28.01.1982
Sameinað þing: 44. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2072 í B-deild Alþingistíðinda. (1739)
354. mál, efnahagsmál
Dómsmrh. (Friðjón Þórðarson):
Herra forseti. Góðir hlustendur. Spurningu þeirri, sem Friðrik Sophusson alþm. beindi til mín áðan, tel ég fullsvarað með þeim orðum sem hér fara á eftir:
Á veturnóttum s. l. haust var þjóðhagsáætlun fyrir árið 1982 lögð fram á Alþingi. Var þar fjallað um meginmarkmið í efnahagsmálum, þróun þeirra að undanförnu og framtíðarhorfur. Þar voru ítrekuð þau markmið sem ríkisstj. lýsti yfir í öndverðu sem meginverkefnum: að tryggja afkomu atvinnuveganna og næga og örugga atvinnu um allt land, að draga úr verðbólgu og viðskiptahalla, að halda uppi kaupmætti almennra launa eftir föngum. Í þjóðhagsspánni var enn fremur reynt að segja fyrir um búskaparhorfur á komandi ári. En skjótt skipast veður í lofti. Þó að ekki séu liðnir nema röskir þrír mánuðir frá því að spá þessi leit dagsins ljós hafa horfur um aflaföng og afkomu þjóðarbúsins breyst til hins verra, svo sem rakið hefur verið í skýrslu frá ríkisstj. Verður því að leita leiða til að bregðast við þeim vanda.
Hæstv. forsrh. hefur nú greint frá þeim úrræðum sem valin hafa verið í þessu skyni. Að sjálfsögðu hefur ríkisstj. fjallað um þessi málefni öll á mörgum fundum á undanförnum vikum ásamt ráðgjöfum sínum og sérfræðingum. Það er tímanna tákn að ýmsar fréttir hafa borist út af fundum þessum sem dagblöð og aðrir fjölmiðlar hafa gripið fegins hendi og haldið á loft. Hefur hvað eftir annað verið greint frá tillögum framsóknarmanna og/eða línu Alþb.-manna til lausnar á aðsteðjandi vanda, jafnframt stundum látið að því liggja að við sjálfstæðismenn í ríkisstj. værum skoðana- og stefnulausir í þjóðmálum. Þetta er að vísu varla svaravert, en þó má á það benda, að þar sem ráðh. þriggja stjórnmálaflokka ráða ráðum sínum og stjórna sameiginlega er sjaldnast um það að ræða að einn flokkur ráði öllu.
Flestar eða allar sameiginlegar ákvarðanir hljóta að mótast af málamiðlun að einhverju leyti milli ólíkra sjónarmiða.
Hitt er svo meira en hæpið að mínum dómi, að fjalla jafnóðum um vandmeðfarin úrlausnarefni í fjölmiðlum eða hugsa upphátt meðan málin eru á viðkvæmu stigi og varðað getur alþjóðarhag hvernig þau leysast. Ég leyfi mér að minna á upphafsorðin í stjórnarsáttmálanum þar sem tónninn er sleginn og því lýst yfir, að meginverkefni ríkisstj. sé að treysta íslenskt efnahags- og atvinnulíf, en það er eins og allir vita ein helsta forsenda fyrir sjálfstæði þjóðarinnar. Það er skýlaus krafa okkar sjálfstæðismanna, að slík fyrirheit og önnur áþekk séu efnd og höfð að leiðarljósi.
Tími vinnst ekki til að ræða einstök efnisatriði þeirra aðgerða sem nú eru á dagskrá, enda um þau fjallað nánar af öðrum. Um nokkur atriði ættu þó allir að geta orðið sammála, svo sem um aukinn sparnað og aðhald í ríkisbúskapnum. Niðurskurður útgjalda samkvæmt nýsettum fjárlögum er að sönnu vandmeðfarinn og viðkvæmur þó að oft hafi verið gripið til þeirra úrræða af valdhöfum á liðinni tíð. Þessi leið verður þó ásættanlegri ef eitt er látið yfir alla ganga eftir því sem mögulegt er. Jafnvægi í ríkisfjármálum er mikilvægt. Grundvöllur þess er að hófs og sparnaðar sé gætt á öllum sviðum þjóðlífsins.
Það verður að viðurkennast, að þær ráðstafanir, sem nú hafa verið kynntar, bera allsterkan keim af úrræðum til skamms tíma. Þær eru þó studdar í trausti þess að um sé að ræða áfanga á réttri leið. Vonir manna um álíka stórt skref í verðbólguhjöðnun og varð á s. l. ári hafa brugðist í bili. Þó er ekki ástæða til að örvænta. Vandi okkar er minni en margra annarra þjóða. Við verðum að læra að sníða okkur stakk eftir vexti og marka okkur viðfangsefni samkvæmt því. Þess vegna er nú horfið að því ráði að stytta næsta áfanga.
Eins og fram hefur komið hefur ríkisstj. nú að nýju sett sér markmið í efnahagsmálum, sem hún telur raunhæf við núverandi aðstæður í þjóðarbúinu. Stefnt er að því í næsta leik, að verðbólgan frá upphafi til loka ársins verði ekki meiri en 35% og hraði hennar verði kominn niður í um 30% á síðari hluta ársins. En jafnvel þessi árangur næst ekki átakalaust. Betur má ef duga skal. Hafa ber í huga að helstu viðskiptalönd Íslendinga búa enn við langtum lægra verðbólgustig. Þess vegna verður þegar í stað og jafnhliða þeim ráðstöfunum, sem nú eru fyrirhugaðar, að hefjast handa um varanleg úrræði í efnahagsmálum til frambúðar að svo miklu leyti sem nokkuð er varanlegt í þessum efnum.
Í stjórnarsáttmálanum er hvað eftir annað lögð höfuðáhersla á að leysa beri hin erfiðustu og viðkvæmustu mál þjóðfélagsins, svo sem kjaramál, með samstarfi og samkomulagi hagsmunaaðila. Þessi leið er vitanlega sjálfsögð. Við eigum sem betur fer marga ágæta og hæfa menn sem glöggt skilja hvað gera verður og þjóðinni í heild má að gagni koma. En oft er erfitt að ná samkomulagi og samstöðu og iðulega reka menn mál sitt af meira kappi en forsjá og sjást lítt fyrir í kröfum sínum. En þegar allar sátta- og samkomulagsleiðir hafa verið reyndar til þrautar án árangurs hljóta menn að sjá og skilja að þjóðkjörnir valdhafar verða að grípa til þeirra ráða sem þeir telja nauðsynleg og óumflýjanleg þegar almenningsheill og alþjóðarhagur eru í veði. Hitt er svo annað mál, að ég held að skilningur manna sé á því, að lækkun verðbólgu, m. a. með svipuðum aðgerðum og beitt var á liðnu ári, sé allra hagur og raunhæfustu kjarabætur sem kostur er á, mestar þeim til handa sem þyngst eiga fyrir fæti.
Halda verður í vonina um samkomulagsleiðir til úrlausnar mála í lengstu lög og hófleg bjartsýni er sjálfsögð, en náist engin samstaða né fótfesta og æði verðbólgan stjórnlaust upp á við á nýjan leik er vá fyrir dyrum.
Ríkisstj. sú, er nú situr, getur senn horft yfir tveggja ára valdaskeið. Margt hefði vissulega mátt betur fara úr hendi og margt er ógert. Vafalaust vilja ýmsir að hún fari sem fyrst frá völdum, en allmargir munu spyrja: Hvað tekur við ef þessi stjórn hættir? Og það er von að spurt sé, miðað við fyrri reynslu. Ég tel að stjórninni hafi sæmilega vegnað það sem af er. Henni hefur tekist að leysa hin brýnustu mál hingað til. Auðna mun áfram ráða ferðinni og ferðalokum.
Satt er það, að margir búast við því versta þegar minnst er á aðgerðir í efnahagsmálum. Sé þessi efnahagsmálapakki, sem svo er nefndur, veginn og metinn mun hann varla vekja ótta nokkurs manns, miklu fremur vonbrigði þeirra sem vilja taka fastar á og leggja eitthvað af mörkum til þess að meginstraumar þjóðmála hnigi til réttar áttar. Þar sem í skýrslu ríkisstj. er rætt um viðræður hagsmunaaðila um nýtt viðmiðunarkerfi, er tryggt geti kaupmátt og jöfnun lífskjara, í öllum byggðum landsins svo og frjálsari verðmyndun í landinu, þá er um að ræða ný viðhorf sem athygli munu vekja.
Í umr. um lausn vandamála líðandi stundar má ekki gleymast að mikilvægasta verkefnið í efnahagsmálum er að auka þjóðartekjurnar. Það eru þær sem fyrst og fremst ráða raunverulegri afkomu launþega og þar með lífskjörum almennings. Því ber að efla hefðbundnar atvinnugreinar og byggja upp nýjar af fyrirhyggju, en án allra fordóma.
Ljóst er að landinu verður ekki stjórnað eins og nú horfir nema saman vinni tveir eða fleiri flokkar stjórnmálamanna sem hafa skiptar skoðanir á mörgum málum. Í annan stað er og fullljóst, að innan sama flokks eru að jafnaði uppi ólík sjónarmið sem iðulega þarf að laða til sátta og samkomulags með umburðarlyndi, viðsýni og festu. Samstilltir kraftar geta lyft Grettistökum. — Og ítreka ber að raunhæfasta leiðin út úr öllum efnahagsvanda er að auka þjóðartekjur. Þar er nýting orkulinda landsins hendi næst ásamt hugviti, atorku og framtaki landsmanna sjálfra. — Lifið heil.