02.02.1982
Sameinað þing: 45. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2149 í B-deild Alþingistíðinda. (1810)

179. mál, Þjóðskjalasafn Íslands

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir að hreyfa þessu merka máli hér á hinu háa Alþingi og tel fulla ástæðu til. Nefnd sú, sem hæstv. menntmrh. skipaði 24. okt. 1980 til að gera tillögur um vörslu og grisjun embættisgagna í Þjóðskjalasafni og héraðsskjalasöfnum, hefur nú lokið störfum og ég hef átt þess kost að líta ofurlítið í álit nefndarinnar. Ég held að hér hafi verið unnið hið merkasta verk sem full ástæða er til að skoða vandlega.

Það er ljóst, að varðveisla skjala til komandi kynslóða hefur tekið miklum breytingum á síðari tímum, og kemur þar til ljósritun skjala í æ ríkari mæli og þar með e. t. v. verri pappír. Meiri þörf er á að grisja þau skjöl sem ekki skal halda til haga, en velja úr þau sem geyma skal þar sem magnið fer stöðugt vaxandi. Ljóst er að stöðlun á stærð skjala vantar. Hér á landi er hlutverk skjalasafna ekki nógu afmarkað og söfnin stórlega vanmönnuð. Allt of lítið hefur verið hirt um mikilvægi þessa fyrir framtíð alla og stórlega vantar á samræmingu milli embætta um meðferð skjala. Jafnljóst er að með tilkomu myndbanda og nú síðast örfilma eiga þessi mál enn eftir að taka nýja stefnu.

Ég held að það, sem skipti hér máli, sé að setja þurfi ný lög um skjalavörslu ríkisstofnana og annarra opinberra stofnana sem jafnframt geri Þjóðskjalasafnið í ríkari mæli en nú er ábyrgt fyrir vörslu opinberra skjala, um leið og hlutverk héraðsskjalasafna yrði afmarkað skýrar en nú er. (Forseti hringir.) Ég er rétt að ljúka máli mínu, herra forseti. — Óhjákvæmilegt yrði um leið að setja viðhlítandi reglugerðir um vörslu og grisjun opinberra skjala.

Það má öllum ljóst vera, að húsnæðið sem Þjóðskjalasafnið nú býr við, getur ekki rúmað þessa starfsemi, en með byggingu Þjóðarbókhlöðu, eins og hæstv. ráðh. réttilega tók fram, glæðast vonir manna um að Þjóðskjalasafn fái til afnota húsnæði Landsbókasafns, þegar sú stóra stund rennur upp að það flytji í nýtt húsnæði.

En ég held að það sé ekki einungis húsnæðisvandamálið sem hér er á ferðinni. Ég held að afar þýðingarmikið sé að þegar verði hafinn undirbúningur að setningu laga um vörslu skjala opinberra stofnana.

Það er ekki of oft sem menning þjóðarinnar og saga er til umr. á hinu háa Alþingi. Ég fagna því, að svo er nú, og þakka hv. fyrirspyrjanda.