27.10.1981
Sameinað þing: 9. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 279 í B-deild Alþingistíðinda. (199)

321. mál, húsnæðismál

Birgir Ísl. Gunnarsson:

Herra forseti. Þessi stutta umr. hér um húsnæðismál hefur verið mjög fróðleg. Húsnæðismálin hafa oft verið umræðuefni í íslenskum stjórnmálum, en sú umr. hefur fyrst og fremst mótast af framkvæmd stefnunnar á hverjum tíma. Djúpstæður pólitískur ágreiningur um hvaða stefnu ætti að fylgja í húsnæðismálum hefur ekki verið fyrir hendi í mörg ár. Menn hafa deilt um hvort væri nægjanlegt fjármagn eða hvort fjármagnið væri nægilega vel nýtt, en það hefur ekki komið upp fyrr en nú djúpstæður pólitískur ágreiningur um stefnu í húsnæðismálum. Sá pólitíski ágreiningur speglast m. a. í þeirri stuttu umr. sem hér hefur farið fram í dag.

Það liggur alveg ljóst fyrir, að núv. hæstv. ríkisstj. hefur markað sér mjög ákveðna stefnu í húsnæðismálum. Sú stefna byggir á því að leggja höfuðáherslu á hið svokallaða félagslega húsnæðismálakerfi, „félagslegar húsnæðisbyggingar“, eins og það heitir á þeirra máli. Þetta kerfi er þannig upp byggt, að það eru tiltölulega fáir sem þess geta notið, eins og fram kom hjá hv. þm. Magnúsi H. Magnússyni. Það fólk á vissulega allt gott skilið í húsnæðismálum og er nauðsynlegt að hlúð sé að því á allan hátt. En hitt fólkið, hinn almenni borgari, er sett út á klakann í húsnæðismálum. Það unga fólk, sem vill byggja sjálft eða fellur ekki undir húsnæðiskerfi hinna félagslegu framkvæmda af einhverjum ástæðum, er sett út á klakann af hæstv. núv. ríkisstj. Í þessu speglast sá djúpstæði pólitíski ágreiningur sem núna, í fyrsta sinn um langan tíma í íslenskum stjórnmálum, er kominn upp.

Það er fróðlegt að sjá hverjir það eru sem nú framkvæma þessa stefnu í húsnæðismálum, hverjir bera ábyrgð á henni. Það er að sjálfsögðu Alþb. sem hefur þá stefnu í húsnæðismálum, eins og reyndar í öðrum málum, að hér skuli allt komast undir hinn sósíalíska klafa, hvort sem það eru húsnæðismál, atvinnumál eða hvað annað. Það er hart til þess að vita að það skuli vera undir þessari ríkisstjórn að slíkt skuli gerast.