02.02.1982
Sameinað þing: 46. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2189 í B-deild Alþingistíðinda. (1862)

54. mál, ávana- og fíkniefni

Helgi Seljan:

Herra forseti. Ég á það helst erindi hér að taka rækilega undir þessa till. Það er vissulega þjóðarvá, hversu alvarlegt það ástand er sem nú blasir við, sú þróun sem við höfum horft upp á. Ég kem í raun og veru einnig til að lýsa yfir þeirri skoðun minni, að þetta mál verði aldrei einangrað frá þeirri vá, sem af áfengisbölinu stafar, og það sé því full ástæða til að minna á það.

Við höfum verið að lesa í blöðunum um hinar ýmsu tegundir slíkra efna, þann faraldur sem þar gengur yfir varðandi unglinga okkar sér í lagi. Allt er það til umhugsunar og rækilegrar skoðunar, en reyndar ekkert nýtt. Slíkt æði hefur yfir gengið áður, sumir komist úr óskaddaðir, aðrir beðið tjón. Það fer ekki hjá því t. d., að þegar menn koma inn á geðdeildir sjúkrahúsa hér veiti þeir eftirtekt því unga fólki sem þar gistir um tíma eða jafnvel um framtíð, að því er manni gæti virst, þar eð sumt af því virðist sannarlega ekki eiga mikla framtíðarvon. Vonandi verður það þó svo, að þær myndir, sem í mínum huga eru núna frá heimsóknum á þessar deildir, séu þannig að fólk, sem ég hef þar í huga, muni ná réttum áttum, muni geta jafnað sig, að það hafi ekki hlotið þegar af þann óbætanlega skaða sem engin læknavísindi fá við ráðið.

En ég vil benda á það um leið, að hér er andvaraleysi okkar um að kenna, því miður. Við höfum nefnilega í frelsishjali okkar og öllu talinu um, að menn eigi að stjórna sér og hafa vald á öllu sem snertir ávana- og fíknilyf, verið að gæla við þetta beint og óbeint. Sú áfengismálastefna hefur t. d. vaðið hér uppi, og ég dreg ekki skýr mörk á milli stefnu í áfengismálum og stefnu í fíkniefnamálum, að hið fullkomna frelsi eitt gæti tryggt farsælan framgang þessara mála og öll boð og bönn og allt aðhald í þessum efnum væru af hinu illa. Og svo reka hinir sömu sem boða þetta upp stór augu og sumir þeirra nota blöðin sín til að slá upp stórfyrirsögnum um unglingana sem hafa lent á glapstigum og hafa drýgt eitthvert ódæði undir áhrifum þessara fíkniefna. Sem eðlileg afleiðing af þessu hefur andvaraleysið gagnvart ávana- og fíkniefnum hvers konar verið allt of mikið þrátt fyrir fjölmörg aðvörunardæmi, sem menn hafa haft fyrir augum sér. Menn hafa eins og hv. 1. flm. kom réttilega inn á, í raun og veru virst telja þetta fjarlægan vanda þrátt fyrir allar upplýsingar, eitthvað sem væri að gerast úti í heimi, eitthvað sem ekki væri ástæða til fyrir okkur að vera á varðbergi gagnvart eða taka hart á eða jafnvel ekki einu sinni vera í viðbragðsstöðu gegn, og þá á ég við þá viðbragðsstöðu sem ein gæti nægt, og því er vandamálið nú svo stórt m. a., svo að ég dragi ekki úr öðrum orsökum. Ég dreg ekkert úr hinum erlendu áhrifum í þessu efnum og ýmiss konar tískufyrirbærum sem þessu eru tengd.

Ég er ekki að hafa um þetta mál neina ræðu. Það er ástæðulaust. Fyrir mér eru vá þess og skelfilegar afleiðingar svo augljósar að ekki veitir af rösklegu átaki, svo sem hér er ráð fyrir gert. En ég get ekki látið hjá líða að benda á tengslin við áfengismálin um leið, það órofasamhengi sem hér er á milli varðandi heildarstefnu og ekki síður almenningsálit. Hví skyldu ekki menn, sem telja algert frelsi í áfengismálum best, telja hið sama eiga við um hvers konar önnur vímuetni einnig? Hví skyldu þeir, sem vilja hafa áfengi alls staðar, m. a. á boðstólum sem allra víðast, ekki vilja ávana- og fíkniefni hvers konar einnig? Já, og af því að ég stend nú hér í þessum ræðustól og hæstv. forseti Sþ. er hér að baki mér: Hví skyldu ekki hinir opinberu aðilar hafa ávana- og fíkniefni í veislum sínum eins og áfengi svona til tilbreytingar? Við höfum stundum minnt á slíkt hér í þingsölum og háðsglósur einar hafa mætt tillögum af því tagi. En sem betur fer erum við að vakna í æ ríkara mæli til vitundar um þá þjóðarógæfu sem af gæti vissulega hlotist ef flotið yrði enn sofandi að feigðarósi í þessum efnum, og hið sama gildir gleðilega að hluta til um áfengismálin.

Ég hygg að hæstv. ríkisstj. sé að fjalla um þessi mál. Ég er að vona að hún sé að gera það af fullri einurð og alvöru og út úr því máli geti vissulega komið pakki sem skili okkur einhverju öðru en umbúðum.

Hér er á ferð till. sem tekur á vandamálunum. Löggjafinn getur vissulega gefið sinn tón eftir þeirri till. Sá tónn í þessari till., sú ræða sem hér var flutt af hv. 1. flm., var af hinu góða og því fagna ég þessu framtaki.