þessu mesta réttlætismáli þess fólks sem verst er sett.