02.02.1982
Sameinað þing: 45. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2174 í B-deild Alþingistíðinda. (1845)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Jón Helgason):

Hv. 1. þm. Vestf. hefur borið hér fram kvörtun til forseta vegna þess að ekki hefur borist enn skriflegt svar við fsp. hans sem er 87. mál Sþ. á þskj. 90. Forseta er stundum nokkur vandi á höndum að meta hvort fsp., sem honum berast frá hv. alþm., rúmast innan þeirra marka sem þingsköp setja þeim. Ekki er alltaf augljóst hversu umfangsmikil svörin verða og hversu tiltæk nauðsynleg gögn eru hjá þeim aðilum sem upplýsinga þarf að leita hjá. Það er vafalaust nauðsynlegt að hv. alþm. veiti forseta aðhald í þessum sökum, eins og hv. 1. þm. Vestf. hefur nú gert, svo að forseti gangi þar ekki of langt til móts við óskir einstakra hv. alþm. um að leyfa fsp. sem — eins og því miður hefur komið í ljós að þessu sinni — ganga of langt. Tilvitnum hv. 1. þm. Vestf. í 32. gr. þingskapa skýrir það.

En hvað þessa fsp. snertir sendi forsrn., eins og hv. 1. þm. Vestf. sagði þegar út beiðni um svör til þeirra stofnana sem spurningarnar ná til. Mér er kunnugt um að forsrn. hafa nú borist svör frá allmörgum þessara aðila, en ekki frá þeim öllum. Alþingi er ein af þeim stofnunum sem svar liggur ekki fyrir frá. Eins og hv. alþm. er kunnugt er skrifstofulið Alþingis fámennt og annatími hefur verið hér á Alþingi síðustu vikur, fyrst í sambandi við þinghaldið fyrir jólin og svo m. a., vegna ýmissa starfa í sambandi við áramót. Tími hefur því ekki unnist til fyrir fastráðið starfsfólk Alþingis að ljúka við að ganga frá svörum og ekki hefur enn verið horfið að því ráði að bæta við starfsliði í þennan hóp til að sinna þessu verkefni. E. t. v. er ástæða til að kanna hversu mikið fylgi það á hér á hv. Alþingi, að opinberar stofnanir ráði sér varalið, einhverja talnameistara sem eru reiðubúnir að svara fyrirvaralítið dæmum er fyrir stofnanirnar kynnu að verða lögð. Ég verð að viðurkenna að ég get ekki mælt með slíku þar sem ég tel önnur verkefni brýnni í okkar þjóðfélagi. En ég mun að sjálfsögðu verða við beiðni hv. 1. þm. Vestf. og fylgjast með framgangi þessa máls og sjá hvað hægt er að gera til að hraða því að svar berist, eins og hér hefur verið ítrekað.