27.10.1981
Sameinað þing: 9. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 262 í B-deild Alþingistíðinda. (178)

34. mál, flugsamgöngur við Vestfirði

Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Mér er ánægja að svara fsp. hv. þm.

Ríkisstj. hefur tekið til umfjöllunar á fundum sínum það mikla vandamál sem felst í ofneyslu áfengis og annarra vímuefna. Til þess að fá sem gleggstar upplýsingar um stöðu þessara mála og um það, hvað aðhafst er á þessu sviði, bæði af hálfu opinberra aðila og áhugasamtaka, hafa fundir verið haldnir í forsrn. í sumar og haust. Til þeirra var boðið fulltrúum fjölmargra samtaka sem að þessum málum vinna, og að undanförnu hafa fundir verið með ráðherrum þeirra ráðuneyta sem þessi mál heyra sérstaklega undir, ásamt embættismönnum frá þeim rn.

Áður en ráðist verður í nýmæli og nýskipan á þessu sviði þótti rétt að láta fram fara ítarlega athugun á því starfi, sem þegar er unnið, og að gera úttekt á sem flestum hliðum þessa margslungna vandamáls. Á vegum dómsmrn., heilbrmrn. og menntmrn. er unnið að slíkri úttekt sem er undanfari þess að marka heildarstefnu í þessum málum. Á vegum forsrn. er unnið að samræmingu á viðbrögðum stjórnvalda við þessu fjölþætta vandamáli.

Í glímu við það vandamál, sem hér um ræðir, þarf margt fleira að koma til en að veita aukið fé úr ríkissjóði Ríkisstj. vill í fyrsta lagi kanna ítarlega hvernig best verði varið þeim fjármunum sem þegar eru veittir til þessara mála, en þeir nema tugum millj. kr. á ári, og um leið að kanna allar leiðir til árangursríkari baráttu á þessu sviði. Ríkisstj. hefur fullan hug á að hafa forgöngu um átak í þessu efni.