02.02.1982
Sameinað þing: 45. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2175 í B-deild Alþingistíðinda. (1846)
Umræður utan dagskrár
Árni Gunnarsson:
Herra forseti. Ég hafði ætlað mér að biðja hér um orðið utan dagskrár, en ég tel það alveg koma heim og saman við það, sem hv. þm. Matthías Bjarnason hefur hér rætt, að ég fylgi í kjölfarið.
Fyrir röskum níu vikum lagði ég fram hér á Alþingi fsp. til hæstv. forsrh. um rannsóknir og viðvörunarkerfi í Mývatnssveit. Ég sagði: fyrir níu vikum. Í þingsköpum Alþingis, 32. gr., sem hér var vitnað til áðan; segir enn fremur:
„Fyrirspurn skal þó ekki tekin á dagskrá síðar en átta virkum dögum eftir að hún var leyfð.“
Þetta gefur nokkuð til kynna hvern hraða menn vilja hafa á svörum við fsp. hér. Sú fsp., sem ég lagði fram, varðar mjög öryggi íbúa Mývatnssveitar og ég hafði talið brýna nauðsyn að fá svar við þeim spurningum sem ég lagði fram. Nú get ég upplýst það hér, að í morgun var mér tjáð í Norrænu eldfjallarannsóknastöðinni að landris í Mývatnssveit væri orðið meira en það varð þegar gos hófst þar 18. nóv. s. l. Það er því að vonum að íbúar í Mývatnssveit séu órólegir vegna þess ástands sem þarna hefur skapast, því að þarna getur að mati jarðfræðinga gosið hvar sem er á 35 km langri gossprungu og þá ekkert síður í Bjarnarflagi eða við Leirhnjúk en annars staðar.
Ég hafði samband við forsrn. s. l. þriðjudag og ítrekaði það, að ég óskaði eftir að þessari fsp. yrði svarað. Ég fékk góð og gild svör í rn. varðandi það, að því hefðu ekki borist nauðsynleg gögn frá öðrum ráðuneytum eða að þau gögn væru svo viðamikil að talsverðan tíma tæki að vinna úr þeim. Mér var hins vegar sagt að ég mundi fá svar við þessari fsp. minni á næstu dögum. Hún hefur ekki verið tekin á dagskrá nú.
Ég er ekki með þessum orðum mínum að hnýta í nokkurn mann. Ég er bara að benda á að hér er níu vikna gömul fsp. sem ég tel að varði íbúa eins sveitarfélags ákaflega miklu, þ. e. að þeir fái að vita hvernig þeir geta brugðist við þeirri hættu sem að þeim steðjar. Ég tel þess vegna að ég eigi fullan rétt á því að fá svar við fsp. og raunar hefði átt að vera búið að svara henni fyrir löngu.
Þessu vildi ég koma hér á framfæri og lýsa því yfir og ítreka jafnframt þá ósk mína að þessi fsp. verði tekin fyrir eins fljótt og auðið er hér í sameinuðu þingi.