02.02.1982
Sameinað þing: 45. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2154 í B-deild Alþingistíðinda. (1818)

116. mál, verðjöfnunargjald af raforku

Fyrirspyrjandi (Birgir Ísl. Gunnarsson):

Herra forseti. Á þskj. 116 er borin fram svohljóðandi fsp. til hæstv. iðnrh.:

Hvers vegna hefur ráðh. ekki notað lagaheimild frá því á s. l. vetri um að lækka verðjöfnunargjald á raforku úr 19% í 16% frá 1. júlí s. l.?

Þessari fsp. var útbýtt hér 24. nóv. s. l. og því er nokkuð langur tími liðinn síðan hún kom hér fram. Er því ástæða til að taka undir það, sem 4. þm. Reykv. sagði í lok fsp.-tíma síðast, að það dregst oft úr hömlu að fsp. sé svarað og er ýmsu þar um að kenna, — ekki endilega þeim sem fsp. er beint til, heldur einnig þeim, sem fsp. bera fram, og svo hvernig fyrirkomulag er á fundum.

Eftir að þessi fsp. var borin fram var lagt fram í Ed. frv. til l. um breyt. á lögum um verðjöfnunargjald af raforku, en slíkt frv. er árlegur viðburður hér þar sem verðjöfnunargjaldið er framlengt frá ári til árs. Í grg. með þessu frv. komu, að nokkru leyti a. m. k., fram skýringar á því sem spurt var um í þessari fsp., en ég hef engu að síður talið rétt að mæla fyrir henni hér, þannig að fá svör ráðh. við henni, þó að skýringar hafi að hluta a. m. k. komið fram þegar á þessu þingi.