09.02.1982
Sameinað þing: 50. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2305 í B-deild Alþingistíðinda. (1944)
174. mál, afstaða ríkisstjórnarinnar til einræðisstjórnarinnar í Tyrklandi
Þorv. Garðar Kristjánsson:
Herra forseti. Það er staðreynd, að í Tyrklandi hefur lýðræði verið afnumið, og það er ekkert ofsagt í því sem hv. 4. þm. Reykv. og hv. til einræðisstjórnarinnar í Tyrklandi. 2306 11. þm. Reykv. hafa sagt hér um ástandið í því landi.
Hér hefur borist í tal afstaða eða viðbrögð Evrópuráðsins, sem mér er nokkuð kunnugt um, til þessa máls. Það er rétt að það komi hér fram, að það var ekki einungis 28. jan. s. l. sem Evrópuráðið gerði samþykkt sem fordæmdi ástandið í Tyrklandi, heldur gerði Evrópuráðið það þegar eftir byltinguna þar í landi og hefur gert það nokkrum sinnum á þingum sínum og krafist þess, að breytt yrði til betri vegar.
Annað mál er það, að strax eftir að þessi voveiflegu tíðindi gerðust í Tyrklandi greindi menn í Evrópuráðinu á um hvernig ætti að bregðast við með tilliti til þess, hvort ætti að reka Tyrkland úr Evrópuráðinu eða ekki. Annars vegar voru þeir, sem vildu strax reka Tyrkland úr Evrópuráðinu, hins vegar voru þeir, sem vildu fara gætilega með það í huga að það væri meiri von til þess að aðilar að Evrópuráðinu gætu haft áhrif á þróunina í Tyrklandi ef Tyrkir væru áfram í ráðinu. Þessi stefna hefur orðið ofan á í Evrópuráðinu og mikill meiri hluti hefur fylgt þessari afstöðu. Síðasta samþykkt, sem gerð var í Evrópuráðinu, var harðorðust í garð Tyrkja og er ekki nema gott um það að segja.
Hv. 11. þm. Reykv. hefur lýst því yfir í þessum umr., að hann hafi hug á að bera fram till. hér á Alþingi sem lýsi yfir stuðningi við samþykkt Evrópuráðsins frá 28. jan. s. l. Það eru margar góðar samþykktir sem Evrópuráðið hefur gert á starfsferli sínum, en ég minnist þess ekki að Alþingi Íslendinga hafi samþykkt ályktun um stuðning við þessar samþykktir þó að margar hverjar séu jafnþýðingarmiklar og samþykktin frá 28. janúar. Hins vegar þykir mér eðlilegt, ef þessi till. kemur fram, að utanrmn. athugi málið. Ég hygg að það þurfi að taka nokkurt tillit í þessu efni til viðbragða annarra þjóða.
Ég vil aðeins, herra forseti, að lokum láta þess getið, að þetta er ekki í fyrsta sinn sem Tyrklandsmálin eru rædd á hv. Alþingi. Á síðasta þingi, í umr. um skýrslu utanrrh., ræddi ég ítarlega um Tyrklandsmálin og lýsti ástandinu þar. Ég lauk máli mínu þá með þessum orðum, sem ég vil endurtaka, með leyfi hæstv. forseta:
„Ég tel fyrir mitt leyti að varast beri að gera nokkuð sem getur torveldað endurreisn lýðræðis í Tyrklandi, því sé ekki rétt að rasa um ráð fram um að vísa Tyrklandi úr Evrópuráðinu. Hins vegar er það mín skoðun, að ekki sé útilokað að til þess ráðs verði að grípa, og svo kann að fara að það verði á næstunni gert út um hvort til þess kemur.“