09.02.1982
Sameinað þing: 50. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2307 í B-deild Alþingistíðinda. (1946)

174. mál, afstaða ríkisstjórnarinnar til einræðisstjórnarinnar í Tyrklandi

Fyrirspyrjandi (Vilmundur Gylfason):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. utanrrh. fyrir svör hans við þessari fsp., og ég fagna því sem fram kom í máli hans um það sem gerst hefur á vettvangi Evrópuráðsins og fram hefur komið í máli annarra þm.

En því var sérstaklega spurt um Atlantshafsbandalagið í þessari fsp., og þá tala ég sem einn af stuðningsmönnum þess bandalags og veru Íslands í því, að þó svo að Atlantshafsbandalagið sé bandalag ríkja gegn utanaðkomandi og aðsteðjandi hættu hlýtur það að skipta lýðræðisríkin í Atlantshafsbandalaginu, en það eru þau öll nú að þessu eina landi undanskildu, verulegu máli að stjórnarhættir bandalagsríkjanna séu með þeim hætti að viðunandi sé, þó ekki væri nema af þeirri einföldu ástæðu að bandalagið glatar auðvitað smám saman öllu trausti og allri tiltrú ef svo er ekki. Þá er vísað til sögunnar, bæði í Portúgal og Grikklandi á árum áður, og sú von undirstrikuð að stjórnarhættir í Tyrklandi muni breytast innan tíðar, m. a. fyrir þrýsting frá Íslandi, og sú saga, sem átt hefur sér stað í öðrum ríkjum Suður-Evrópu, sé ekki að endurtaka sig þarna nema þá um örskamma hríð. En til þess að svo megi verða getur okkar lóð vegið þungt. Það getur skipt máli að okkar litla þrýstingi sé beitt í þessum efnum. Til að mynda er á að líta þá skoðun á málefnum Tyrklands sem Bandaríkjastjórn hefur lýst og þá helst utanrrh. þeirra, þar sem hann telur þessa stjórn að einu og öllu vera af hinu góða, Tyrkir hafi gripið í taumana af nauðsynlegum ástæðum þegar annað hafi ekki verið fært. Rök Bandaríkjastjórnar minna óhugnanlega á það sem notað hefur verið til réttlætingar íhlutuninni í Póllandi. Það þarf að vera öllum umheiminum ljóst, og ég hygg að það sé ljóst, að það er skoðun hæstv. utanrrh., sem ber að fagna, að þessi skoðun sé ekki skoðun okkar, ekki skoðun Íslendinga og ekki skoðun íslensku ríkisstjórnarinnar.

Herra forseti. Ég vil endurtaka þakkir til hæstv. utanrrh. fyrir svör hans.