09.02.1982
Sameinað þing: 51. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2337 í B-deild Alþingistíðinda. (1958)
47. mál, ráðunautur í öryggis- og varnarmálum
Ólafur Ragnar Grímsson:
Herra forseti. Það var ekki ætlun mín að tala á nýjan leik. Hér hafa komið fram yfirlýsingar frá núv. hæstv. utanrrh., fyrrv. utanrrh. Benedikt Gröndal og fyrrv. forsrh. Geir Hallgrímssyni, þar sem þeir lýsa því allir yfir að Ísland sé ekki tengt inn í kjarnorkuvopnakerfi Bandaríkjanna. Ef á að taka þessar yfirlýsingar alvarlega sem stefnuyfirlýsingar þessara aðila — og það var ekki hægt að skilja ræðurnar á annan hátt — að það væri þeirra vilji að Ísland væri ekki tengt og ætti ekki að vera tengt inn í kjarnorkuvopnakerfi Bandaríkjanna, þá tel ég — í ljósi þeirra yfirlýsinga sem hér hafa fallið og ég tel tímamótandi yfirlýsingar — nauðsynlegt að hefjast nú þegar handa um algera endurskoðun á starfsemi Bandaríkjanna á Íslandi. Það verði þá gengið rækilega úr skugga um það, hvort þessi stefna hefur verið framkvæmd. Það verði sýnt fram á að ég og aðrir, fjöldinn allur af erlendum hernaðarsérfræðingum og reyndar innlendum einnig, sem telja að Ísland sé tengt inn í kjarnorkuvopnakerfi Bandaríkjanna, við höfum annaðhvort rangt fyrir okkur eða þá, að hafist verði handa um að framkvæma þá stefnu sem núv. og fyrrv. utanrrh. og fyrrv. forsrh. voru að enda við að lýsa hér yfir í dag að ætti að vera stefna Íslendinga.
Það er mikill misskilningur, hv. þm. Benedikt Gröndal, að ég telji þetta einhverja áróðursumræðu. Það er mikill misskilningur. Það er mikill misskilningur að telja að ég sé að flytja þetta hér vegna þess að ég telji þetta vera einhverjar einfaldar yfirborðskenndar áróðursplötur sem þjóni ímynduðum eða raunverulegum flokkspólitískum hagsmunum Alþb. að spila hér á þingi og utan. Málið er mér miklu alvarlegra en svo. Og ekki minnkar alvaran við þær yfirlýsingar sem hér hafa komið fram, að Ísland eigi ekki að vera tengt inn í þetta kerfi og sé það ekki.
Núv. hæstv. utanrrh. og reyndar síðasti ræðumaður einnig, formaður utanrmn., Geir Hallgrímsson, viku aðeins að umræðum hér um það, hvort kjarnorkusprengjur væru á Íslandi eða ekki. Ég vil taka það skýrt fram, eins og ég hef oft sagt hér í þingsölum, að ég hef aldrei fullyrt að hér væru kjarnorkusprengjur. Það hef ég aldrei sagt. Þess vegna þarf ekki að hrekja þá fullyrðingu mína, vegna þess að hún er hvergi til. Það eina, sem ég hef sagt, er að benda á að ýmsir virtir erlendir sérfræðingar og alþjóðastofnanir í þessum málum halda því fram, að á Íslandi séu kjarnorkuvopn, þ. e. sprengjan sjálf. Ég hef lagt á málið ríka áherslu á grundvelli þeirra yfirlýsinga, vegna þess að þetta eru aðilar sem eru teknir alvarlega, m. a. af bandarískum stjórnvöldum, t. d. Center for Defence Information, sem hér var vikið að í þeim umr. á sínum tíma. Yfirmaður hennar er fyrrv. hershöfðingi í Bandaríkjunum. Sú stofnun veitir bandarískum þingmönnum ráðgjafarþjónustu um þessi efni. Hún hefur efnt til einhverrar virtustu alþjóðlegu ráðstefnu Evrópumanna og Bandaríkjamanna um kjarnorkuvígbúnað sem efnt hefur verið til á síðustu tveimur árum. Það eru þess vegna engir aukvisar sem halda þessu fram. Það eru virtustu rannsóknarstofnanir á þessu sviði. En þetta er sérmál, deilan um það, hvort sprengjan sem slík, vopnið sjálft sé hér staðsett eða ekki. Ég hef ekki verið að tala um það hér í dag. Það er satt að segja undarlegt og sýnir — ég veit ekki hvað, ég vil kannske segja: vanþekkingu, en ég veit ekki hvað á að kalla það, ef menn telja að umr. í dag hafi snúist um það. Alls ekki. Það er atriði sem ég hef sagt að er opin spurning. Ég hef ekki fullyrt neitt um það. Ég hef eingöngu bent á þessar yfirlýsingar erlendra aðila í þeim efnum.
Það, sem ég hef hins vegar sagt í dag, er það, að sú tækniaðstaða, sem hér er, tengi Ísland inn í kjarnorkuvopnakerfi Bandaríkjanna. Kjarnorkuvopnakerfið er hugtak sem ég vænti að menn skilji. Það tekur til allrar þeirrar starfsemi og tækja sem gera kjarnorkuveldinu hvert sem það er — kleift að flytja sprengjuna á þann stað sem henni er ætlað að falla, með sem mestri nákvæmni á sem skemmstum tíma og þannig að viðbrögð kjarnorkuveldisins gagnvart hugsanlegri árás — eða til þess að hefja árásina sjálft — geti verið með sem öruggustum og nákvæmustum hætti. Þetta kerfi er samansett af mörgum hlutum öðrum en sprengjunni sjálfri. Það er sett saman af flóknum tækjabúnaði, flóknu tækjakerfi, þar sem flutningstæki sprengjunnar sjálfrar, hvort sem það er flugskeyti, flugvél eða kafbátur, er aðeins einn hluti af þessu kerfi.
Í grófum dráttum má segja að þetta kjarnorkuvígbúnaðarkerfi sé þríþætt. Það er í fyrsta lagi kjarnorkuvopn sem flutt eru af flugvél, og þá eru það flugvélarnar sjálfar sem flytja það og miða því á lokaáfangastað. Í öðru lagi eru það kjarnorkuflugskeyti sem eru af ýmissi gerð og mörg hver á landi og oft og tíðum geta farið til áfangastaðar án verulegrar aðstoðar annarra tækja. En þriðji þátturinn í þessu kerfi er sá þáttur kjarnorkuvígbúnaðarins sem er í undirdjúpum hafanna, kjarnorkukafbátarnir. Hann er einmitt sá þáttur sem þarf hvað flóknast stuðningskerfi til þess að geta beitt þessu helvopni. Það er þess vegna á sviði kjarnorkukafbátahernaðarins eða gagnkafbátahernaðarins, eins og hann er kallaður á íslensku, antisubmarine warfare, eins og það heitir á ensku, þar sem stoðtækin við sjálft helvopnið eru mest, kjarnorkuvígbúnaðarkerfið er flóknast.
Ég hef haldið því hér fram, að SOSUS-kerfið, Orion-flugvélarnar og að nokkru leyti radarkerfin og AWACS-flugvélarnar, sem hér eru, en þó kannske fyrst og fremst SOSUS-kerfið og Orion-flugvélarnar, væru nátengd inn í þetta kjarnorkuvígbúnaðarkerfi vegna þess að það gæti bókstaflega ekki starfað, — hið gagnkvæma kjarnorkuvígbúnaðarkerfi risaveldanna í höfunum á norðurslóðum gæti bókstaflega ekki starfað — út frá því hvernig Bandaríkjamenn starfrækja þetta kerfi af sinni hálfu án þess að þessi SOSUS-aðstaða og Orion-flugvélarnar og reyndar ýmislegt annað væru til staðar.
Síðan koma menn hér, núv. og fyrrv. utanrrh. og fyrrv. forsrh., og lýsa því bara yfir að Ísland sé ekki tengt kjarnorkuvígbúnaðarkerfi Bandaríkjanna, m. ö. o. að SOSUS-stöðvarnar, sem hér eru, bæði á Suðausturlandi og Suðvesturlandi, séu ekki tengdar inn í kjarnorkuherafla Bandaríkjanna í kafbátunum eða tengdar við gagnkvæma árásargetu risaveldanna á sviði kjarnorkuvígbúnaðarins, Orion-flugvélarnar sé það ekki heldur og AWACS-flugvélarnar væntanlega ekki heldur.
Nú spyr ég í fyllstu hreinskilni: Eru þessi orð mælt af vanþekkingu þannig að þeir trúi þessu í raun og veru sjálfir? Þá verð ég að segja við 1. flm. þessarar till.: Við þurfum ekki einn sérfræðing. Við þurfum að fá helst sem fyrst úrval af ýmsum bestu sérfræðingum nágrannalandanna hér í kringum okkur. Það þarf að efna til námskeiðs, helgarnámskeiðs eða kvöldnámskeiðs, sem fyrst fyrir menn til þess að þeir geti áttað sig á þessu. Það getur því vel verið að ég flytji um það brtt. við þessa till., að hér verði stofnuð sérfræðingasveit, því að ég vil taka þessi orð alvarlega. Ég vil ekki væna núv. og fyrrv. utanrrh. og fyrrv. forsrh. um að þeir iðki blekkingar á þessum sviðum. Þeir hljóta að trúa þessu, mennirnir.
Ég vil ítreka aftur það sem ég sagði áðan. Við verðum að gera greinarmun á staðsetningu sprengjunnar sjálfrar, sem við ræddum hér um í fyrra og ég endurtek að ég hef aldrei fullyrt að hér væri, aðeins bent á alþjóðlega sérfræðinga og álit þeirra, og svo hins vegar kjarnorkuvopnakerfinu í heild sinni, því sem gerir mönnum kleift að beita vopninu sjálfu. Ef menn halda því fram, að það séu engin tengsl milli tækjanna hér og kjarnorkuvígbúnaðarkerfisins í kafbátunum, þá er það söguleg yfirlýsing hjá núv. og fyrrv. utanrrh. og fyrrv. forsrh. Íslands.
Það var vikið hér að skýrslunni um GIUK-hliðið og dregið í efa að þessi skýrsla sýndi fram á tengsl þeirrar starfsemi, sem hér er, við kjarnorkuvígbúnaðarkerfi risaveldanna í kafbátunum. Ég ætla að lesa hér nokkrar tilvitnanir úr þessu riti til þess að vekja athygli hv. þm. á því, að í þessu riti kemur fram ítarleg lýsing á því, hvernig starfsemin hér er tengd við þennan kjarnorkukafbátahernað. Á bls. 34 er almenn skilgreining á gagnkafbátahernaði sem er grundvallarþátturinn í kjarnorkuvígbúnaðinum á Norður-Atlantshafi. Það er komið fram fyrr í ritinu, að gagnkafbátahernaðurinn sé meginundirstaða kjarnorkuvígbúnaðarins á Norður-Atlantshafi. En hér segir orðrétt, með leyfi hæstv. forseta:
„Gagnkafbátahernaður er fólginn í því að uppgötva, bera kennsl á, staðsetja og ef til átaka kemur að granda kafbátum. Er þetta gert með samræmdum aðgerðum flugvéla, þyrla, herskipa og kafbáta sem eru sérstaklega útbúin í þessu skyni. Enn fremur eru hlustunardufl, hlustunartæki á hafsbotni og gervitungl mikilvægir liðir í þessu kerfi.“
Hér fá menn í örfáum setningum góða heildarlýsingu á þessu kerfi sem ég hef verið að tala um, hvernig þessir ótalmörgu þættir tengjast hver öðrum. Síðan er í þessu riti ítarleg lýsing á því, hversu SOSUS-kerfið og Orion-flugvélarnar tengjast inn í þessa mynd. Það sem meira er: á bls. 38 kemur það skýrt fram og á blaðsíðunum þar á eftir, að SOSUS-kerfið er hvorki meira né minna en grundvallarþátturinn í kjarnorkukafbátakerfinu á Norður-Atlantshafi og þar með kjarnorkuvígbúnaði risaveldanna. Á bls. 38 segir orðrétt, með leyfi hæstv. forseta:
„Uppgötvun kafbáta er eins og áður hefur verið getið mikilvægasti liðurinn í gagnkafbátahernaði. SOSUS ber uppi þennan þátt gagnkafbátakerfis bandaríska flotans.“
Ég endurtek: „SOSUS ber uppi þennan þátt gagnkafbátakerfis bandaríska flotans.“
Á bls. 39 segir orðrétt, með leyfi hæstv. forseta: „Bandaríski flotinn hefur yfir að ráða tveimur gerðum kafbátaleitarvéla. Orion P-3 eru staðsettar á landi víðs vegar um heiminn, en S-3 A Viking eru á flugmóðurskipum flotans. Flestar vélanna í landinu eru af gerðinni Orion P-3C.“ — Ég skýt því inn hér, að það eru einmitt þær flugvélar sem hér eru. En síðan segir áfram orðrétt: „Telja bandarísk hermálayfirvöld að þessar vélar í samvinnu við SOSUS og annan eftirlitsbúnað séu öflugustu tækin í gagnkafbátahernaði ef til ófriðar dregur á svæðum þar sem loftvarnir Sovétmanna eru veikar.“
Svo segja menn hér, ráðamenn þjóðarinnar: Það eru engin tengsl aðstöðunnar á Íslandi við kjarnorkuvígbúnaðarkerfi risaveldanna í kjarnorkukafbátunum hér í kring.
Á bls. 50–51 er mjög nákvæm lýsing á tengslum þessa SOSUS-kerfis við kjarnorkukafbátana, hvernig þetta myndar allt saman eina heild. Vegna þeirra yfirlýsinga, sem hér komu fram, ætla ég að lesa þetta, með leyfi hæstv. forseta. Í skýrslunni segir orðrétt:
„Í yfirlýsingum bandarískra stjórnvalda hefur hlutverki SOSUS verið lýst á eftirfarandi hátt:
„SOSUS er eftirlitskerfi sem fyrst og fremst er hannað í þeim tilgangi að veita upplýsingar um kafbáta, til viðvörunar og staðsetningar. Hægt er að nota það til að aðstoða flotaforingja við að stjórna hinum takmarkaða gagnkafbátaherafla og að gefa gagnlegar upplýsingar um hernaðaruppbyggingu óvinar á viðkomandi hafsvæðum. Slík geta gæti komið að notum til að auka svæðisbundinn og alþjóðlegan stöðugleika með því að sýna getu Bandaríkjanna til að verja hagsmuni sína og standa við skuldbindingar sínar gagnvart bandalagsríkjum. SOSUS hefur sýnt verulega hæfni til að uppgötva kafbáta, sem athafna sig eða eru á leið í gegnum svæðið sem SOSUS nær yfir. Eldflaugakafbátar Sovétríkjanna, sem athafna sig á þessum svæðum, eru að sjálfsögðu undirlagðir aðgerðum er beinast að uppgötvun og staðsetningu þeirra á sama hátt og tundurskeyta- og stýriflaugakafbátar. SOSUS og endurbætur á því geta gefið aðvörun um herafla á leiðinni. Á þann hátt gæti það treyst stöðugleika með því að veita aukalegan aðvörunartíma til að efla“ — og hlusti menn nú— „til að efla möguleikana á því, að kjarnorkuvopnabúnaður Bandaríkjanna, sem ætlunin væri að ráðast á með eldflaugum frá kafbátum, verði ekki fyrir áfalli.“
Þetta er kannske líka misskilningur. Þetta er kannske líka bara áróðursplata eins og það sem ég hef verið að segja hér í dag. Það skyldi þó ekki vera að Pentagon væri í þjónustu Alþb.? Hér hafa menn það formlega frá herstjórnaryfirvöldum Bandaríkjanna sjálfra í opinberum gögnum, að tilgangur þessa SOSUS-kerfis sé „að efla möguleikana á því, að kjarnorkuvopnabúnaður Bandaríkjanna, sem ætlunin væri að ráðast á með eldflaugum frá kafbátum, verði ekki fyrir áfalli.“ Síðan er því lýst mjög nákvæmlega, hvernig þessi SOSUS-búnaður sé meginburðarásinn í öllu þessu kerfi. Svo koma menn hér, vitandi það að hér eru tvær lykil-SOSUS-tengingarnar á Norður-Atlantshafi, og segja: Það er engin tenging, það eru engin tengsl Íslands við þetta kerfi. Ef á að taka þessar yfirlýsingar alvarlega er alveg ljóst að bandarísk stjórnvöld hafa stórlega blekkt íslenska utanrrh. og forsrh. Þeir hafa staðið í þeirri trú, að það væru engin tengsl Íslands við þetta kerfi. En þessar lýsingar og fjöldinn allur annar af slíkum tilvitnunum sýnir skýrt og greinilega fram á þessi tengsl. Það sem meira er: það er ekki bara tilbúningur í mér, þetta hugtak með burðarásinn. Það er í skjölum frá bandaríska hernum. Það er ekki eitthvert áróðurshugtak sem Alþb. hefur fundið upp, það er mesti misskilningur. Þetta er hugtak sem kemur úr lýsingum bandaríska hersins sjálfs, og menn geta lesið það í þessari GIUK-skýrslu ef menn nenna ekki að lesa öll skjölin frá bandaríska hernum.
Síðan er á bls. 51 samandregin lýsing á því, hvernig þessi aðstaða hér á Íslandi fléttast inn í vígbúnaðarkerfi Bandaríkjanna og annarra kjarnorkuvelda NATO á þessu svæði. Ég ætla einnig að lesa hana mönnum til nánari glöggvunar, vegna þess að þær yfirlýsingar, sem hér hafa komið fram frá þessum hv. og hæstv. heiðursmönnum, gefa vissulega tilefni til að þessi texti sé lesinn hér í þingsölum:
„Fylgst er með sovéskum kafbátum á leið þeirra út á Norður-Atlantshafið, allt frá því að þeir yfirgefa heimabækistöðvar á Kólaskaga. Þegar kafbátur leggur úr höfn er fylgst með honum frá gervitungli sem síðan sendir upplýsingar áfram til norska flughersins. Á grundvelli þeirra og upplýsinga frá SOSUS-kerfi milli Bjarnareyjar og Noregs taka norskar Orion P-3B kafbátaleitarvélar upp leitina frá norðurodda Noregs. Þær senda upplýsingar áfram til breska flughersins, sem tekur við eftirlitinu þegar vestar dregur með Nimrod-kafbátaleitarvélum sem hafa bækistöðvar á Kinross í Skotlandi. Miðstöð breska kafbátaeftirlitsins nálægt Edinborg sendir upplýsingar Nimrod-vélanna áfram til Keflavíkur og þegar kafbátarnir nálgast GIUK-hliðið tekur SOSUS- kerfi þess við eftirlitinu. Er því haldið fram, að kerfið uppgötvi hvern einstakan kafbát sem á leið um hliðið. Þegar sovéski kafbáturinn kemur út á Atlantshafið er fylgst með honum ýmist með kafbátum, þyrlum, frá herskipum eða kafbátaleitarflugvélum frá flugvélamóðurskipi.
Þegar SOSUS uppgötvar kafbát ganga upplýsingarnar til stöðva í landi Regional Evaluation Center þar sem þær eru greindar. Frá þessum miðstöðvum eru upplýsingarnar sendar til OSIS (Ocean Surveillance Information System) í Norfolk, þar sem fram fer heildargreining, sem einnig byggir á öðrum upplýsingum sem inn koma frá herskipum, kafbátum, gervitunglum eða flugvélum. Upplýsingarnar eru settar í samband við almennar upplýsingar um t. d. úthald sovéskra kafbáta, hljóðeinkenni þeirra, upplýsingar um sjávarbotninn, veður o. fl. Niðurstöður OSIS, settar fram sem líkindi fyrir því, að kafbát af tegund „X“ sé að finna innan ákveðins radíuss frá einhverjum tilteknum punkti, eru sendar í gegnum fjarskipta- og stjórnkerfi til herskipa eða flugvéla til staðsetningar.“
Síðan er á bls. 53 birt kort sem hefur farið víða hjá alþjóðlegum stofnunum á þessu sviði og m. a. birst í því virta tímariti Scientific American, og varla verður það rit sakað um að spila áróðursplötur Alþb. Mikill er þá máttur vor orðinn, ef Scientific American er farið að taka að sér að gefa þær út. Þarna er dregið saman ákveðið kort sem unnið er upp úr sovéskum heimildum og hefur verið notað af bandarískum og evrópskum herfræðistofnunum til þess að sýna hvernig annars vegar bandaríska kafbátakerfið og hins vegar sovéska kafbátakerfið tengjast saman í gagnkvæmar árásarsveitir á þessu svæði, sem er meginuppistaðan í kjarnorkuvopnajafnvæginu, eins og sumir kalla það, á Norður-Atlantshafi. Hvar skyldi vera miðdepillinn í þessari starfsemi samkv. þessu korti? Menn geta séð það hér og flett því upp í ritinu. Hann er á Íslandi. Flugvélarnar, SOSUS-kerfið og önnur aðstaða, sem hér er, eru tengdar inn í þessa starfsemi. Þetta er kort sem viðurkenndir bandarískir fræðimenn og alþjóðleg rit eins og Scientific American birta sem sjálfsagðan hlut af þeirri almennu vitneskju sem reiknað er með að allir þeir, sem um þessi mál fjalla, hafi yfir að ráða. Svo koma ábyrgir aðilar hér og segja: Það eru engin tengsl. Það eru engin tengsl.
Það mætti, herra forseti, lesa ýmislegt fleira upp úr þessum textum, bæði þeim, sem hér liggur fyrir á íslensku og er fyrst og fremst yfirlitsrit, og enn fremur úr fjölda erlendra rita, þar sem þessi greining kemur mjög nákvæmlega fram. Það er mesti misskilningur hjá hv. þm. Benedikt Gröndal, að það sé einhver yfirborðslesning hjá mér. Ég ætla að vísu ekki sjálfur að fara neitt að lýsa mínum vinnubrögðum, en ég skal hins vegar segja það, að óskandi væri að ég hefði rangt fyrir mér í þessum efnum. Þessi mál eru mér það mikið alvörumál, að ég mundi taka því fagnandi ef viðurkenndir sérfræðingar gætu sýnt mér fram á að allt það, sem ég hef sagt, og allt, sem þessir erlendu sérfræðingar hafa sagt, og allt, sem í þessari GIUK-bók stendur, allt þetta sé bara vitleysa og það sé rétt hins vegar sem hér hefur verið sagt í dag af þremur ábyrgum forustumönnum íslensku þjóðarinnar, að það séu engin tengsl við þetta kjarnorkuvopnakerfi frá tækniaðstöðunni hér á Íslandi.
Síðan má flétta ýmislegt annað inn í þessa umr., eins og AWACS-flugvélarnar. Ég ætla ekki að gera það hér. En það er mikill misskilningur, að það sé ekki viss eðlismunur á AWACS-flugvélunum og þeim öðrum radarflugvélum, sem hér hafa verið, vegna þess að kjarninn í starfsemi AWACS-flugvélanna er hæfni þeirra til þess að stýra sjálfar stórum flota árásarflugvéla. Ein AWACS-flugvél getur stýrt um 100 árásarþotum. Það er hæfni sem fyrri radarflugvélar höfðu ekki til að bera. Það sýnir okkur að með staðsetningu AWACS-flugvélanna hér er búið að breyta þó nokkuð til um eðli þeirrar starfsemi, sem hér fer fram, og gera Bandaríkjunum kleift með þessu eina tæki að stýra héðan frá Íslandi árásarsveit eða varnarsveit — menn mega kalla það hvað sem þeir vilja — alla vega um 100 orrustuþotum sem legðu upp frá Noregi, Bretlandi og kannske annars staðar á þessu svæði.
Það var vikið hér einnig að því, að ég hefði fullyrt að þessar stöðvar yrðu fyrstu skotmörk í stríði. Ég hef aldrei sagt að þær yrðu fyrstu skotmörk í stríði. Ég sagði fyrr í dag og segi aftur að yfirgnæfandi líkur — ef maður vill draga skynsamlega ályktun — bendi til þess, að þær yrðu fyrstu skotmörk í kjarnorkuátökum risaveldanna, einfaldlega vegna þess að sú tækniaðstaða, sem hér er, er — eins og kemur fram í þessari GIUK-bók og fleiri slíkum ritum, eins og t. d. greininni í Scientific American, sem ég vitnaði til áðan — meginástæðan fyrir yfirburðum Bandaríkjanna í kjarnorkuflotahernaði á norðurslóðum. Ef Sovétríkin ættu að velja einhvern einn punkt á þessu svæði — eða eitthvert annað ríki sem vildi ráðast á Bandaríkin — sem mundi draga í einu höggi úr þessum tæknilegu yfirburðum bandaríska flotans í kjarnorkuvígbúnaðarkerfinu á norðurslóðum, þá eru það einmitt þessar stöðvar, þær fjarskipta- og hlustunarstöðvar, sem hér eru, og þeir flugvellir, sem gera þessum flugvélum kleift að athafna sig. Það hefur t. d. komið fram í bandarískum gögnum. Ég les orðrétt upp úr þessari bók, með leyfi hæstv. forseta:
„Þau skotmörk, sem Bandaríkjamenn álíta að Sovétmenn muni beita kafbátaeldflaugum gegn strax í upphafi kjarnorkustríðs, eru bækistöðvar B-52 sprengjuflugvéla og fjarskipta- og stjórnkerfi.“
Hér er meginhlutinn í þessu fjarskiptakerfi á norðurslóðum. Talsmenn Sjálfstfl. hafa reyndar með ræðu framkvæmdastjóra flokksins heimtað enn þá fullkomnari stjórnstöð hér á landi en hér er nú, til þess samkv. áliti Bandaríkjamanna sjálfra, ekki Alþb., að tryggja enn frekar að þetta verði fyrsta skotmark.
Svona er hægt, herra forseti, að halda áfram að rekja fjölmargt í þessum efnum. En ég vil aðeins undir lokin láta nægja eftirfarandi tilvitnanir í þetta sama rit, með leyfi hæstv. forseta:
„Hér skal þó ekkert fullyrt um það hverjar eru fyrirætlanir Sovétmanna í þessum efnum. Á hinn bóginn er rétt að benda á að áður en til aðgerða gegn skipalestum kæmi yrði flotinn að takast á við bandarískar flugmóðurskipasveitir í og við Noregshaf,“ — þ. e. sovéski flotinn, — „tryggja öryggi eldflaugakafbátanna gegn árásarkafbátum Vesturlanda og koma í veg fyrir aðstöðu NATO í GIUK-hliðinu og í Noregi.“
Þetta er ekki mín skoðun. Ég er bara að lýsa því sem segir í riti sem allir eru búnir að hæla hér í dag og framkvæmdastjóri Sjálfstfl. hefur hælt sérstaklega í þeirri ræðu sem ég hef gert að umræðuefni. Þá er bent á að áður en til aðgerða gegn skipalestum kæmi, — ég vek athygli á því: áður en til þeirra aðgerða kæmi væri nauðsynlegt fyrir Sovétríkin til að tryggja öryggi eldflaugakafbáta gegn árásarkafbátum Vesturlanda orðrétt: „að koma í veg fyrir aðstöðu NATO í GIUK-hliðinu og í Noregi.“ Hver er þessi aðstaða NATO í GIUK-hliðinu? Það er fyrst og fremst aðstaðan hér á Íslandi.
Að lokum, herra forseti, vil ég vitna hér í ársskýrslu bandaríska varnarmálaráðherrans 1980. Hann er kannske líka á launum hjá Alþb. Hann er kannske líka einn af þeim sem hafa tekið að sér að spila áróðursplöturnar hans Ólafs Ragnars, þetta sem ábyrgu aðilarnir hér áðan í umr. eru orðnir voðalega þreyttir á að hlusta á. Þeir ættu þá að passa sig á að hlusta ekki á varnarmálaráðherra Bandaríkjanna þegar þeir hitta hann á þessum fínu fundum. Í ársskýrslu bandaríska varnarmálaráðherrans 1980 er eftirfarandi lýsing á því, hvernig áætlað er að beita flotanum í ófriði:
„Í styrjöld, þar sem NATO er beinn þátttakandi, mun forgangshlutverk flotans og þar á meðal flugmóðurskipasveitanna fara eftir atburðarásinni. En við mundum miða að því að loka GIUK-hliðinu. Það er fyrsta atriðið að loka GlUK-hliðinu og hliðstæðum sundum á Kyrrahafi og hefja sóknaraðgerðir“ — ekki varnaraðgerðir heldur sóknaraðgerðir — „og aðgerðir til að ná yfirráðum gegn flota og flugherafla utan þessara marka.“
Ég bið menn að lesa vel þennan texta því að þetta er hnitmiðaður texti. Hann dregur upp í örfáum línum kjarnamyndina í því, að það er ætlunin að efna til sóknaraðgerða í GIUK-hliðinu af hálfu bandaríska flotans til þess að tryggja sig gagnvart aðgerðum sem eru annars staðar í heiminum eða utan þessara marka, eins og hér stendur. Síðan segir áfram í skýrslu bandaríska varnarmálaráðherrans: „Að þessu loknu mundum við halda opnum þeim möguleika að gera árás á skotmörk á ströndum Sovétríkjanna og styðja hernaðaraðgerðir á vængjum NATO-svæðisins.“
Síðan segir í skýrslunni um GIUK-hliðið, og það er síðasta tilvitnunin sem ég ætla hér að lesa, herra forseti: „Þegar hefur verið lýst á hvern hátt GIUK-hliðið yrði lokað, en sóknaraðgerðir inn á Noregshaf, sem hér um ræðir, yrðu framkvæmdar bæði með árásarkafbátum og flugmóðurskipasveitum.
Árásarkafbátum yrði beitt til sóknaraðgerða í upphafi átakanna, enda telja Bandaríkjamenn þá hafa möguleika til að athafna sig á svæðum þar sem aðstaða Sovétmanna er sterkari, t. d. þar sem sovéski flotinn hefur öfluga flugvernd frá landi.
Í skýrslu nefndar Þingmannasamtaka Atlantshafsbandalagsins eru sóknaraðgerðir flugmóðurskipa skýrðar í tengslum við hernaðarmikilvægi Noregs og Íslands. Í skýrslunni er lögð á það áhersla, að komið verði í veg fyrir að Sovétmenn nái að hernema þessi lönd, því að þá gætu þeir bætt flugvernd sína verulega og brotið niður kafbátatálmanir í GIUK-hliðinu.“
Herra forseti. Ég hafði ekki ætlað, eins og ég sagði í upphafi þessarar ræðu minnar, að taka hér aftur til máls. En þær skýru yfirlýsingar, sem hér komu fram og ég hef gert hér að aðalumræðuefni, um að það væru engin tengsl tækniaðstöðunnar á Íslandi við kjarnorkuvígbúnaðarkerfið á Norður-Atlantshafi, eru svo alvarlegar yfirlýsingar og slík kjarnaatriði í allri þessari umræðu, að það er brýn nauðsyn að taka það til miklu nánari skoðunar. Það væri fagnaðarefni ef við gætum nú tekið höndum saman, fulltrúar fjögurra flokka á Alþingi, — hér hefur talað núv. utanrrh. frá Framsfl., Benedikt Gröndal frá Alþfl., Geir Hallgrímsson frá Sjálfstfl. og ég frá Alþb., — það væri fagnaðarefni ef við gætum nú allir tekið saman undir þá yfirlýsingu sem þeir fluttu hér, að það eigi ekki að vera nein tengsl Íslands við kjarnorkukafbátakerfið á Norður-Atlantshafi.
Eigum við ekki að sameinast um að flytja þáltill. um þetta, til þess að staðfesta þessa skoðun, þennan vilja, svo að þetta liggi alveg hreint fyrir, það liggi hreint fyrir gagnvart Atlantshafsbandalaginu og Bandaríkjunum sérstaklega, að það er sameiginlegur vilji allra okkar fjögurra að það séu ekki nein tengsl? Ég skildi yfirlýsingar þeirra hér á þann veg, að bæði væru þeir þeirrar skoðunar, að það væru engin slík tengsl og þau ættu ekki að vera. Ef við erum sammála um þessa stefnuaðstöðu verð ég að segja það, að það er þó alla vega áfangi að ná þjóðinni á vissan hátt saman um ákveðna þætti í þessum málum, þó að okkur geti greint á um ýmislegt annað. Ég vek í þessu sambandi athygli á því, að þótt t. d. í ýmsum aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins geti verið ágreiningur um aðildina að Atlantshafsbandalaginu, þá er hins vegar samstaða um ýmsa ákveðna þætti í tengslum við hvernig eigi að standa að framkvæmd mála. Jafnvel þá, sem eru kannske sammála um aðildina að Atlantshafsbandalaginu, getur líka greint á um hvernig eigi að standa að framkvæmd mála.
Eftir þessar umr., sem hér hafa farið fram í dag, — ef þær á að taka alvarlega, sem ég tel að eigi að gera vegna þess að ég er þeirrar skoðunar, að þetta sé eitt stærsta málið sem við glímum við, Íslendingar, — þá sýnist mér einsýnt að allir fulltrúar flokka hér á Alþingi sameinist um að flytja hér tillögu sem taki af öll tvímæli um að það sé sameiginlegur vilji okkar allra, að það séu engin tengsl Íslands við kjarnorkuvígbúnaðarkerfið á Norður-Atlantshafi. Í framhaldi af þeirri sameiginlegu viljayfirlýsingu getum við farið og kannað hvort það, sem ég hef hér verið að lesa, hvort það, sem bandaríska varnarmálaráðuneytið segir, hvort það, sem bandaríski herinn segir, o. s. frv. er rétt eða hvort það er rétt sem hér hefur verið sagt, að það séu engin slík tengsl. Ef það reynist hins vegar rétt, sem hér hefur verið vitnað í, að það séu einhver slík tengsl, þá yrði í samræmi við þessa sameiginlegu stefnu allra flokka á Íslandi að rjúfa þau tengsl. Ég vil, til þess að fyrirbyggja misskilning sem mér fannst koma fram hjá fyrri ræðumönnum, ítreka það, að ég er ekki að tala um staðsetningu sprengjunnar sjálfrar. Það er allt önnur umræða, vegna þess að það hefur enginn haldið því fram, að flugskeyti fyrir kafbáta eða kjarnorkukafbátasprengjur væru hér á Íslandi. Það hefur enginn maður haldið því fram, ekki einu sinni þessir erlendu sérfræðingar. Þeir hafa eingöngu talað um vopn sem væru borin af flugvélum. En við erum hér hins vegar að tala um tengsl Íslands við kjarnorkukafbátakerfið og þann kjarnorkuvígbúnað sem byggður er upp á kjarnorkukafbátakerfi risaveldanna á norðurslóðum.
Ég vil svo að lokum, herra forseti, fagna þeirri yfirlýsingu sem hæstv. utanrrh. flutti undir lok sinnar ræðu, að á Íslandi yrðu aldrei leyfð kjarnorkuvopn. Ég vil taka undir þessa yfirlýsingu. Þetta er mikil grundvallaryfirlýsing. Ef við getum líka sameinast um þessa yfirlýsingu sem viljayfirlýsingu Alþingis, að Ísland leyfi ekki kjarnorkuvopn á sínu landi og muni ekki gera, þá er líka vissum áfanga náð í að færa þjóðina nær sjálfri sér og sameinast um ákveðna hluti sem menn geta þó verið sammála um þó að menn deili kannske um annað. Það væri vissulega verðugt verkefni að mynda einhuga þingmeirihluta, jafnvel einhuga Alþingi, um að formfesta þessa yfirlýsingu sem hér var flutt, að á Íslandi yrðu aldrei leyfð kjarnorkuvopn.
Ég fagna því svo að lokum, herra forseti, að í ræðu formanns Sjálfstfl. skyldi ekki koma fram jafneindreginn stuðningur við vígbúnaðarkröfurnar í ræðu framkvæmdastjóra flokksins og kom fram í ræðu varaformanns.