02.02.1982
Sameinað þing: 45. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2154 í B-deild Alþingistíðinda. (1817)
339. mál, örbylgjustöðvar á Skaga og í Grímsey
Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Út af spurningu hv. 3. þm. Norðurl. v. vil ég skýra frá því, að að gefnu tilefni grennslaðist ég eftir þessu fyrir allmörgum mánuðum. Þá var ég fullvissaður um að þessi stöð ætti að loka þeirri eyðu sem þarna væri á milli, eins og reyndar kom fram í svari mínu áðan og er í bréfum sem ég er með. En ég tek undir það með hv. þm., að ef annað kemur í ljós verður að sjálfsögðu að bæta úr því.