02.02.1982
Sameinað þing: 45. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2172 í B-deild Alþingistíðinda. (1842)

143. mál, erlendar lántökur vegna viðskipta með fiskiskip innanlands

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Það var svolítið verið að fjalla um skip sem ættu að fara úr landi, en ættu eitthvað erfitt með að komast úr landi. Mér varð það ljóst fljótlega eftir að ég hafði tekið við embætti sjútvrh., að þessi regla gengi ekki. Ég reyndi að framkvæma hana, en hún gekk ekki. Þegar farið var í gegnum dæmin var augljóst að það voru sífelld skipti, þannig að það var annaðhvort úrelt skip eða lélegt og lítið sem fór úr landi á endanum í staðinn fyrir stórt skip.

Það var rakið hér dæmi um Ísleifsskipið. Það er mjög gott dæmi af þessu tagi, þar sem skip, sem áður er búið að úrelda, á að koma í stað nýs skips með millilið sem var í því spili. En úr því að menn eru að tala um þetta væri líka aldeilis vert að rifja upp dæmi um önnur skip og spyrja hvaða skip hafi farið úr landi í staðinn fyrir þau. Það er verið að flytja inn togara til Akraness, Dalvíkur, í Garðinn, til Þórshafnar, það er verið að flytja inn Sunnutind til Djúpavogs og það er verið að flytja inn skip til Sjólastöðvarinnar í Hafnarfirði. Ég veit ekki til þess að neitt skip eigi að fara úr landi í staðinn fyrir öll þessi skip. Eitt skip var flutt inn til Vestmannaeyja sem var 150 tonn, en eftir bestu upplýsingum var það 11 tonna skip sem fór út í staðinn.

En að því er hinar erlendu lántökur varðar, sem voru kannske hér fyrst og fremst til umr., þá verð ég að taka undir það, að það er ákaflega einkennilegur viðskiptamáti að taka upp erlendar lántökur þegar eiga sér stað viðskipti milli innlendra aðila. Það mætti í rauninni spyrja: Hvers eiga vörubílstjórar að gjalda? Ef það má veita erlend lán í sambandi við sölu á skipum milli fjarða, af hverju mætti þá ekki alveg eins veita erlend lán í sambandi við sölu á vörubílum eða vinnuvélum milli verktaka? Ég sé í rauninni engan grundvallarmun á því. Þetta geta verið mjög atvinnuskapandi tæki í því byggðarlagi sem þau lenda í, þó að þau drægju kannske úr atvinnunni í hinum, rétt eins og þau dæmi sem hér hafa verið rakin um fiskiskipin. Ég held því að menn ættu að hugleiða mjög vel sinn gang áður en menn fara að framkvæma þá reglu sem hér hefur verið bryddað upp á af hæstv. viðskrh.