10.02.1982
Neðri deild: 39. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2360 í B-deild Alþingistíðinda. (1982)
173. mál, útflutningsgjald af sjávarafuðrum
Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um breytingu á lögum nr. 2 frá 1. febr. 1980, um breytingu á lögum nr. 5 frá 13. febr. 1976, um útflutningsgjald af sjávarafurðum. Í gildandi lögum, 1. gr. laga nr. 2 frá 1. febr. 1980, segir að útflutningsgjald af sjávarafurðum skuli ákveðið 5.5% fob-verðmætis útflutnings í stað 6% sem það áður var. Jafnframt segir svo í sömu lögum, 5. gr., gildistökuákvæði þeirra laga: „Lög þessi öðlast þegar gildi og skulu ákvæði þeirra taka til útflutnings sjávarafurða sem framleiddar eru á árunum 1980 og 1981.“ M. ö. o.: þessi breyting á fyrra útflutningsgjaldi, sem var eins og ég áður sagði 6%, átti aðeins að gilda fyrir árin 1980 og 1981 og féll því úr gildi um síðustu áramót.
Nú eru allir hagsmunaaðilar, sem þessu tengjast, sjómenn, útgerð og fiskvinnsla, á einu máli um að útflutningsgjaldinu verði haldið áfram, 5.5% eins og það hefur verið undanfarin tvö síðustu ár. Því er þetta frv. lagt fram sem felur í sér að fella niður úr gildistökuákvæði laganna, þ. e. 5. gr., þann hluta greinarinnar sem kveður svo á að þau — í þeirri mynd sem þau voru gildi aðeins fyrir árin 1980 og 1981. Verði þetta frv. samþykkt verður útflutningsgjaldið áfram 5.5%.
Jafnframt eru í þessu frv. tvö ákvæði til bráðabirgða. Það er í fyrsta lagi ákvæði sem varðar útflutningsgjald af loðnumjöli og loðnulýsi framleiddu á tímabilinu sem nú stendur yfir. Gert var ráð fyrir því í frv., sem varð að lögum hér fyrir áramót, að útflutningsgjald af þessum afurðum yrði lækkað úr 5.5% í 3.575%. Þetta var liður í samkomulagi um verðlagningu á loðnu. Þar voru og eru verulegir erfiðleikar. Nú er loðnuvertíð ekki að fullu lokið. Það hefur verið veitt smávegis af loðnu eftir áramótin og þótt lítið sé þykir sjálfsagt að láta þetta ákvæði gilda einnig um þær afurðir. Því er hér um það að ræða að framlengja þetta ákvæði nýlegra laga þannig að það gildi út það veiðitímabil sem nú stendur. Eins og segir í ákvæði til bráðabirgða gildir það fyrir fyrstu fjóra mánuði ársins.
Ég sé ekki, herra forseti, að ástæða sé til að hafa fleiri orð um þetta frv. Það skýrir sig, hygg ég, að öllu leyti sjálft. Ég læt þessa framsögu nægja og geri að till. minni, þegar lokið er þessari umr., að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.