11.02.1982
Sameinað þing: 52. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2401 í B-deild Alþingistíðinda. (2017)

118. mál, alþjóðleg ráðstefna um afvopnun á Norður-Atlantshafi

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að fjalla ítarlega um þessa till. Ég á sæti í utanrmn. og gefst þar kostur á að fjalla um hana. En vegna orða síðasta ræðumanns, hv. þm. Árna Gunnarssonar, vil ég aðeins vekja athygli þingsins á því, að nú í sumar verður haldið sérstakt aukaþing Sameinuðu þjóðanna um afvopnunarmál. Það er annað aukaþingið sem Sameinuðu þjóðirnar halda um það efni. Það fyrra var haldið fyrir nokkrum árum og var tímamótaviðburður í umræðum um þetta efni. Þingið, sem haldið verður í sumar, hefur verið undirbúið mjög lengi. Á vegum Sameinuðu þjóðanna hafa starfað nefndir skipaðar alþjóðlegum sérfræðingum og stjórnmálamönnum til að undirbúa þessa ráðstefnu, og fjölmargar rannsóknarstofnanir og samtök hafa nú þegar lagt verulega af mörkum til að þessi ráðstefna geti tekist sem best.

Vegna þeirra orða, sem hér féllu hjá hv. þm. Árna Gunnarssyni, um að kynna þessa hugmynd eða tillögu á alþjóðavettvangi, finnst mér einsýnt að við þm. ræðum það hér, annaðhvort í utanrmn. eða á öðrum vettvangi, með hvaða hætti við Íslendingar getum tekið sem skýrastan þátt í þessu sérstaka aukaþingi Sameinuðu þjóðanna um afvopnunarmálefni. Ég vil í því sambandi minna á það, að Íslendingar hafa á Hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna — þó að hún hafi tekið langan tíma — gegnt miklu hlutverki og átt mikinn þátt í að koma þar á framfæri ýmsum athyglisverðum hugmyndum og nýjungum varðandi alþjóðalög. Það er greinilegt, að á vettvangi Sameinuðu þjóðanna fer fram hliðstæð vinna varðandi hin margvíslegu afvopnunarmálefni, þótt sú vinna fari reyndar fram viðar. En í tilefni þessara orða vildi ég koma þeirri hugmynd á framfæri, að það verði rætt innan þingsins, með hvaða hætti við getum tekið skýrastan þátt í afvopnunarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, og þingið eigi ásamt utanrrn. og þeim, sem eru fulltrúar Íslands á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, einhverja verulega hlutdeild að því, hvernig við kynnum á þeim vettvangi kröfur okkar um afvopnun í okkar heimshluta.