09.02.1982
Sameinað þing: 51. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2348 í B-deild Alþingistíðinda. (1960)

47. mál, ráðunautur í öryggis- og varnarmálum

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Ég hafði beðið um orðið áður en hv. síðasti ræðumaður talaði. Ég get stytt mál mitt með tilvísun til þess sem hv. 10. þm. Reykv. sagði. Ég vil aðeins láta það koma hér skýrt fram, að ekkert af því, sem hv. 11. þm. Reykv. las upp úr ritinu um GIUK-hliðið, var unnt að skilja sem synjun á þeirri staðreynd og því sem ég hélt fram, að hernaðarlegt mikilvægi Íslands er í raun óháð tæknibúnaði staðsettum á landinu, en liggur fyrst og fremst og alfarið í legu landsins. Það kom mjög greinilega fram, að það voru hagsmunir hvort tveggja stórveldanna að hafa aðstöðu hér á Íslandi. Hafi hagsmunir þeir, sem Bandaríkin og Atlantshafsbandalagið hafa af tækniútbúnaði á Íslandi, einhverja þýðingu er alveg ljóst að væri slíku ekki fyrir að fara hér á Íslandi af hálfu Atlantshafsbandalagsríkjanna yrðu Sovétríkin fyrst til þess að hremma landið til að skapa sér slíka aðstöðu og færa áhrifasvæði sitt út á Atlantshaf og slíta á þá líflínu sem reynst hefur lýðræðisríkjum mikilvæg í tveim heimsstyrjöldum, líflínu birgðaflutninga um Atlantshafið.

Það er alveg öruggt mál, að það mundi nægja fyrir okkur hæstv. utanrrh., hv. 4. þm. Reykv. og mig að njóta kvöld- eða helgarnámskeiða sérfræðinga. En ég held að margra ára eða áratuga skólaganga hv. 11. þm. Reykv. mundi ekki duga til að lækna hann af þeirri áráttu að snúa út úr orðum manna. Ég hlýt að rifja upp það sem hv. 4. þm. Reykv. sagði í ræðu sinni fyrr í umr., þar sem hann svaraði þeirri staðhæfingu að SOSUS-kerfið væri til þess að fylgjast með ferðum kafbáta Bandaríkjanna, það væri fyrst og fremst til þess að fylgjast með ferðum annarra kafbáta en kafbáta Atlantshafsbandalagsins. Í því felst gildi þess fyrir varnir Íslands að við vitum hverjir fara um næsta nágrenni landsins, hvort sem það er í lofti eða legi. Það er 1jóst mál, að allar tilvitnanir, sem hv. þm. hafði hér yfir úr ritinu GIUK-hliðið, fólu í sér gildi Íslands og eftirlits frá Íslandi einmitt að þessu leyti.

Það var ekki unnt að misskilja hvar umhyggja hv. þm. var niður komin. Honum þótti það alveg voðalegt að það væri unnt að fylgjast með ferðum sovéskra kafbáta suður á Atlantshaf í gegnum GUIK-hliðið héðan frá Íslandi. Það var ljóst hverjum hjarta hv. þm. sló. Það voru hagsmunir Sovétríkjanna sem hann bersýnilega bar fyrir brjósti. En líka er augljós útúrsnúningur hv. þm. um tengsl tækjabúnaðar hér á Íslandi við kjarnorkuvopnakerfi Bandaríkjanna, þessi tengsl eru hvorki minni né meiri nú en áður, vegna þess að sá tækjabúnaður, sem hér er, er nauðsynlegur hvort sem við búumst við kjarnorkuvopnastyrjöld — sem guð forði oss frá — eða styrjöld með venjulegum vopnum — sem guð forði oss einnig frá.

Þýðing varnarviðbúnaðar á Íslandi er einmitt í því fólgin að árásaraðill eða aðili, sem vill hafa áhrif á ákvarðanir okkar hér á landi eða í öðrum vestrænum ríkjum, láti sér skiljast að hvorki þrýstingur né bein árás verði þeim að því gagni að þeir fái vilja sínum framgengt. Það er þess vegna uggvænlegt að hv. þm. á Alþingi Íslendinga skuli finnast það í sjálfu sér allt í lagi að kafbátar stórveldis, sem nýlega hefur kúgað heila þjóð að nýju undir járnhæl sinn, eigi hér ótakmarkað ferðafrelsi í hvaða tilgangi sem væri. Það hlýt ég að segja og undirstrika, að ekki get ég verið hv. þm. sammála um að það sé björgun fyrir heimsfriðinn að ekki sé aðvarað kjarnorkuvopnakerfi Bandaríkjanna ef fyrir liggur að það eigi að eyða því einhliða meðan Sovétríkin, enn grá fyrir járnum, geta skartað í sínum kjarnorkuvopnavaldadraumi. Það er áreiðanlegt og víst, að það þjónar ekki hagsmunum Íslands eða vestrænna lýðræðisríkja. Ef menn hugsuðu þannig væri ljóst að það járntjald, sem því miður hefur verið sett niður milli frjálsra og ófrjálsra þjóða í Evrópu, mundi flytjast til vesturstrandar Evrópu og frelsi og lýðræði í Evrópu með þeim hætti að engu gert. Ég veit að Íslendingar vilja ekki þessa þróun mála.

Við skulum vona að það sé ekki eingöngu ógnarjafnvægi kjarnorkuvopna sem verndar friðinn í heiminum. Við skulum vona að það séu ekki eingöngu stórveldin grá fyrir járnum sem hrædd hvort við annað skirrast við að fara í stríð. Við skulum vona að það sé líka friðarvilji og að vissu leyti ákveðinn fórnarvilji frjálsra lítilla þjóða sem styrki friðarhorfur í heiminum. Ekki síst í okkar heimshluta höfum við reynslu fyrir því, að bandalag Atlantshafsríkjanna er vísasti vegurinn til þess að við njótum áfram friðar eins og verið hefur þó á fjórða áratug.