02.02.1982
Sameinað þing: 45. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2169 í B-deild Alþingistíðinda. (1837)
143. mál, erlendar lántökur vegna viðskipta með fiskiskip innanlands
Fyrirspyrjandi (Sighvatur Björgvinsson):
Herra forseti. Ég vil, eins og hv. 1. þm. Vestf., þakka hæstv. viðskrh. svörin. Mér er að sjálfsögðu kunnugt um að það er almenn regla eða virðist vera það, að þegar fiskiskip er keypt til landsins erlendis frá hafi mönnum verið heimilað að taka til þess erlend lán. Það hefur einnig átt sér stað þegar um hefur verið að ræða fiskiskip sem hefur verið í eigu Íslendinga, en hefur síðan verið selt erlendum aðila og verið keypt af þeim erlenda aðila aftur til landsins. Það hefur einnig í þeim skilningi verið litið svo á, að þar væri um að ræða kaup á fiskiskipi til landsins frá erlendum aðila, enda hefur hinn erlendi aðili verið seljandi. En mér er ekki kunnugt um að áður hafi átt sér stað milliliðalaus heimild til erlendrar lántöku til kaupa á fiskiskipum milli fjarða innanlands. Ég veit ekki til þess. Ég hygg að þetta sé í fyrsta skipti sem það er gert. Þar er vissulega verið að leggja út á varhugaverða braut vegna þess að ég held að menn séu almennt sammála um það, og hélt reyndar að það væri skoðun hæstv. viðskrh., að menn ættu að fara sér varlega í erlendum lántökum og þar væru menn fyrir allnokkru búnir að spenna bogann til fulls.
Herra forseti. Það er ekki staður né stund til að ræða mál af þessu tagi í fsp.-tíma. Ég læt mér því nægja að þakka hæstv. viðskrh. þær upplýsingar sem fram hafa komið í málflutningi hans, en vil aðeins bæta því við, að mér er ekki kunnugt um að sú afgreiðsla, sem hann hefur hér gert, eigi sér fordæmi.