01.02.1982
Neðri deild: 35. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2097 í B-deild Alþingistíðinda. (1753)

182. mál, tollskrá o.fl.

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Ég vil strax taka það fram, að virðulegur formaður þingfl. Alþfl. hefur ekki heimild mína sem nefndarmanns í fjh.- og viðskn. þessarar hv. deildar til að ráðstafa kvöldinu. Ég er búinn að ráðstafa því á annan hátt, þannig að það verður þá að koma varamaður. Helst vil ég ekki fá varamann inn fyrir mig þar. En alla vega kemst ég ekki á kvöldfund út af þessu máli.

Ég vil líka taka það fram, að ég tel ekki rétt að draga afgreiðslu þessa máls eða mála almennt vegna þess að einhver önnur tillaga um gott málefni er á leiðinni. Einnig vil ég alveg sérstaklega leggja áherslu á það, að í fjarveru formanna taka varaformenn að sjálfsögðu við stjórn funda, og ef varaformenn hafa varamenn á þingi fyrir sig lít ég á þá varamenn sem fullgilda alþm., á meðan þeir sitja hér. Ég dreg ekki í efa að sú virðulega nefnd, sem ég á sæti í, hv. fjh.- og viðskn. þessarar deildar, er miklu fallegri, þrátt fyrir gott útlit Guðmundar J. Guðmundssonar, með varamanni við formennsku í stað Guðmundar sjálfs. Ég kvíði ekkert fyrir því að hafa fund fljótlega, og ef ég væri ekki upptekinn vildi ég gjarnan hafa næturfund.

Ástæðan til þess, að ég stend hér upp, er ekki sú, að ég vilji tefja framgang þessa máls. Ég vil leggja því lið frekar en hitt, og ég mun leggja öllum tillögum lið sem um málið fjalla og miða að tollalækkun eða útgjaldalækkun. Ég tel furðulegt hvernig tollamál hafa þróast hér, miðað við 100% framleiðslukostnað, að tolltekjur einar saman skuli vera komnar upp í 80% og stundum meira af ýmsum vörutegundum. Alveg er furðuleg þörf þessa tiltölulega litla samfélags okkar.

Þessi tillaga miðar að því sama og sú sem var lögð fram á s. l. ári, eins og kemur fram í athugasemd, með leyfi forseta. Gríp ég þar inn í miðja grein: „Heimilistæki þau, sem ákvörðun um lækkun gjalda tók til, voru kæliskápar, þvottavélar, hrærivélar og ryksugur, en kaup á þessum tækjum hafa m. a. vegna hárra innflutningsgjalda verið umtalsverður útgjaldaliður í heimilisrekstri og einkum komið harkalega niður á yngra fólki við bústofnun“. Þetta var röksemdafærslan s. l. ár, þegar tollar voru lækkaðir. Síðan heldur áfram og segir að tollar séu lækkaðir „úr 80% í 40%, sem felur í sér verulegar hagsbætur fyrir heimilin í landinu.“ Hvaða alþm. getur verið á móti þessu. Ég skil ekki að nokkur maður geti verið á móti því.

Hitt er annað mál, að það eru að sjálfsögðu miklu fleiri heimilistæki í notkun en eru í verslunum, eru á leiðinni eða eru í vörugeymslum í landinu. Öll þessi heimilistæki þurfa viðhald. Ef á að lækka aðflutningsgjöldin er enn meiri þörf á að lækka tollskrána hvað snertir tolla af varahlutum sem þarf í þessi tæki. Það er ekki minni þörf á að lækka rekstrarkostnað þessara tækja en að lækka stofnkostnaðinn. Það er jafnvel enn meiri þörf að lækka rekstrarkostnað heimilanna en hitt. Því er það, að ég beini því til hæstv. fjmrh. að hann beiti sér fyrir breytingum á þessu frv., sem við gætum þá vonandi rætt í dag á fundi hv. fjh.- og viðskn., um að samhliða afgreiðslu þessara tollalækkana yrði rætt um og samþykkt lækkun á varahlutum í þessi tæki. Það er ósk mín að fjmrh. beiti sér fyrir að þeim viðbótartollskrárnúmerum verði komið fyrir í frv., sem hér liggur fyrir, og þannig breytt verði frv. afgreitt úr fjh.- og viðskn., þá vonandi seinna í dag.