04.02.1982
Sameinað þing: 49. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2267 í B-deild Alþingistíðinda. (1910)
52. mál, iðnkynning
Flm. (Davíð Aðalsteinsson):
Herra forseti. Það er ekki ætlun mín að lengja þessa umr. Það er nú orðið áliðið dags og fáir hv. þm. í þingsölum og reyndar í húsinu.
Hv. þm. Guðrún Hallgrímsdóttir vék að því, að till. væri ekki nógu markviss, sú till. um íslenska iðnkynningu sem hér er til umr. Í hugum okkar flm. var það þannig, að við vildum fyrst og fremst vekja athygli á þessu máli, og það var okkar hugsun, að sú íslenska iðnkynning, sem hér er lögð til, yrði mótuð fyrst og fremst af samtökum iðnaðarins. Hér er gert ráð fyrir að því starfi verði hrundið af stað af opinberri hálfu, en okkar hugsun var sú, að samtök iðnaðarins kæmu mikið þar nærri.
Eins og hv. síðasti ræðumaður vék að hlýtur allmikið starf að liggja til grundvallar iðnkynningu. Það er þess vegna að dómi okkar flm. ekki óeðlilegt að þessu sé haldið nokkuð opnu. Till. tíundar fyrst og fremst þau markmið sem stefnt væri að með slíkri iðnkynningu. Hins vegar kann það að vera rétt, að skynsamlegt hefði verið að tíunda í grg. einhverjar hugsanlegar leiðir að slíkum markmiðum sem hér eru nefnd. En eins og ég gat um áðan var hugsun okkar flm. að það yrði miklu fremur á valdi þeirra aðila, sem falið verður vonandi að framkvæma þessa þáltill., að forma slíka iðnkynningu.
Hv. síðasti ræðumaður vék að till. til þál. um iðnaðarstefnu sem hér hafa verið til umr. á hv. Alþingi. Ég held að ég mæli það fyrir munn annarra flm. þessarar iðnkynningartillögu, að okkur gildi raunar einu með hvaða hætti hrundið er af stað iðnkynningu, aðeins að það verði gert. Hvort það er gert í framhaldi eða ljósi þessarar þáltill. eða annars tillöguflutnings er ekki meginmálið. Aðalatriðið er það, að haldið verði uppi markvissari áróðri en að okkar dómi hefur verið beitt til að örva íslenskan almenning til að kaupa inniendar framleiðsluvörur.
Hv. síðasti ræðumaður vitnaði til þeirrar iðnkynningar sem hrundið var af stað 1977. Það er rétt sem hér kom fram, að hún þótti skila allgóðum árangri. Ég hef haft samband við ýmsa forsvarsmenn iðnaðarins sem hafa tjáð mér að það væri alls ekki úr vegi að hrinda af stað slíkri kynningu sem hér er lagt til. Slíka kynningu er auðvitað hægt að framkvæma með ýmsu móti og á ýmsum vígstöðvum. Fyrst og fremst held ég þó að það þurfi að kynna í ríkari mæli íslenskan iðnvarning og e. t. v. að gera íslenskum framleiðendum hægara um vik og léttara undir fæti með að auglýsa sínar vörur heldur en jafnvel innfluttar vörur, svo að dæmi sé tekið.
Ég sagði áðan að ég ætlaði ekki að orðlengja þetta frekar en orðið er. Það er orðið áliðið dags. Ég endurtek og ég held að ég mæli þar fyrir munn allra flm., að það gildir einu að okkar dómi fyrir frumkvæði hverra iðnkynningu er hrundið af stað, bara að það sé gert.