08.02.1982
Efri deild: 40. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2272 í B-deild Alþingistíðinda. (1918)
173. mál, útflutningsgjald af sjávarafuðrum
Frsm. (Stefán Guðmundsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um breyt. á lögum nr. 2 1. febr. 1980, um breyt. á lögum nr. 5 13. febr. 1976, um útflutningsgjald af sjávarafurðum, og breyt. á lögum nr. 81 21. des. 1981.
Ég þarf ekki að flytja ræðu með þessu frv. Stutt er síðan hæstv. sjútvrh. talaði hér allitarlega fyrir þessu máli og veit ég að þau orð, sem hann sagði hér þá, eru dm. þessarar ágætu deildar eflaust ofarlega í huga.
Sjútvn. leggur til að frv. verði samþykki óbreytt. Fjarverandi afgreiðsluna voru Gunnar Thoroddsen og Kjartan Jóhannsson, en undir nál. rita Stefán Guðmundsson, Guðmundur Bjarnason, Geir Gunnarsson, Egill Jónsson og Guðmundur Karlsson.