27.10.1981
Sameinað þing: 9. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 277 í B-deild Alþingistíðinda. (196)

321. mál, húsnæðismál

Félmrh. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Hér hefur ýmislegt komið fram sem ástæða væri til að ræða lengi dags. Ég vil fyrst leggja áherslu á eitt meginatriði, sem menn þurfa að skilja, líka hv. þm. Þorv. Garðar Kristjánsson sem hefur mikinn áhuga á húsnæðismálum, og hann hefur vafalaust einhvern tíma velt því fyrir sér. Það er þetta:

Vandi húsbyggjenda og þeirra, sem leigja og kaupa íbúðir, stafar af því, að vaxandi hluti fjármagns er verðtryggður að fullu. Hér eru í raun greiddir svokallaðir raunvextir af öllum fjárskuldbindingum. Þetta fjárhagslega og efnahagslega atriði ræður úrslitum um stöðu húsbyggjenda á hinum almenna íbúðamarkaði. Þetta ræður líka úrslitum um stöðu atvinnuveganna eins og hún er um þessar mundir, og þetta grundvallaratriði verða menn að hafa í huga. Ríkisstj. hefur með sínu nýja húsnæðislánakerfi gert ráðstafanir sem vafalaust hafa í för með sér, bæði í bráð en þó sérstaklega í lengd, að þessi verðtryggingarstefna fjárskuldbindinga á ekki að koma eins hastarlega við launamenn og lágtekjufólk og ella hefði verið. Félagsleg stefna ríkisstj. í húsnæðismálum var þess vegna óhjákvæmilegt svar við þeirri ákvörðun stjórnvalda að verðtryggja allar fjárskuldbindingar, auk margra annarra raka fyrir því að auka og efla hið félagslega íbúðabyggingakerfi.

Hv. þm. talar um samdrátt í íbúðabyggingum í ár. Í gögnum, sem hefur verið dreift á borð þm., er rætt um 5% samdrátt í þeim efnum. Það liggur þó ekki endanlega fyrir hver sú tala er á þessu ári. Það verður að sjálfsögðu ekki fyrr en byggingarfulltrúarnir hafa gert upp sínar skýrslur. En meginatriðið, sem hv. þm. Þorv. Garðar Kristjánsson vill gleyma, vill ekki sjá og vill ekki skilja vegna þess að ég veit að hann getur skilið það og getur séð það, það er að tekin hefur verið ákvörðun um stórfellda eflingu hins félagslega íbúðabyggingakerfis upp á hundruð íbúða á ári. Halda menn að það segi ekki til sín í umsóknum um önnur húsnæðislán eða þenslu á húsnæðismarkaðinum að öðru leyti? Nú liggur fyrir, eins og ég gat um í mínu svari, að í undirbúningi eru á mismunandi stigum innan hins félagslega íbúðabyggingakerfis í landinu 580 íbúðir. Halda menn að það muni ekkert um þetta? Júnísamkomulagið, sem gert var á milli ríkisstj. og verkalýðshreyfingarinnar fyrir 10–20 árum, 1963 eða 1964, hefur lengi verið lofað og prísað og það að verðleikum. Þetta júnísamkomulag fól í sér 1250 íbúðir og tók 10–15 ár að koma því frá og var talað um það sem afrek. Hér liggur fyrir að búið er að lögfesta fyrirkomulag sem tryggir að á ári hverju á að vera unnt að reisa miklu fleiri félagslegar íbúðir en nokkru sinni hafa áður verið reistar hér í landinu. Ætla menn þá bara að slá striki yfir það og öskra á ríkisstj. fyrir það, eins og hv. 5. þm. Suðurl. gerði áðan? Mér þótti satt að segja sárt að heyra það af hans munni.

Hann talar um að ríkisstj. hafi ekki bara skorið niður lánin eða minnkað þau, heldur stolið tekjustofni Byggingarsjóðs ríkisins. Það voru hans óbreyttu orð. Hæstv. ríkisstj., með öllum þeim titlum að framan og á eftir sem notaðir eru samkv. þingsköpum, hefur stolið peningum sem áttu að fara í Byggingarsjóð ríkisins! Hvílíkur málflutningur! Ég segi það alveg eins og er, að ég hef tæplega skap í mér til að taka eins á þessum málflutningi og kannske væru efni til. Þessir fjármunir hafa farið í Byggingarsjóð verkamanna. Þegar Alþfl. sprengdi sig út úr ríkisstj. haustið 1979 lét hann eftir sig húsnæðismálafrv. þar sem Byggingarsjóður verkamanna var skilinn eftir svo að segja tekjustofnalaus. Þetta var sú frammistaða sem þeir eru að guma af, en um þetta ætla ég ekki að skattyrðast núna. Málflutningur af þessu tagi, að ríkisstj. hafi stolið þessum fjármunum, eins og það var orðað hér, er engum þm. sæmandi, síst hv. þm. Magnúsi H. Magnússyni.

Varðandi önnur atriði, sem hér hafa komið fram, ætla ég ekki að vera langorður. En ég vil þó aðeins svara fsp. frá hv. 8. landsk. þm., Guðrúnu Helgadóttur, í sambandi við reglugerð um lán til dagvistarstofnana. Að henni er unnið. Í sambandi við eftirlitsmenn með því, að íbúðir í félagslega íbúðabyggingakerfinu séu ekki leigðar út í stórum stíl, eins og mun hafa verið gert, er þess að geta, að slíki eftirlit hefur verið undirbúið og það hefur verið í gangi í allt sumar. En ég minni á að ákvörðun um slíki eftirlit er að sjálfsögðu í höndum stjórnar verkamannabústaðanna á hverjum stað, þar með er talin stjórn verkamannabústaðanna í Reykjavík.