08.02.1982
Efri deild: 40. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2271 í B-deild Alþingistíðinda. (1916)

190. mál, almannatryggingar

Félmrh. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Á s. 1 ári samþykkti hv. Alþingi frv. ríkisstj. til laga um að heimilt yrði að greiða sjómönnum, sem starfað hafa á sjó í 25 ár eða lengur, enda væru þeir orðnir 60 ára að aldri, ellilífeyri. I lögunum er gert ráð fyrir því, að forsenda þessa sé sú, að viðkomandi sjómaður hafi verið lögskráður á fiskiskip þennan tiltekna tíma eða unnt sé að færa sönnur á sjómennskuferil hans með öðrum fullnægjandi hætti.

Eftir að lögin voru samþykkt kom það fljótlega í ljós, að á þeim voru vissir tæknilegir annmarkar sem reynt var að bæta úr að hluta til með setningu reglugerðar sem gengið var frá í okt.–nóv. á s. l. ári. Eitt af því, sem ljóst var að ekki yrði unnt að bæta með reglugerð, var réttindastaða sjómanna sem stundað hafa sjó að hluta eða að öllu leyti á opnum bátum eða þilfarsbátum undir 12 brúttólestum og þess vegna eða af öðrum ástæðum hafi þeim ekki borið skylda til lögskráningar.

Þetta frv. er flutt til þess að tryggja rétt þessara manna, þ. e. þeirra sjómanna sem hafa vérið á trillum og minni bátum, undir 12 brúttólestum. Staðreyndin er sú, að við framkvæmd þeirra lagaákvæða, sem ég gat um að voru samþykkt á Alþingi á s. l. ári, hefur það komið fram, að lögskráning er ákaflega ófullkomin og slök víða hér á landi. Í bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, sem hún skrifaði mér 17. sept. s.1., segir m. a.:

„Í ljós hefur komið að lögskráning sjómanna utan Reykjavíkur hefur verið mjög laus í reipum, svo að ekki sé sterkara til orða tekið. Frá heilum landssvæðum fjölmennra verstöðva eru ófullkomin gögn og víða með öllu glötuð vegna bruna eða ófullnægjandi geymslu og því útilokað fyrir hlutaðeigandi aðila að sanna veru sína í skiprúmi eða lengd skráningartíma.“

Hér er sem sagt við ákaflega erfitt vandamál að glíma þar sem meginstoð laganna, eins og þau voru afgreidd í fyrra, var lögskráningin. Nú er hins vegar ljóst að þeim lagaákvæðum hefur ekki verið framfylgt sem skyldi víðs vegar í landinu, sem er vissulega mjög alvarleg fullyrðing af minni hálfu en ég tel að standist því miður, og af þeim ástæðum er reynt að koma nokkuð til móts við menn með þessu frv. Ég tel rétt að geta þess í tengslum við þetta mál, að það er skoðun mín að lögskráningarmál sjómanna séu í svo alvarlegu horfi, að það sé í rauninni alveg útilokað að una við það lengur. M. a. af þeim ástæðum höfum við átt í viðræðum við sjómannasamtökin um breytingar á þessum lögskráningarmálum og betra eftirlit með þeim en verið hefur. En ég held að Alþingi eigi að kosta kapps um að koma lögskráningarreglum miklu betur fyrir en nú er gert og ríkisstj. og önnur yfirvöld að fylgja því eftir af verulegu kappi, vegna þess að ef ekki er um að ræða lögskráningu hefur það iðulega komið fyrir, þó að í minna mæli sé nú orðið en áður, að menn hafa misst rétt vegna þess að þeir vanræktu lögskráningu og yfirvöld sinntu ekki lagaskyldum sínum í þeim efnum. En það er annað mál. Þetta frv. er fyrst og fremst borið fram til þess að tryggja sjómönnum á trillubátum sambærilegan rétt og þeim öðrum sjómönnum sem tryggður var réttur með lögum um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 30/1981, sem samþykkt voru samhljóða á hv. Alþingi á s. l. ári.

Ég legg til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og trn., og mér þætti vænt um að hv. nefnd svo og þd. legði á það áherslu og kapp að koma þessu máli fram á yfirstandandi þingi.