02.02.1982
Neðri deild: 36. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2123 í B-deild Alþingistíðinda. (1781)
182. mál, tollskrá o.fl.
Frsm. 2. minni hl. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Það frv., sem hér er til umr., er einn þáttur í þeim ráðstöfunum sem ríkisstj. kynnti á Alþingi s. l. fimmtudag á þskj. 290. Það verður að segjast eins og er, að þær upplýsingar, sem fram komu þegar þessi skýrsla var til umr., voru heldur rýrar og ekki fyrir þm. að sjá hvernig það dæmi, sem sett var upp, kæmi út, einfaldlega vegna þess að fjölmargar stærðir voru ekki og eru ekki enn þá þekktar af þeim mönnum sem þó lögðu þessa skýrslu fram.
Í ræðu minni við 1. umr. þessa máls í gær vék ég að því og gerði hæstv. fjmrh., sem talaði fyrir frv., grein fyrir því, að í fjh.- og viðskn., sem fengi þetta mál til meðferðar, yrði að sjálfsögðu leitað eftir upplýsingum og óskað eftir að þar lægi frammi af hálfu ríkisstj. ítarleg grg. um með hvaða hætti hún hygðist koma fram þeim ráðstöfunum sem hún þá hafði kynnt. Þegar sá embættismaður, sem næstur fjmrh. stendur og staddur var þar á fundi, var að því spurður, hvernig það dæmi stæði, varð hann að upplýsa að hann gæti ekki gefið um það neinar upplýsingar, hvernig framkvæma skyldi sumar hverjar þessara ráðstafana, og þaðan af síður var hægt að fá hjá honum neinar tölulegar upplýsingar í sambandi við þetta mál.
Þegar fyrsta atriði þessara ráðstafana var lagt fram á Alþingi og falast eftir þeirri málsmeðferð sem ráðh. óskaði eftir í gær, þ. e. að frv. yrði að lögum á nokkrum klukkutímum, var skýringin einfaldlega sú, að hér væri ekki um stórvægilegt mál að ræða, aðeins tollalækkanir, sem enginn maður gæti að sjálfsögðu verið á móti, allra síst þegar um væri að ræða heimilistæki sem allir þyrftu á að halda. Var á hæstv. ráðh. að skilja að biðraðir væru nú við verslanir landsins og þess vegna þyrfti að flýta þessu frv. í gegn svo að fólkið gæti fengið að kaupa þessar nauðsynjavörur, þessi heimilistæki, á lága verðinu. Ég verð því að spyrja hæstv. fjmrh. hvort hann geti nú við 2. umr. málsins gefið nákvæmar upplýsingar um það, með hvaða hætti einstakar ráðstafanir verði framkvæmdar, og gert Alþingi grein fyrir þeim tölum sem þar er um að ræða.
Það er ljóst, að í því frv., sem við erum að fjalla um, er gert ráð fyrir tekjutapi hjá ríkissjóði, og þær ráðstafanir, sem voru tilkynntar í gær, þ. e. breytingar á landbúnaðarvöruverðinu, þýða að einhverju leyti að ríkissjóður verður að afla tekna til að standa straum af þeim ráðstöfunum. Það er því ekki óeðlilegt að alþm. spyrji: Með hvaða hætti hyggst ráðh. koma þessum hlutum fram og hvaða þýðingu hafa einstakar ráðstafanir fyrir ríkissjóð tekjulega og gjaldalega? Þessar ráðstafanir þýða útgjöld fyrir ríkissjóð eða þær þýða tekjutap fyrir ríkissjóð. Og þá er spurningin: Hvernig hyggst fjmrh. ná þessum upphæðum? Mér hefur skilist að útkoman úr þessu dæmi öllu ætti að vera sú, að það yrði ekki um að ræða tekjutap hjá ríkissjóði.
Eins og ég gat um áðan er talað um að hér sé um tollalækkun að ræða og allir muni vera sammála tollalækkun, það sé ósköp einfalt mál, hér sé um að ræða 22 millj. kr. tekjutap fyrir ríkissjóð og síðan sagt að áhrifin á framfærsluvísitöluna, sem reikna skal út 1. febr.; séu 0.22%. Þegar málið er krufið til mergjar liggur ljóst fyrir að hér er um að ræða vísitöluleikinn sem hæstv. ríkisstj. hefur iðkað frá því að hún tók við völdum fyrir tæpum tveimur árum. Kannske er hér um að ræða meiri vísitöluleik, meiri blekkingu en nokkurn tíma hefur verið í sambandi við vísitöluútreikning og það með hvaða hætti menn hyggjast ná fram settum markmiðum. Í vísitölugrunninum, sem gildir frá 1968, eru ekki nema ákveðin heimilistæki. Það eru þau heimilistæki sem fram komu við neysluvörukönnun fólks á árunum 1964–1965. Þannig er verið að gera breytingar á framfærsluvísitölunni sem hafa áhrif á kaupgjaldsvísitöluna 1. mars, byggðar á neyslu manna í sambandi við þessar vörur frá því 1964–1965, fyrir tæpum 18 árum, án þess að tekið sé nokkurt tillit til þeirrar þróunar sem átt hefur sér stað síðan. Það, hvað hér er verið að gera, staðfestir einnig sá hraði sem óskað er eftir að hafður sé á afgreiðslu málsins, tímasetningin og allt sem því viðkemur.
Árið 1976, að mig minnir, var gert samkomulag við þá aðila sem mestra hagsmuna hafa að gæta af að kaupgjaldsvísitalan sé rétt út reiknuð. Þáv. ríkisstj. stóð fyrir því. Í því samkomulagi fólst að hækkanir af völdum ákvarðanatöku hins opinbera skyldu eiga sér stað 10 dögum áður en framfærsluvísitalan væri reiknuð út. Þessi ósk var einfaldlega fram borin af þeirra hálfu til þess að í kaupgjaldsvísitölunni, sem reiknuð var út einum mánuði síðar, væri tekið tillit til þeirra hækkana á opinberum töxtum sem gert væri ráð fyrir að giltu það þriggja mánaða tímabil.
En hvað er verið að gera hér? Það er gengið þvert gegn þeirri hugsun sem liggur að baki þessu samkomulagi frá 1976. Þegar um er að ræða lækkun á gjöldum til hins opinbera liggur augljóslega fyrir samkv. því samkomulagi að sú lækkun ætti ekki að koma fram fyrr en eftir að vísitalan hefur verið reiknuð út, til þess að hún hefði ekki áhrif á kaupgjaldsvísitöluna næstu þrjá mánuði. Ég er þeirrar skoðunar, að slík vinnubrögð hafi ekki oft verið tíðkuð áður af öðrum ríkisstjórnum en þeirri sem nú situr, og ég efast um að það hafi nokkurn tíma verið gert. Það er augljóst mál, að gengið er þvert gegn því sjónarmiði sem liggur að baki þessu samkomulagi, einfaldlega til þess að ná fram settu markmiði, sem kemur fram í skýrslu ríkisstj. um framfærsluvísitölu frá upphafi til loka þessa árs. Þá er alveg sama fyrir ráðherra Alþb., ráðherra Framsfl. og ráðherrana úr Sjálfstfl., sem sitja í ríkisstj., hvaða aðferðum er beitt til þess að ná slíku fram.
Það er vissulega rétt, að oft og tíðum hefur verið beitt aðferðum til þess að hafa áhrif á þróun framfærsluvísitölunnar með niðurgreiðslum. En hér er farið inn á nýjar brautir. Ég held að þessi aðferð sé algert einsdæmi. Þegar svo á sama tíma og reynt er að draga úr hækkunum framfærsluvísitölunnar og hafa þannig áhrif á kaupgjaldsvísitöluna er ætlunin af hálfu ríkisstj. að afla tekna til ríkissjóðs með öðrum hætti, en e. t. v. í sömu tekjuflokkum, þ. e. í sambandi við tekjur af tollum, þá er fyrst og fremst áformað að þau útgjöld skuli lögð á þær vörur sem ekki eru með í útreikningi vísitölunnar, tvímælalaust áformað að fá þær tekjur, sem ríkisstj. hyggst afla ríkissjóði af auknum tollum, með þeim hætti.
Það hefur heyrst á skotspónum að hér sé um að ræða tekjuöflun að lágmarki 50 millj. kr. Sumir hafa haldið fram að þessi tekjuöflun muni nema nærri 100 millj. kr. Ef þetta er athugað sést best hvernig vísitöluleikurinn, vísitölufölsunin nær hámarki hjá núv. hæstv. ríkisstj. Þegar lagt er til að lækka tolla á þeim vörum sem áhrif hafa á framfærsluvísitöluna er á sama tíma áformað að hækka tollgreiðslur á vörum sem ekkí gætir í vísitölunni. Á þeim vörum, sem ekki gætir í vísitölunni, er tollalækkun ákvörðuð áður en framfærsluvísitalan er reiknuð, en það, sem skal lagt á í tolli til viðbótar, á vörur sem ekki teljast í framfærsluvísitölunni, það er ekki gert fyrr en eftir að framfærsluvísitalan hefur verið reiknuð til viðmiðunar við kaupgjaldsvísitöluna.
Það kom fram í fjh.- og viðskn., þegar hagstofustjóri var þar á fundi, hver áhrif þær tollabreytingar, sem hér er lagt til að gerðar verði, hefðu á kaupgjaldsvísitöluna, þ. e. um 0.22%. Þegar gengið var eftir upplýsingum í sambandi við niðurgreiðslurnar var það látið uppi, að á ársgrundvelli væri gert ráð fyrir að niðurgreiðsluaukningin næmi 165 millj. eða 2.8% í sambandi við vísitöluna og þannig væri náð fram þeim 3% til lækkunar sem boðað hafði verið. En frekari upplýsingar var ekki hægt að fá. Það var ekki hægt að fá fram hvaða tekjuöflun væri ráðgerð af hálfu ríkisstj. né heldur hvaða áhrif það hefði á framfærsluvísitöluna, ef sú hækkun væri komin fram áður en framfærsluvísitalan væri reiknuð út.
Hér er um að ræða í sambandi við þessar tollbreytingar lækkun á tekjum til launþega um það bil um 25 millj. kr. þegar kaupgjaldsvísitalan er reiknuð út. Þegar menn gera sér grein fyrir því, að tollgreiðslur eiga að hækka um 50–100 millj. kr., þá liggur þetta dæmi augljóslega fyrir. Hér er um að ræða 100 millj. kr. sem ríkissjóður hyggst með einum eða öðrum hætti ná í viðbótarskattlagningu á landsmenn.
Áður en mál þetta kom til fjh.- og,viðskn. hafði hv. 3. þm. Reykv., Albert Guðmundsson, vikið hér við 1. umr. að ósamræmi sem væri á milli þeirra vara, sem tollalækkun ætti að verða á, og varahluta til sömu tækja. Í fjh.- og viðskn. varð samkomulag um að flytja brtt. til að ná fram þessari samræmingu. Er sú brtt. flutt á þskj. 299.
Fulltrúar Sjálfstfl. í fjh.- og viðskn. munu ekki bregða fæti fyrir þetta frv. Þeir eru hins vegar reiðubúnir að fresta afgreiðslu þess, þar til vísitöluútreikningurinn hefur átt sér stað, og telja það nánast í samræmi við það sem samið var um varðandi opinberar álögur og vísitölu á árinu 1976. Við höfum áskilið okkur rétt til þess að flytja eða fylgja brtt., þar á meðal brtt. sem gerð var grein fyrir við 1. umr. málsins af hv. 7. landsk. þm. Halldóri Blöndal, því að við erum ekki reiðubúnir að taka þátt í breytingu á lögum um tollskrá sem þátttakendur í þeim vísitöluleik, þeirri vísitölufölsun sem núv. ríkisstj. hefur, eins og ég sagði áðan, ástundað frá fyrstu tíð. Við teljum eðlilegt að gerðar séu breytingar á tollskránni eftir því sem rök mæla með og þróun mála hefur átt sér stað. Við erum reiðubúnir til þess að standa á slíkum brtt., en erum ekki reiðubúnir að vinna að þessu máli með þeim hætti sem hæstv. ríkisstj. er að gera.