09.02.1982
Sameinað þing: 50. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2300 í B-deild Alþingistíðinda. (1939)

128. mál, öryggismál sjómanna

Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. 1. landsk. þm. þær ábendingar, sem hann kom að hér, og tek undir það með honum, að það er ansi þungt að þurfa að þola það, þegar leitað er eftir fjárveitingum í slíku skyni, hve stirðlega gengur. Það verður að segjast eins og er. Svo var t. d. í sambandi við gerð þeirrar ágætu kvikmyndar sem minnst var á. Það er rétt sem hv. þm. sagði, að sjómannasamtökin hlupu þar undir bagga, annars væri myndin ekki gerð.

Ég vil geta þess, að ég setti í gang athugun á skipulagi Siglingamálastofnunar og einnig í því sambandi á Sjóslysanefnd. Hef ég fengið um það töluverða skýrslu sem ég er ekki alveg ásáttur með, en mun halda áfram þeirri endurskoðun, fyrst og fremst með það í huga, að öryggismála sé gætt til hins ítrasta.

Hv. fyrirspyrjanda þótti svar mitt við fyrstu spurningunni ekki fullnægjandi. Ég get út af fyrir sig ekki áfellst hann fyrir það. Það stafar bara af því, að ég gat ekki fundið nein ákveðin dæmi sem þessi síðasti liður í samþykkt Fiskiþings byggist á. Um það má stöðugt deila hve lengi öryggisbúnaður eins og þessi merki sleppibúnaður, sem við höfum oft talað um, á að vera til athugunar. Mér er ljóst að ýmsum, m. a. sumum sem að þessum samþykktum standa, hefur þótt það taka allt of langan tíma að lögbinda þennan búnað. En ég ræddi hér um daginn hvers vegna talið hafi verið nauðsynlegt að fara svona í þau mál.

Ég skal nú fara aðeins nánar yfir þetta.

2. liður samþykktar Fiskiþings er: „Yfirbyggðir björgunarbátar verði lögskipaðir á öll íslensk flutningaskip.“ Þetta hefur verið til meðferðar og umræðu og tengist þeim alþjóðlegu samþykktum sem verið er að vinna í.

Síðan segir í 3. lið: „Komið verði með lögum skyndiskoðun á skipum. Undir þessa skoðun heyri öryggisbúnaður“ o. s. frv. Ég hafði ekki frétt um þessa hugmynd áður og mér finnst sjálfsagt að athuga hana, en ég er viss um að slík lagasetning þarf töluverðan undirbúning. Þetta mun verða athugað.

4. liður er um kvikmyndina sem hefur verið gerð og við höfum fjallað um og þarf náttúrlega að endurbæta eftir því sem endurbætur verða í öryggismálum. Ég held að það mál sé á góðri leið.

5. liður: „Að brýnt verði fyrir skipstjórnarmönnum að koma með skipshafnir sínar á þá staði, sem gúmmíbjörgunarbátar eru skoðaðir, og kynna þeim þar búnað þeirra og mikilvægi.“ Þetta getur varla átt við siglingamálastjóra. Eins og fram kemur á þetta við skipstjórnarmenn.

Ég rakti áðan nokkra liði: 6., 7., 8. og 9., sem varla eiga beint við siglingamálastjóra: Að fella niður gjöld og tolla af tækjum og að stjórn Fiskifélags Íslands beiti sér fyrir því við stjórnvöld, að löggæsla í sjávarplássum verði ekki rýrð o. s. frv. Varað er við sjósókn þar sem einn maður er á bát. Þetta á varla við siglingamálastjóra. Þetta er viðvörun sem er góðra gjalda verð.

10. liður: „Að lögskipa skuli að hástokkur og þak á stýrishúsi smábáta verði málað í orange-gulum lit. Þetta á líklega að vera: appelsínugulum lit. Um þetta hefur verið fjallað. Mönnum sýnist þetta góð ábending og verður tekið til athugunar, einnig endurskinsmerki og þess háttar hlutir.

Þá er það 11. liður: „Að skora á samgrh. að gera eins fljótt og frekast er hægt hina nýju vitanefnd starfhæfa.“ Það hefur verið gert. Það eru nokkrar vikur síðan og hún hefur haldið nokkra fundi. Hins vegar fór ég fram á að starfsmaður fengist fyrir þessa vitanefnd, eins og lögin gera ráð fyrir, en því var hafnað og fékkst ekki gegnum fjmrn. í meðferð fjárlagafrv. Þar er því dálitið gat á, en vitanefndin hefur, að því er ég best veit, þegar hafið starfsemi af töluverðum krafti.

12. „Að minna á að ekki er enn kominn renniloki á alla skuttogara í netarennunni.“ Þetta er verðug ábending og hefur að sjálfsögðu verið komið á framfæri. Verður reynt að fylgjast með því eins og kostur er.

Síðan er 13. liður: „Enn minnir Fiskiþing á þann vanda sem er við að komast að og frá borði á bátum og skipum í ýmsum höfnum landsins. Enn fremur telur þingið að stórauka þurfi gæslu margra hafnarsvæða þar sem erfiðast er í þessum málum.“ Þetta á fyrst og fremst við Vita- og hafnamálastofnunina ef vantar stiga og þess háttar til að komast að og frá bátum. Þessu mun ekki enn hafa verið komið þar á framfæri, en það verður gert.

Í 14. lið er tillaga um að setja ljós á öll björgunarbelti. Mér hafði ekki verið kunnugt um þessa hugmynd áður, en henni hefur sömuleiðis verið komið á framfæri.

Síðan kemur 15. liður. Þar er skorað á siglingamálastjóra að birta opinberlega efni þeirra reglugerða sem Alþjóðasiglingamálastofnunin hefur samþykkt. Um þetta fjallaði ég áðan. Ég held að það sé nánast ógerlegt, enda misskilningur, að birta hverja þá samþykkt og skýringar, ef við það er átt, sem þarna fara í gegn, því að þetta er svo gífurlega mikill bálkur að ég held að það bara rugli menn. Ég held að skárra sé, eins og ákveðið var eftir þann fund sem ég gat um áðan, að endurbæta þær reglugerðir sem eru í gildi. Hins vegar kann að vera að slíkar breytingar hafi ekki verið kynntar nægilega vel. Sjálfsagt er að gera á því bragarbót.

16. liður er um að banna nú þegar að neyðarsendar, sem ekki hafa hlotið viðurkenningu Póst- og símamálastofnunar, verði settir í gúmbjörgunarbáta. Um þetta hefur mjög mikið verið fjallað aftur og aftur og reynt að finna lausn á því máli. Ég get glatt hv. fyrirspyrjanda með því, að þetta mál er nú fram gengið. Ég hygg að um það sé orðið samkomulag, hvernig því verður háttað. Búið er að ganga frá gífurlega mikilli reglugerð um fjarskipti þar sem m. a. er um þetta fjallað. Staðið hefur á því, að ekki hafa verið til sendar sem fullnægt hafa þeim reglum sem settar eru. Því var talið skárra að leyfa til bráðábirgða senda sem ekki voru að öllu leyti fullnægjandi, sem senda aðeins á annarri bylgjunni — þó á þeirri sem langmikilvægust er — á meðan ekki var fenginn fullnægjandi sendir. Nú er fenginn sendir sem fullnægir öllum kröfum, og þá er ákveðið að veita þeim, sem eru með eldri sendana nokkurn aðlögunartíma. Þeir fá að nota þá út þeirra endingartíma.

Hitt er svo umdeilt, hvort báðar þessar tíðnir eru nauðsynlegar. Ég gæti reyndar haft um það langt mál því fjallað hefur verið um þetta fram og aftur og leitað leiða til að fullnægja ströngum ákvæðum reglugerðar, sem mun vera nánast einsdæmi hjá siglingaþjóðum. Við erum þarna brautryðjendur að þessu leyti.

Hitt er svo annað mál sem kemur fram í 17. lið, sem fjallar um gervihnattakerfi, að þar er um framtíðarþróun að ræða og gefur fyrst og fremst til kynna hve örar breytingar eru á þessu sviði. Ég hef fengið upplýsingar frá pósti og síma um að fylgst er mjög vel með því sem er að gerast. Reyndar get ég bætt við einni bylgjulengdinni enn sem er til athugunar núna. Mig minnir að það sé 406 MHz, sem kann að bætast við þetta gervitunglakerfi sem er mjög athyglisvert. En ég hygg að menn telji nú að í það séu nokkur ár að það verði fullkomnað, en með því er fylgst.

Ég vona þá að ég hafi bætt ráð mitt eitthvað, en endurtek að ég hef út af fyrir sig ekki séð að um neina vanrækslu sé að ræða, en um ýmislegt til viðbótar er að ræða sem svo sannarlega verður athugað.