02.02.1982
Neðri deild: 36. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2126 í B-deild Alþingistíðinda. (1782)
182. mál, tollskrá o.fl.
Frsm. 3. minni hl. (Sighvatur Björgvinsson):
Herra forseti. Eins og fram kom hjá hv. síðasta ræðumanni, Matthíasi Á. Mathiesen, óskuðum við eftir því á fundi fjh.- og viðskn. í gær að fá frekari upplýsingar um innihald hins svokallaða efnahagspakka ríkisstj., þar sem þá var verið að ræða fyrstu og einu aðgerðirnar sem eitthvað er vitað um að felist í þeim efnahagspakka. Á fundinum í gær fengum við engar upplýsingar. Hvorki starfsmenn hæstv. fjmrh. gátu gefið okkur nokkur svör né heldur þeir stjórnarsinnar, sem nefndarfundinn sátu, né aðrir sem kallaðir voru til. Við fengum sem sagt ekkert að vita. Það vissi enginn neitt. Hins vegar féllust menn á að beiðni okkar stjórnarandstæðinga til þess að greiða fyrir málinu, að fjh.- og viðsk.-nefndir settust engu að síður á rökstóla og færu að rannsaka málið, hvort ekki væri unnt á næstu dögum að fá einhverjar frekari fréttir af því sem ekki er finnanlegt í þessum pakka, en sagt að sé einhvers staðar þar að finna ef vel sé leitað.
Samkomulag varð m. ö. o. í nefndinni um að þó engar upplýsingar fengjust á fundi hennar í gær skyldi hún halda áfram að leita-og væntanlega verður séð til þess af hv. formanni nefndarinnar, efnahagssérfræðingi ríkisstj., hv. þm. Halldóri Ásgrímssyni, sem sumir kalla höfund efnahagspakkans, að rækilega verði leitað að því sem í þessum pakka kann að vera. (HBl: Sem sumir kalla hvað?) Höfund efnahagspakkans. Ég held að það sé ekki satt, en sumir hafa það fyrir satt.
Herra forseti. Það er ástæðulaust að fara fleiri orðum um það mál því að eins og ég segi, leitin er hafin. Það er að vísu ekki búið að kalla út hjálparsveitir enn. Fjh.- og viðskn. ætlar að vita hvað hún getur fundið af eigin rammleik. En sjálfsagt verður ekki um annað að ræða en kalla út frekara lið ef ekkert fer að koma í ljós undir miðjan mánuðinn.
Upplýst var á fundi fjh.- og viðskn. að mjög mikið lægi á að þetta mál hlyti afgreiðslu, það yrði að hljóta afgreiðslu í dag til þess að möguleiki væri á því að Hagstofa Íslands gæti tekið tillit til vísitöluáhrifanna af þessum aðgerðum eins og að væri stefnt. M. ö. o.: því aðeins að frv. verði samþykkt í dag er tæknilegur möguleiki fyrir menn, hvort sem þeir hafa áhuga á því sjálfir eða ekki að komast inn í Tollvörugeymslu til þess að leysa út eitthvað af þeim tækjum sem á að lækka tolla á samkv. þessu frv. svo að það geti mælst í vísitölunni. Verði það ekki búið, þannig að menn hafi tæknilega möguleika á því að setja slík tæki á markaðinn n. k. föstudag, eru allar líkur á að ráðstöfunin mælist ekki í vísitölu. Þar sem það er meginatriði málsins hjá hæstv. ríkisstj. leggur hún mikla áherslu á að frv. verði afgreitt í dag.
Hins vegar kom líka fram á fundi fjh.- og viðskn. í gær að í undirbúningi er önnur ráðstöfun í tollamálum sem ekki er til lækkunar eins og þessi, heldur til hækkunar. Saman á að fara tollalækkun núna og tollalhækkun eftir nokkra daga sem hæstv. ríkisstj. hefur gefið nafnið tollafgreiðslugjald. Auðvitað er hægt að gefa tollahækkunum margs konar nöfn alveg eins og söluskattur er kallaður ýmsum nöfnum. Hluti hans er kallaður orkujöfnunargjald o. s. frv., þó að enginn munur sé á greiðslunni. Það kom fram á fundum fjh.- og viðskn. í gær að hæstv. ríkisstj. ráðgerir að taka með þessum hætti öllu meira fjármagn frá almenningi í hækkun tolla en hún gerir ráð fyrir að lækka tollana í frv. þessu. Hins vegar fengust engar upplýsingar um það á fundi fjh.- og viðskn. í gær, hve miklu hærri fjárhæðir ríkisstj. hefur í huga að taka með tollahækkun en hún er hér að veita í tollalækkun. Eins og upplýst var af hv. síðasta ræðumanni voru fregnir á kreiki um að það væri eitthvað á milli 50 og 100 millj. kr. sem stefnt væri að hækka tollana um á næstu dögum, sem sé allt tæplega þrefaldri þessari upphæð upp í um það bil fimmfalda. Ástæðan fyrir því, að engar frekari upplýsingar fást á þessu stigi málsins um þá ráðstöfun ríkisstj., er einfaldlega sú, að komi hún ekki fram fyrr en eftir n. k. föstudag mælist hún ekki í útreikningi vísitölu. Það er m. ö. o. stefnt að því, að þessari tollalækkun upp á 22 millj. kr. verði hraðað í gegnum Alþingi í dag svo að tæknilega sé mögulegt að taka tillit til áhrifa hennar til lækkunar á verðbótum launþega í landinu, og til þess að það sé hægt verður að vera búið að afgreiða þetta frv. fyrir kl. 5 í dag frá Alþingi.
Hins vegar ráðgerir ríkisstj. að hækka tollana um einhvers staðar á milli tvöfaldrar og fimmfaldrar þessarar upphæðar. En það ætlar hún sér ekki að gera fyrr en eftir n. k. föstudag, þannig að alveg sé útilokað að tekið verði tillit til áhrifa þeirrar hækkunar á verðlagið í landinu nógu snemma til þess að von sé til að launþegar fái það bætt í kaupgjaldi 1. mars.
Þetta, herra forseti, kallar Alþb. að skipta á sléttu. Þetta kallar Alþb. að skipta á verðbótum og kaupmætti, að skipta á 22 millj. kr. tollalækkun, sem lækkar laun um 0.2%, og e. t. v. 100 millj. kr. tollahækkun, sem Alþb. ætlar að bíða með að gefa út þangað til öruggt er að það mælist ekki í verðbólgu- og vísitöluútreikningum, svo að hægt sé að taka tillit til þess 1. mars n. k. Þetta er ekkert launungarmál þó að hæstv. landbrh. hristi höfuðið. Ég veit það ósköp vel, það veit það allur landslýður, að hæstv. landbrh. hefur ekkert frekar en aðrir sjálfstæðismenn í ríkisstj. haft mikil áhrif á þetta. Þeir hafa ekki hugmynd um þetta. Þeir hafa aldrei verið spurðir um annað en það, hvenær þeir séu væntanlegir í þingið til þess að greiða atkv. Þeir hafa engar tillögur gert og að engu verið spurðir, enda er þeirra hlutverk hvorki að gera tillögur né fylgja málum eftir í þessari hæstv. ríkisstj., heldur bara að ljá framsóknarmönnum og kommúnistum þau atkv. sem þá vantar. Það er ekkert undarlegt við það að hæstv. landbrh. hristi höfuðið. En þetta er svona samt. Þó að hann hristi höfuðið aftur, þó að hann hristi höfuðið tíu sinnum, þá er þetta engu að síður staðreynd.
Þetta eru þær upplýsingar sem m. a. komu fram á fundi fjh.- og viðskn. í gær. Þar kom fram hjá tveimur starfsmönnum fjmrn. sem þar voru mættir, að ráðgert væri að þetta tollafgreiðslugjald, tollahækkun undir nýju nafni, skilaði ríkissjóði allmiklu meiri fjárhæðum í tekjum en næmi þeim 22 millj. kr. sem hér er verið að lækka tollana um. Hins vegar vildu þeir ekkert fullyrða um hve miklu meiri tekjum það mundi skila, þó svo heyrst hafi á skotspónum að það sé eitthvað á milli 50 og 100 millj. kr. Nú er ég að upplýsa hæstv. landbrh. sem sjálfsagt hefur ekkert fengið um þetta að vita. Það kom líka fram hjá hagstofustjóra í gær, að hann gæti ekki tekið tillit til áhrifa slíkrar hækkunar á verðbótamælikvarða, á mælingu framfærsluvísitölu, ef hún kemur ekki fram fyrr en n. k. föstudag. Ég sé að hæstv. landbrh. er hættur að hrista höfuðið. Ég held að það sé farið að kvikna á týrunni hjá hæstv. ráðh., að hann sé að átta sig á því, hvernig eigi að fara að því að skipta á verðbótum og kaupmætti. Það á að gera það svona. Svona á að fara að því að „skipta á sléttu.“
Því er nú verr og miður, herra forseti, að sú endurskoðun eða sú breyting, sem nú er gerð á tollalöggjöfinni, er ekki árangurinn af athugun og vilja ríkisstj. á því að samræma tollalöggjöfina eða grisja þann frumskóg aðflutningsgjaldanna sem hæstv. fjmrh. hefur lýst yfir við alþjóð að hann furði sig á, og er það rétt lýsing hjá hæstv. ráðh. Því miður er þessi aðgerð einvörðungu til þess að hafa áhrif í þessum vísitöluleik sem Alþb. kallar „slétt skipti.“ Því miður er aðgerðin einvörðungu við það miðuð. Eftir sem áður er vandratað um aðflutningsgjaldafrumskóginn og eftir sem áður eru ýmsar af mikilvægustu nauðsynjavörum íslenskra heimila, jafnvel smávörur sem engu máli skipta, tollaðar eins og um lúxusvarning sé að ræða, t. d. eru eldspýtur tollaðar með 80% tolli og skóáburður. Það virðist mega ætla að þeir, sem þessum málum ráða, haldi að Íslendingar noti enn þá eldspýtur með álíka sparsemd og áður fyrr, þegar eitt meginviðfangsefni heimilanna var að fela eld yfir nóttina svo að ekki sköpuðust vandkvæði af því að kveikja eld á hverjum morgni. Þeir, sem þessum málum ráða, virðast halda að við séum enn á þeim tíma, því að eldspýtur eru tollaðar með 80% tolli. Og þeir, sem málum ráða, virðast enn halda að Íslendingar beri almennt hákarlalýsi á skóna sína, eins og gert var hér í „den tid“ því að skóáburður er tollaður með 80% tolli eins og um mikla lúxusvöru sé að ræða. Og fyrir ósköp venjuleg hnífapör, sem við notum dagsdaglega, þurfum við að greiða 123% toll og vörugjald. Þetta er álitin alger lúxusvara, venjuleg borðhnífapör, að maður minnist ekki á Carmen-rúllur hv. þm. Ólafs Ragnars Grímssonar sem menn þurfa að greiða 134% toll fyrir að nota.
Því miður er þetta ekki afleiðing af endurskoðun tollskrárinnar, — því miður ekki. Þetta er eingöngu aðgerð í því skyni að hafa áhrif á vísitöluútreikning 1. febr. árið 1982. Fram yfir þá dagsetningu er ekki hugsað. Að hugsa sér að t, d. á flestar algengustu kryddvörur skuli vera lagður 80% tollur og 24% vörugjald. Öll búsáhöld, sem íslensk heimili nota, pottar og pönnur, venjuleg búsáhöld eru með 80–125% tolli. Þetta er álitin lúxusvara, eins og menn sem þessum málum réðu héldu að Íslendingar ætu enn úr öskum og borðuðu með hornspónum, því að venjuleg hnífapör eru hátollavara og venjuleg mataráhöld eru flutt inn með 123% tolli og vörugjaldi. Það er alveg furðulegt að eina endurskoðunin á tollskrá skuli vera gerð þegar svo háttar til, að það skuli eiga að endurskoða tollskrá af þessari hæstv. ríkisstj. út frá því sjónarmiði einu, hvaða áhrif endurskoðunin hafði á útreikning framfærsluvísitölu fyrsta dag febrúarmánaðar árið 1982. Lengra nær hugsunin ekki, alls ekki lengra. Sumir hæstv. ráðherrar virðast enn ekki hafa áttað sig á því, til hvers leikurinn er gerður. A. m. k. virðist svo sem þeir, sem málunum ráða í þessari ríkisstj., hafi algerlega gleymt að segja þeim frá því.
Herra forseti. Vissulega er það jákvæð aðgerð út af fyrir sig að taka algengar neysluvörur til endurskoðunar, eins og hér er gert, í því skyni að afnema af þeim hátolla, afnema af þeim lúxustolla. En það verður samt sem áður eitthvert „system“ að vera í „galskapnum“, eins og stundum er sagt á óvirðulegu máli. Ef menn eru að endurskoða tollmeðferð á rafknúnum heimilistækjum með þessum hætti, þá er það ekki verjandi að einblína einvörðungu á þau rafknúnu heimilistæki sem eru í vísitölugrundvellinum vegna gamallar neysluvörukönnunar, en sleppa öllum öðrum rafknúnum heimilistækum sem standa hlið við hlið í eldhúsum íslenskra heimila, við hlið þeirra tækja sem um er rætt, bara vegna þess að ekki hefur verið tekið tillit til þeirra í neysluvörukönnuninni sem er grundvöllur framfærsluvísitölunnar. Það er náttúrlega alveg fráleitt, að tvö jafnnauðsynleg tæki í íslenskum eldhúsum skuli vera meðhöndluð þannig af hæstv. ríkisstj., að annað tækið er tekið úr lúxustolli eða afnuminn af því tollur algerlega, en hitt tækið sé tollað áfram sem lúxusvara. Hvaða vit er í því, að algengt heimilistæki, eins og t. d. sjálfvirk kaffikanna, sem er til á svo til hverju einasta heimili í landinu, miklu fleiri heimilum en t. d. uppþvottavél, svo að dæmi sé tekið, slíkur smáhlutur, sem ekki kostar mjög verulegar fjárhæðir, skuli vera hafður í lúxustollflokki þegar t. d. tollur er felldur niður af öðru heimilistæki, uppþvottavél, eða lækkaður verulega á henni? Hvaða vit er í þessu? Það er auðvitað ekkert vit í svona ráðstöfun. Þessi heimilistæki, kaffikönnurnar, voru ekki komin í notkun þegar neyslukönnunin var gerð sem liggur til grundvallar framfærsluvísitölunni, og því skilar það engum árangri í vísitölusvindli, í „sléttum skiptum“ Alþb., að lækka tolla á kaffikönnum. Þess vegna er það ekki gert, vegna þess að það er ekki hægt að nota kaffikönnur til þess að framkvæma „slétt skipti“. Það er ekki hægt.
Með nákvæmlega sama hætti má spyrja hvaða vit sé í því, að mjög algeng heimilistæki, eins og t. d. rafmagnspanna sem önnur hver íslensk húsmóðir notar, skuli vera tolluð sem lúxusvarningur þegar hrærivél er með helmingi lægri tolli. Ástæðan er ofureinföld. Það er tiltölulega nýverið sem menn fara að flytja til landsins tæki eins og rafmagnspönnur. Þær mælast ekki í vísitölunni. Þess vegna er ekki hægt að nota rafmagnspönnur til þess að framkvæma „stétt skipti“, hæstv. fjmrh. Þess vegna eru þær vörur skildar eftir. Svo er um fjölmargar aðrar vörur af þessu tagi, eins og t. d. alls kyns ofna sem almennt er farið að nota á heimilum, grillofna og fleiri slíka. Þetta er tollað sem lúxusvara á sama tíma og hrærivélar og önnur slík tól, sem standa við hlið þessara tækja á eldhúsborðum íslenskra húsmæðra, eru notuð við „slétt skipti“.
Nei, heimilistækjakaupmaðurinn, hæstv. fjmrh. Ragnar Arnalds, er ekki reiðubúinn til að .framkvæma „slétt skipti“ við fólk á öllum gerðum rafknúinna heimilistækja. Þessi heimilistækjakaupmaður er bara reiðubúinn til þess að framkvæma slétt skiptin með vörum sem mælast í vísitölunni. Þá skiptir engu máli þó að slík tæki sé sennilega ekki að finna á láglaunaheimilunum. Ég reikna ekki með að tæki eins og t. d. uppþvottavélar séu mjög algengar á láglaunaheimilum. Ég reikna með að kaffikönnurnar séu öllu algengari þar. Samt sem áður ætlar hæstv. fjmrh. alls ekki að hafa „slétt skipti“ við láglaunafólkið á verðbótum og kaffikönnum. Nei, alls ekki. Það kemur ekki til nokkurra mála. „Sléttu skiptin“ við láglaunafólkið verða að vera á uppþvottavélum og verðbótum. Jafnvel þó að láglaunafólkið hafi ekki nokkur efni á því að kaupa sér uppþvottavél, þá skulu „sléttu skiptin“ vera þar, skiptin á verðbótum, skiptin á vísitölustigum og kaupmættinum.
Herra forseti. Það þjónar ákaflega litlum tilgangi út af fyrir sig að flytja mjög verulegar brtt. við frv. þetta. Því hefur aldrei verið ætlað, eins og ég gat um áðan, að vera annað en tæki fyrir hæstv. ríkisstj. til þess að koma í veg fyrir að launþegar fái verðbætur á sín laun til þess að bæta sér upp verðhækkanir sem þegar hafa orðið. Það er ekki verið að bæta upp verðhækkanir sem síðar kynnu að verða. Það er verið að bæta upp með þessum hætti verðhækkanir sem þegar hafa orðið og launafólk hefur þegar orðið að gjalda. Það er verið að bæta þær upp með tollalækkunum á uppþvottavélum, — tollalækkunum á uppþvottavélum fyrir kjósendur hv. þm. Guðrúnar Helgadóttur, verkamannastétt í Reykjavík. Hún skiptir við þessa kjósendur sína, hv. þm. Guðrún Helgadóttir, og hæstv. félmrh. Svavar Gestsson. Þau skipta við verkafólkið í Reykjavík á kaupi og tollalækkunum á uppþvottavélum. Mikil er nú rausnin!
Það þjónar harla litlum tilgangi, herra forseti, að vera að gera umfangsmiklar brtt. við tollaendurskoðun sem er með þessum hætti gerð. Ég held þó að ekki verði komist hjá því að gera tilraun til þess, fyrst verið er að gera breytingu á tollmeðferð rafknúinna heimilistækja, algengra rafknúinna heimilistækja sem til eiga að vera á allflestum heimilum, að láta þá breytingu ná til allra eða flestra tækja af þessu tagi sem notuð eru á Íslandi, en ekki að velja eða hafna eftir því hvort þau eru í 15 ára gamalli neyslukönnun eða ekki. Það er meginatriðið í þeirri brtt. sem ég flyt á þskj. 302. Tollflokkarnir, sem þar eru taldir síðast, sjö síðustu tollnúmerin sem þar eru talin lúta öll að slíkum tækjum. Ég tek það fram, að öll þessi heimilistæki eru með 80% tolli eins og uppþvottavélar hæstv. fjmrh. og annar sá varningur sem hann er að færa úr 80% tolli yfir í 40%. Öll þau tæki, sem ég hér nefni og hef gert tillögur um að menn tækju með í þá leiðréttingu, hefur ríkisstj. fram til þessa tíma ákveðið að sættu sömu tollmeðferð og uppþvottavélarnar, hrærivélarnar og annar slíkur vélabúnaður í eldhúsum vegna þess að þetta eru sambærileg tæki. Ég geri till. um að þessi tæki verði látin sæta sambærilegri meðferð, svo að ekki sé verið að gera upp á milli tollaálagningar á þessi tæki hér eftir fremur en hefur verið gert hingað til.
Hvaða tæki skyldu það vera sem vantar inn í þessa upptalningu og ég geri till. um á þskj. 302 að við hana sé bætt? Það eru tæki eins og kaffikönnur, rafmagnspönnur, önnur hitunartæki til heimilisnota. Það eru alls konar lausir ofnar sem fólk nýtir, og rafmagnsrakvélar sem eru með hvorki meira né minna en 134% tolli og vörugjaldi. Menn halda sennilega, sem þessum málum ráða, að öllum sé svipað farið og hæstv. iðnrh. og rafmagnsrakvélar séu lúxusvarningur sem þurfi að tolla með 134% tolli. Svo er nú samt ekki. Rafmagnsrakvélar, eins og ég sagði, aðrar rafknúnar eldhúsvélar, og er þar átt fyrst og fremst við hakkavélar, grænmetiskvarnir og önnur slík smátæki og önnur búsáhöld með rafmagnshreyflum, — samtals nemur tekjutapið fyrir ríkissjóð, ef þær vörur eru teknar með sem ávallt hafa hingað til verið í sama tollflokki og uppþvottavélarnar, sem hæstv. ráðh. ræðir um, alls 2 millj. kr.
Samkv. upplýsingum Þjóðhagsstofnunar nema heildartolltekjur af öllum rafknúnum eldhúsvélum, svo sem hakkavélum og öðrum slíkum smátækjum, ekki nema 134 þús., tolltekjur ríkissjóðs af öðrum búsáhöldum með rafmagnshreyflum ekki nema 69 þús., tolltekjur af rafmagnsrakvélum 347 þús., tolltekjur af kaffikönnum 478 þús., tolltekjur af rafmagnspönnum 122 þús. og tolltekjur af öðrum hitunartækjum til heimilisnota 314 þús. Það eitt, að samræmi verði haft um tollafgreiðslu þessara tækja og þeirra tækja, sem lagt er til að lækka tollana á, kostar ríkissjóð því aðeins 2 millj. kr. Ætti það ekki að skipta mjög verulegu máli fyrir ríkissjóð með allt það loft í fjárlögum sem hæstv. viðskrh. og fyrrv. fjmrh. hefur komist að raun um að þar sé að finna. Samræmið kostar hæstv. fjmrh. ekki meira en 2 millj. kr.
Síðan leyfi ég mér að bæta við sem sérstöku áhugamáli ýmissa manna að lækka nokkuð tolla af hársnyrtitækjum. Tolltekjur af þeim eru aðeins 438 þús. kr. samkv. upplýsingum Þjóðhagsstofnunar. Ég tek fram að sambærileg lækkun tollmeðferðar á þessum tækjum og gert er ráð fyrir mun aðeins kosta helming þeirrar upphæðar sem ég hef hér nefnt.
Þetta er meginkjarninn í brtt. mínum á þskj. 302. Auk þessara brtt., sem allar varða tollnúmerið 85 með undirflokkum, hef ég leyft mér að gera fimm aðrar brtt. til samræmis, þess efnis, að pottar og pönnur, sem ekkí teljast nú til sérstakra lúxusvara á íslenskum heimilum en hafa samt verið í 123% tolli og vörugjaldi, sæti sambærilegri meðferð og uppþvottavélar hæstv. fjmrh. og verði lækkaðar niður í um 40% toll úr 80%, og sama máli gegni um borðhnífa, gaffla og skeiðar úr ódýrum málmi, sem eru með 123% toll og vörugjald. M. ö. o.: Það er lúxus að borða með öðru en fingrunum.
Ég geri ráð fyrir því, að einnig þessar vörur, pottarnir og pönnurnar — að vísu bara úr ryðfríu stáli, járni og áli, ég seilist ekki einu sinni svo langt að ætlast til þess, að öllu finni pottavörur, svo sem úr kopar og öðrum slíkum fínni málmum — verði látnar sæta sömu meðferð en svona algengar vörutegundir, og enn fremur ósköp venjuleg hnífapör, sem ég held að allir Íslendingar borði með dagsdaglega án þess að telja að þar séu þeir að nota sérstakan lúxusvarning til þess að snæða með, — að tollmeðferð þeirra verði sú sama og uppþvottavéla eftir að búið er að samþykkja frv. hæstv. ráðh.
Samtals eru áhrif af þeim breytingum, sem ég legg til á þskj. 302, 4 millj. kr. eða um 20% af þeirri heildarfjárhæð sem það kostar ríkissjóð að gera sambærilega breytingu á uppþvottavélunum og öðrum þeim tækjum og tólum sem mælast í vísitölunni.
Við 1. umr. frv. benti ég hæstv. fjmrh. á að nauðsynlegt væri að lækka tolla á varahlutum í þau heimilistæki, sem hér er gert ráð fyrir að lækka tolla á, sem og á varahlutum í þau heimilistæki sem opinber gjöld voru lækkuð á á s. l. ári. Hæstv. ráðh. hefur tekið undir þessar ábendingar mínar og kom það fram á fundi hv. fjh.- og viðskn. í gær. Nefndin gerir nú till. á þskj. 299 um að tollar af þessum varahlutum lækki einnig í 40%, og á fundi nefndarinnar kom fram að vörugjaldið, sem er 24%, verði einnig fellt niður til samræmingar. Hér er um reglugerðarbreytingu að ræða og því ekki í verkahring fjh.- og viðskn. að gera till. um það nú. Það var staðfest á fundinum í gær, að svo mundi verða gert, og ég vil undirstrika það til að fá það skjalfest hér og legg á það áherslu, að hæstv. fjmrh. felli nú þegar, að fenginni samþykkt á þessu frv., niður þá 24% álagningu vörugjalds sem er á þessum vörutegundum.