11.02.1982
Sameinað þing: 52. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2376 í B-deild Alþingistíðinda. (1999)
Umræður utan dagskrár
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Ég skal ekki fara í þrætubókarlist við hæstv. forsrh. um það, hvort formaður Alþfl. hafi kannske gert fullmiklar kröfur til ríkisstj. um sanngirni. Auðvitað hljóta slíkar kröfur að metast af því, við hvern maður á. Sumir menn eru þannig að með sanngirni er hægt að ætlast til meira af þeim en öðrum. Ég skal þess vegna taka undir það, að með nokkurri sanngirni má segja að það verði að gera aðrar kröfur til núv. ríkisstj. en margra annarra, einkum varðandi það, hvort þjóðinni sé skýrt frá því sem miklu kann að varða um helstu atriði t. d. í atvinnumálum.
Nú er það svo, eins og við munum, að skömmu eftir að þing kom saman eftir jólafrí óskaði hæstv. forsrh. sérstaklega eftir að umr. yrðu um aðgerðir ríkisstj. í efnahagsmálum, útvarpsumr., til þess að þjóðin mætti hlýða á hversu þeim hefði tekist, hæstv. ráðh., að koma sér saman um ýmsar aðgerðir í efnahagsmálum og til hvaða aðgerða þeir höfðu þá gripið. Af þessu tilefni var lögð fyrir Alþingi sérstök skýrsla frá ríkisstj. um aðgerðir í efnahagsmálum. Ekki er einu einasta orði vikið að þessum brbl. í þessari skýrslu. Þó er þar sérstaklega fjallað um atvinnumálin og tekið fram að það eigi að lækka launaskatt úr 3.5% í 2.5%, lækka stimpilgjöld úr 1% í 0.3%, en á brbl. er ekki minnst. Það sýnir náttúrlega að hæstv. forsrh. kærði sig ekki um að setning þeirra yrði í upphafi grundvöllur að umr. um þessi mál. Hann óskaði ekki að fyrra bragði eftir að útskýra tilurð þeirra í þessum útvarpsumr., hefur kannske talið það minni háttar atriði að helmingur af svokölluðum gengisgróða skyldi gerður upptækur, eins og hæstv. sjútvrh. sagði. Ég man raunar eftir því, að fyrir einum 18–19 árum deildu þeir um það sessunautarnir, hæstv. utanrrh. og hæstv. forsrh. Þarna man ég nú ekki allt. Ég man að núv. hæstv. utanrrh. hélt því þá fram að upptaka gengishagnaðar með þessum hætti væri vafasöm með hliðsjón af eignarréttarákvæðum stjórnarskrárinnar. En eftir hinu man ég, að þrátt fyrir að hæstv. forsrh., sem þá var Ólafur Thors, hafi eggjað fjmrh. sinn lögeggjan-núv. forsrh.— til að leggja eitthvað til málanna fór næsta lítið fyrir þeirri málafylgju. Ekki veit ég hvaða ástæður lágu til þess, en mig rekur minni til þessa. — En þarna er sem sagt um gamalt deilumál að ræða sem oft hefur valdið miklum úlfaþyt hér á Alþingi.
Ég skal ekki ræða efnislega um frv., en vek aðeins athygli á að í skýrslu ríkisstj. um aðgerðir í efnahagsmálum er ekki vikið einu einasta orði að þessum brbl.
Ég vil líka vekja athygli á því, að þetta frv. kom fyrst til umr. í Ed. í gær. Ég hygg að það hafi verið lagt fram í þessari viku. Ég tel að það sé sanngirniskrafa þingsins, að brbl. séu lögð fram á Alþingi um leið og þing kemur saman. Svo langur frestur sem hér er um að ræða er vitaskuld allt of langur og hefði verið eðlilegt að frv. til staðfestingar á brbl. hefði verið lagt fram strax í fyrstu viku.
Nú veit ég auðvitað, að hæstv. forsrh. getur nefnt ótal dæmi um að einhvern tíma áður hafi frv. til staðfestingar á brbl. verið lagt fram svo og svo seint, að hann getur auðvitað útskýrt að það hafi engin efni staðið til að leggja þetta frv. til staðfestingar á brbl. fram nú strax í fyrstu vikunni. Ótal skýringar kann hann á því, að það hafi verið alger ósamgirni að ætlast til þess, það væri illvilji í garð ríkisstj. að halda því fram.
Vítin eru til að varast þau, en ekki til að endurtaka slíkt hið sama. Auðvitað er það rétt, sem fram kemur í gagnrýni formanns Alþfl., að hér var farið með nokkurt laumuspil, og vitaskuld er það rétt hjá hæstv. forsrh., að auðvitað var miklu eðlilegra að Seðlabankinn gæfi út fréttatilkynningu um að gengið væri fallið, því að auðvitað vildi ríkisstj. ekki fella gengið og kom þar hvergi nærri. Það var lögum samkv. í verkahring Seðlabankans að ákveða gengið. Þá vitum við það líka, að úr því að það er í verkahring Seðlabankans er náttúrlega líka út í hött þegar hæstv. forsrh. er að tala um að það sé miklu eðlilegra að gengið falli en það sigi, gengissig sé í rauninni miklu óeðlilegri leið en gengisfallið. Það reiknast þá líka til tekna á reikning Seðlabankans, en ekki hæstv. forsrh., að nú er farið að fella gengið í staðinn fyrir að láta það síga. Það er auðvitað ekki mál sem hæstv. forsrh. getur hrósað sér af, ef hann hefur ekkert um þetta að segja. Við getum þá líka sagt að sú grein, sem bankastjóri Seðlabankans birti í Fjármálatíðindum varðandi gengisskráninguna, sé út í hött af því að hann sé þá að áminna sjálfan sig. Við getum þá líka sagt að sú stefna ríkisstj. að halda genginu sem föstustu komi ríkisstj. ekkert við, að það sé Seðlabankinn sem hafi tekið þá ákvörðun að halda genginu svo og svo föstu algerlega utan við ríkisstj. auðvitað. Smámál eins og gjaldeyrismál koma auðvitað ekki ríkisstj. við. Lögum samkv. er þetta í verkahring Seðlabankans. Ríkisstj. þarf að vísu að samþykkja þetta eftir á, stendur frammi fyrir gerðum hlut, alveg eins og forsetinn samþykkir lög frá Alþingi sem Alþingi er búið að samþykkja. Auðvitað skiljum við þetta. Ég efast um að nokkur þm. geri yfirleitt þá kröfu til þessarar ríkisstj. að hún hafi yfirleitt nokkra skoðun á gjaldeyrismálum yfirleitt. Gott ef hún fylgist með því hvernig gengið er skráð, hvort dollarinn fer upp eða niður. Það væri náttúrlega alveg út í bláinn að ætlast til þess. Að því leyti mundi mér því finnast svolítið ósanngjarnt ef þm. færu að tala um það við hæstv. forsrh., að hann bæri ábyrgð á gengisfallinu. En ef gengið hækkaði í verði, ef krónan færi upp á við í staðinn fyrir að fara niður á við, þá ættum við að segja að það væri hæstv. forsrh. að þakka. Það skil ég vel. Ekki skulum við ætla honum það sem illt er, miklu fremur hitt sem gott er, því að allur stendur hugur hans til þess að láta sem best af sér leiða eins og við vitum.
En hitt hlýtur að verða að átelja, hversu seint þetta frv. er lagt fram hér á Alþingi, og hitt verður að harma einnig, að hæstv. forsrh. skyldi ekki hafa haft svo sem eina línu aflögu í skýrslunni sinni um efnahagsmál og aðgerðir í þeim til þess að minnast á að brbl. hefðu komið út, af því að við vitum að hann vildi gefa þjóðinni sem skýrasta mynd af því sem ríkisstj. væri að aðhafast í efnahagsmálum og þar mætti ekkert undan draga, sem sagt væri, allra síst þetta, að verðbólgan frá upphafi til loka árs hafi verið í kringum 40%, ekki meira en 40%, heldur í kringum 40% frá upphafi til loka árs. Um hitt eigum við að þegja, að verðbólgan milli ára sé 50%. En ef það mundi snúast við á þessu ári og verðbólgan milli ára yrði eitthvað minni en verðbólgan frá upphafi til loka árs, þá ættum við að hætta að tala um verðbólgu frá upphafi til loka árs og þá ættum við að tala um verðbólgu á milli ára, því að auðvitað verður þetta að líta fallega út. Þjóðin vill að það sé talað við sig eins fallega og hægt er. Þá liður henni betur. Auðvitað á að sópa ruslinu undir teppið til að maður sjái það ekki, því að þá liður þeim líka betur sem ganga um stofuna. Þannig er það.