09.02.1982
Sameinað þing: 51. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2309 í B-deild Alþingistíðinda. (1950)

117. mál, lækningarmáttur jarðsjávar við Svartsengi

Félmrh. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Um það leyti, sem fregnir bárust um þá möguleika sem menn töldu vera í lækningamætti jarðsjávar við Svartsengi, var þetta mál rætt í heilbr,- og trmrn. Okkur var kunnugt um að Félag psoriasis- og exemsjúklinga og Sæmundur Kjartansson læknir ætluðu að standa að sérstakri könnun á þessu máli án fjárhagsaðstoðar rn. og afskipta þess. Í umr. um þetta mál í rn. kom fram að ekki hafði verið óskað eftir aðild húðdeildar Landspítalans að þessari athugun. Það kann m. a. að stafa af því, að yfirlæknir húðdeildarinnar hefur haft þá afstöðu, að hann teldi rétt að reyna böðin ein án lyfja og annarrar meðferðar svo úr því fengist skorið hver áhrif vatnið hefði.

Þannig horfa þessi mál við rn. til þessa. Ég tel hins vegar að eðlilegt sé og óhjákvæmilegt að kannað verði til þrautar á vegum rn. eða annarra ábyrgra aðila hvort í þessu felst sá lækningamáttur sem menn hafa rætt nokkuð um. Einnig þarf auðvitað að bera niðurstöður þeirra kannana saman við aðrar aðferðir sem notaðar eru til að lækna psoriasis- og exemsjúklinga, áður en teknar eru ákvarðanir um að koma fyrir meiri háttar aðstöðu suður í Svartsengi sem auðvitað mundi kosta mjög verulega fjármuni.

Ég tel að sú till., sem hér er flutt af þm. Reykn. og fleiri, sé góð og þörf ábending og stuðningur við þá viðleitni rn. að fá úr því skorið, hvort hér sé um að ræða lausn á vanda þeirra einstaklinga sem þjást af þessum erfiða sjúkdómi.

Ég vildi, herra forseti, koma þeim upplýsingum á framfæri, sem ég hef hér þegar gert, um það með hvaða hætti rn. hefur komið að málinu. Ég tel fulla ástæðu til að fylgja því eftir, en legg á það áherslu að lokum, að það er að sjálfsögðu ekki unnt að taka ákvörðun um að kosta þarna mannvirki og endurbætur öðruvísi en að fyrir liggi að hér sé um að ræða betri og hagkvæmari aðferð en þær sem völ er á ella í heilbrigðisþjónustu okkar.