04.02.1982
Sameinað þing: 49. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2261 í B-deild Alþingistíðinda. (1906)
151. mál, landgræðslu- og landverndaráætlun 1982--86
Landbrh. (Pálmi Jónsson):
Herra forseti. Ég þakka fyrir þær umr. sem hér hafa farið fram. Ég er ekki viss um hvort þeim sé að ljúka, en að mestu leyti hafa þær verið mjög vinsamlegar og jákvæðar varðandi þetta mál. Ég þakka fyrir þau viðurkenningarorð, sem hér hafa verið látin falla í garð rn. og þó sérstaklega í garð formanns þeirrar nefndar sem samdi þessa till., og tel enn og ítreka að það hafi verið ákaflega mikilsvert að svo gott samstarf og samhugur náðist í þeirri nefnd sem um þetta mál fjallaði.
Í frumræðu minni fór ég auðvitað ekki ítarlega út í alla þætti málsins, og hér hefur verið sérstök áhersla lögð á ýmsa þeirra sem ég fór ekki nákvæmlega orðum um í upphafi.
Ég get mjög vel ítrekað það með hv. 11. landsk. þm., að þetta mál allt sækir auðvitað grunn sinn að verulegu leyti í það starf sem unnið var við undirbúning landgræðsluáætlunar fyrir árin 1974–79, og er mér það starf auðvitað mætavel kunnugt þar sem ég átti sjálfur sæti í þeirri nefnd, sem að því máli vann. Ég minnist með ánægju þess starfs og margra funda sem ég sótti víðs vegar um landið við undirbúning þess máls, m. a. í heimahéraði hv. 11. landsk. þm. Ég vænti þess, að þrátt fyrir að það hafi ekki allt komist fram sem áformað var á þeirri tíð, þá takist að þoka málum áfram að verulegu leyti í meðferð þess máls sem hér er nú til umræðu. Ég legg hins vegar áherslu á að á grundvelli landgræðsluáætlunar 1974 vannst mjög mikið starf, eins og glöggt má lesa í þeirri skýrslu sem er fylgirit þessarar till. Ég legg einnig minn mælikvarða á það á þann veg, að sú löggjöf, sem var sett í framhaldi af starfi við undirbúning þeirrar till., hafi skilað verulegum árangri, m. a. að því er tekur til meðferðar lands og beitarstjórnar. Þá voru færð í lög ákvæði sem lúta að þessum atriðum. Það var þá sem sett voru lög sem heimila sérstakar aðgerðir sem grípa má til varðandi beitarstjórn, svo sem styttingu beitartíma, bæði á fyrri hluta sumars og eins að hausti, með því að þoka til göngum eða smölunum annars vegar og eins með því að ákveða hvenær fyrst megi reka fé áfjall. Þetta er ákaflega mikilvægt vegna þess, eins og glöggt kom fram í ræðu hv. 2. þm. Norðurl. e., að árferði er misjafnt á Íslandi, gróðurfar er mjög misjafnt eftir árum, að það er ekki auðvelt að setja reglur sem á að framkvæma nákvæmlega eins frá einu ári til annars, heldur hlýtur, ef við viljum hafa sveigjanleika í þessum málum með tilliti til aðstæðna, að verða að taka tillit til veðurfars og ástands gróðurs. Þetta hefur verið reynt að gera í ýmsum tilvikum, en ég ítreka það sem ég sagði í fyrri ræðu minni, að þar má margt betur gera.
Ég tel einnig mjög mikilvægt það sem hér hefur komið fram frá ýmsum ræðumönnum, að ráðin verði bót á varðandi þann þátt sem lent hefur nokkuð í undandrætti, að fram verði komið gerð gróðurkosta, ekki síst grunnkorta af láglendi, en þetta atriði hefur ekki verið í eins góðu lagi og vera þyrfti og er í ýmsum tilvikum grundvallaratriði við beitarstjórn sem byggist á vísindalegum grunni. Ég hef, frá því að ég kom í rn., ritað bréf um þetta efni til samgrn., sem fer með yfirstjórn Landmælinga ríkisins, en þessi kortagerð er á vegum þeirrar stofnunar. Ég hef óskað eftir því, að það tækist að koma á samstarfi margra stofnana, bæði stofnana á vegum landbúnaðarins, stofnana eins og þeirra er vinna að raforkumálum, vegagerð í landinu, skipulagsmálum o. s. frv., sem leiða mætti saman til að standa straum af kostnaði við þetta verk. Ég vona sannarlega að það takist og á það mun ég leggja áherslu.
Hv. þm. mismælti sig kannski þegar hann taldi að í stjórnarsáttmála núv. ríkisstj. væri fyrirheit eða loforð um að ný landgræðsluáætlun yrði framreiknuð á sama verðgildi og hin fyrri. Í stjórnarsáttmála núv. ríkisstj. segir um þetta atriði, með leyfi hæstv. forseta: „Ný landgræðslu- og landverndaráætlun verði gerð.“ Með því þskj., sem hér liggur fyrir, er staðið við þetta fyrirheit. Hitt tek ég undir, að ég tel að út af fyrir sig hefði verið æskilegt að ná meiri árangri hvað fjármagn snertir, en ég sætti mig fyllilega við það, sem hér er lagt til, og tel mikilvægara að ná um málið samstöðu en þó við værum að ýtast á um fjármagn til þessara mála. Það er auðvitað rétt sem fram hefur komið, að fjármagn er ekki allt, heldur einnig hvernig fjármagnið nýtist. Ég lagði áherslu á að við hefðum verið og værum sumpart í vörn í þessum málum, því að sú vörn verður ævarandi, eins og ég skýrði í frumræðu minni. Hins vegar er allnokkuð síðan við hófum einnig sókn. Sú sókn fékk aukinn byr undir vængi með landgræðsluáætluninni frá 1974, og þessi áætlun er framhald þeirrar sóknar. Þess vegna fylgir þessu þskj. sóknarhugur. Undir það vil ég taka og leggja áherslu á það.
Um það, sem hér hefur verið sagt um beitarstjórnun og margs konar tækni í sambandi við það, mætti ræða mjög lengi. Ég skal ekki tímans vegna gera það. Ég þakka ábendingu hv. þm. Árna Gunnarssonar varðandi þann vanda sem fylgir mikilli beit hrossa í grennd þéttbýlisstaða víða hér á landi. Ég hef stundum vakið athygli á þessu sjálfur. Hér á landi eru skráð samkv. framtölum milli 50 og 60 þús. hross, og þessi hross, sem kunna að vera eitthvað fleiri, þurfa mikið fóður. Það fóður taka þau mikið af landinu sjálfu. Svo er komið að sums staðar hefur skapast hættuástand vegna beitarþunga af völdum þessarar hrossaeignar. Þetta er ástæða til að hafa í huga.
Ég ætla ekki að fjalla um ræðu hv. þm. Sighvats Björgvinssonar, sem að mestu var einhvers konar framhaldssaga af umr. sem hér fóru fram fyrir nokkrum dögum og ég var því miður ekki viðstaddur. Ég ætla ekki að blanda mér í framhald af þeim umr. Ég vil aðeins segja það út af orðum hv. þm., að ég held að allir þeir, sem um landbúnað fjalla, séu sammála um að beitarþungi a. m. k. geti haft áhrif á fallþunga, meðferð landsins geti verið þannig að það komi niður á fallþunga dilka, og ég hygg að allir séu sammála því, sem segir og hann vitnaði til í þeirri skýrslu sem hér liggur frammi, að afréttir séu víða fullnýttir og jafnvel ofnýttir. Það er einnig rétt, að þær varnaraðgerðir og þær stjórnunaraðgerðir, sem gripið hefur verið til á síðustu árum, hafa m. a. falist í að verjast því, sem var eitt atriði af því sem hann gat um, að hættuástand skapaðist fyrir gróður og land við afréttargirðingar með því að taka afréttarpening frá girðingunni áður en slíkt ástand skapaðist og áður en þar yrði um varanlegt hættuástand að ræða í gróðurrýrnun. Auðvitað er hægt að segja að það þurfi að gera betur í þessum efnum, og við erum auðvitað á þeirri braut að við ætlum okkur að gera betur eftir því sem tímar líða og eftir því sem þekking okkar vex. En þetta er eitt af þeim atriðum sem er rétt að hafa í huga að mjög verulega er fylgst með og að unnið.
Varðandi friðun lands, sem hann gat einnig um að væri nauðsynleg á tilteknum svæðum, er rétt að þar sem land er á hreyfingu, þar sem sandfok er, verður eigi hjá því komist að friða landið fyrir ágangi búfjár, og þar er réttilega vitnað í þá skýrslu sem hann gat um. Ég held að ekki sé ástæða fyrir mig að fjalla um það í lengra máli, enda mætti tala hér í allt kvöld til að tæma það umræðuefni.
Ég vil aðeins ítreka það, að ég vil ekki segja nema allt gott um Hákon Bjarnason úr þessum ræðustól, enda hann fjarstaddur. Hann hefur starfað af miklum áhuga að einum þætti landbúnaðarmála og unnið þar þrekvirki. En ég hygg að mjög margir búvísindamenn séu honum ekki sammála um ýmis önnur atriði en þau sem snerta sérsvið hans í landbúnaðarmálum. Ekki veit ég hversu gömul kann að vera umsögn hans um að dilkar á suðausturhorni landsins séu 6 kg léttari en á Norðvesturlandi eða Norðurlandi, en víst er að það eru a. m. k. margir tugir ára síðan þetta hefur verið satt, ef það hefur nokkurn tíma verið satt, nema auðvitað, eins og hægt er og hv. þm. Sighvatur Björgvinsson mun hafa gert sig sekan um í sambandi við Grænlandsmál fyrir nokkrum dögum, að það er vitaskuld hægt að finna slíkan mun milli einstakra bænda og það hvar sem er á landinu vegna þess að fallþungi dilka er ákaflega misjafn frá einum bæ til annars og raunar einnig nokkuð frá einu svæði landsins til annars, þó að ekki sé um slíkan mun að ræða sem hér hefur verið fullyrt.
Ég orðlengi ekki þetta meir. Ég þakka þær viðtökur, sem þessi till. hefur fengið, og ég finn mikinn velvilja þeirra sem til máls hafa tekið. Ég er sannfærður um að hún á góðan hljómgrunn hjá Alþingi almennt og hjá þjóðinni, enda hefur hún þann tilgang að bæta land okkar þjóðinni allri til heilla.